SA kallar eftir aðhaldi í ríkisrekstri

Samtök atvinnulífsins segja að bæta þurfi afkomu hins opinbera á næstunni, meðal annars með niðurfellingu sértækra efnahagsaðgerða. Stærsta aðildarfélag samtakanna vill hins vegar að aðgerðir til umbjóðenda þeirra verði framlengdar.

Hús atvinnulífsins í Borgartúni.
Hús atvinnulífsins í Borgartúni.
Auglýsing

Mik­il­vægt er að hið opin­bera legg­ist á eitt og auki aðhald í rík­is­rekstri á næstu árum, segja Sam­tök atvinnu­lífs­ins í umsögn sinni um fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar.

Aðhalds­leysið vand­inn

Í umsögn­inni, sem birt­ist á vef Alþingis í dag, sögðu sam­tökin að aðhalds­leysi væri vand­inn í rík­is­rekstri. Ekki væri að sjá með skýrum hætti í fjár­mála­stefnu að ráð­ist verði í neina hag­ræð­ingu eða aðhalds­að­gerðir á næstu árum, þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir fram­leiðslu­spennu í hag­kerf­inu á næsta ári.

Sam­kvæmt sam­tök­unum leiðir nið­ur­fell­ing sér­tækra aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar til minni fram­leiðslu­spennu, sem styður við pen­inga­stefn­una. Auk þess væri það mik­il­vægt að bæta und­ir­liggj­andi afkomu hins opin­bera með því að hamla útgjalda­aukn­ingu.

Auglýsing

Einnig vilja sam­tökin að fjár­veit­ingar rík­is­ins verði reglu­lega end­ur­metnar til að skoða hvort þær nái til­ætl­uðum árangri. Með því væri hægt að stuðla að auknu sam­hengi á milli mark­miða­setn­ingar ann­ars vegar og fjár­veit­inga og gagna­drif­inni ákvarð­ana­töku hins veg­ar.

Allir vinna fram­lengt

Sam­tök iðn­að­ar­ins, sem er langstærsta aðild­ar­fé­lag SA, köll­uðu eftir auknum útgjöldum hins opin­bera til bygg­ing­arfam­leiðslu og við­halds í gegnum fram­leng­ingu átaks­ins „allir vinna“ í umsögn sinni í síð­ustu fjár­lög­um.

Fjár­mála­ráðu­neytið var­aði hins vegar við slíkri fram­leng­ingu, þar sem það fæli í sér inn­spýt­ingu á fjár­magni í þegar þanið hag­kerfi.

Fram­leng­ing­unni var þó bætt við fjár­laga­frum­varpið eftir að efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis mældi með henni. Búist er við að afkoma rík­is­sjóðs verði sjö millj­örðum króna verri vegna henn­ar.

Í umsögn Sam­taka atvinnu­lífs­ins um fjár­mála­á­ætl­un­ina var minnst á að hag­spár og afkomu­spár hins opin­bera hefðu til­hneig­ingu til að verða of bjart­sýn­ar. Því til stuðn­ings bentu þau á að hag­vöxtur í Evr­ópu­sam­bands­löndum frá 1998 til 2019 var að með­al­tali pró­sentu­stigi minni en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir, en sam­kvæmt þeim er tregða til að aðlaga rekstr­ar­nið­ur­stöðu hins opin­bera að breyttum veru­leika, sem geti leitt til bjög­unar í átt að við­var­andi rekstr­ar­halla.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent