Saga Rauða barónsins gefin út á bók

Rauði baróninn - Saga umdeildasta knattspyrnudómara Íslandssögunnar er ný bók eftir fyrrverandi knattspyrnudómarann Garðar Örn Hinriksson. Safnað er fyrir útgáfunni á Karolina Fund.

Ferli Rauða barónsins lauk á sama stað og hann hófst, á Stokkseyrarvelli sumarið 2016, er hann dæmdi leik heimamanna gegn Afríku.
Ferli Rauða barónsins lauk á sama stað og hann hófst, á Stokkseyrarvelli sumarið 2016, er hann dæmdi leik heimamanna gegn Afríku.
Auglýsing

Í bók­inni Rauði bar­ón­inn – Saga umdeildasta knatt­pyrnu­dóm­ara Íslands­sög­unnar fer Garðar Örn Hin­riks­son yfir feril sinn sem knatt­spyrnu­dóm­ari, sem stóð yfir í um 30 ár. Safnað er fyrir útgáfu bók­ar­innar á Karol­ina Fund.

Sagan hefst á Stokks­eyri árið 1985 þegar Garð­ar, þá á fjórt­ánda ári, er spurður að því hvort hann hafi áhuga á því að prófa að vera línu­vörður í einum leik. Eftir það varð ekki aftur snú­ið. Hann stein­féll fyrir starf­inu. Þrettán árum síðar var Garðar orð­inn dóm­ari í efstu deild, eitt­hvað sem hann dreymdi um að verða en átti aldrei von á.

Örfáum árum síðar var hann svo orð­inn alþjóð­legur knatt­spyrnu­dóm­ari. Alls dæmdi Garðar 175 leiki í efstu deild karla og þrjá bik­ar­úr­slita­leiki – einn hjá stelp­unum og tvo hjá strák­un­um. Einnig var hann val­inn besti dóm­ari lands­ins þrisvar sinn­um.

Auglýsing

Ferli hans lauk á sama stað og hann hóf­st, á knatt­spyrnu­vell­inum á Stokks­eyri, árið 2016.

Hvernig varð hug­myndin að verk­efn­inu til?

Hún vakn­aði í raun á þeirri stundu er ég blés í flaut­una í síð­asta skiptið fyrir fimm árum síð­an. Ég fór strax í það að safna saman upp­lýs­ingum sem hefur tekið ágætis tíma enda var ég knatt­spyrnu­dóm­ari hátt í 30 ár. Það er frá mörgu að segja enda var margt sem gerð­ist innan sem utan vallar á þeim tíma og lang­aði mér til þess að segja mína sögu og gefa fólki smá inn­sýn inn í líf knatt­spyrnu­dóm­ar­ans, sem getur tekið á stund­um, en er oft­ast mjög skemmti­legt.

Hvað ertu að fjalla um í bók­inni?

Ég skipti þessu upp í nokkra hluta svona eins og um fót­bolta­leik væri að ræða. Ég byrja á Upp­hitun þar sem ég fer aðeins í upp­hafið og segi aðeins frá mér og mín­um. Síðan er það Fyrri Hálf­leikur þar sem ég tek hvert ár fyrir sig sem ég dæmdi og týni til það helsta.

Garðar Örn Hinriksson, hér fyrir miðju, dæmdi sinn síðasta leik árið 2016.

Í Seinni Hálf­leik fer ég yfir ýmis­legt, m.a. verstu mis­tök­in, óheið­ar­lega blaða­menn, erf­iða þjálf­ara og fleira. Eftir Leik fer ég í í það sem gerð­ist utan vall­ar, sem gat verið ansi skraut­legt.

Síðan enda ég á Leik­skýrsl­unni, þar sem fólk fær að tjá sig um mig sem knatt­spyrnu­dóm­ara og margt sem þar kemur í ljós sem mig grun­aði aldrei.

Saknar þú flaut­unn­ar?

Nei, í raun­inni ekki. Ég finn yfir­leitt ekki fyrir löngun til að taka hana upp aftur nema þegar ein­hver góður og mik­ill hasar er í gangi í leikjum sem ég er að horfa á í sjón­varp­inu. Það voru mínar upp­á­halds stundir í mínum leikj­um. Ég sakna þeirra stunda örlítið þó þær hafi ekki alltaf verið auð­veld­ar.

Hægt er að taka þátt í söfn­un­inni hér.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk