Samfylkingin mælist með 12,7 prósent fylgi í nýrri könnun Gallup á fylgi stjórnmálaflokka sem gerð var dagana 1-29. mars. Það er minnsta fylgi sem hún hefur mælst með í könnunum fyrirtækisins á þessu kjörtímabili.
Raunar þarf að fara til loka septembermánaðar 2017, um tveimur vikum eftir að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sprakk, til að finna mælingu á fylgi Samfylkingarinnar hjá Gallup sem er lægri. Þá mældist fylgi flokksins 9,7 prósent. Hæst reis fylgið haustið 2018 þegar 19,3 prósent landsmanna sögðust ætla að kjósa Samfylkinguna. Fylgið nú er rétt yfir kjörfylgi Samfylkingarinnar, sem fékk 12,1 prósent atkvæða í kosningunum 2017. Frá þessu er greint á vef RÚV.
Flokkurinn yrði samt sem áður næst stærsti flokkur landsins ef kosið yrði í dag. Sá sem mælist með mest fylgi er að venju Sjálfstæðisflokkurinn sem nýtur stuðnings 23 prósent landsmanna. Það yrði versta niðurstaða flokksins frá upphafi ef hún kæmi upp úr kjörkössunum en fylgið stendur í stað milli mánaða.
Framsókn einungis einu sinni mælst stærri á kjörtímabilinu
Vinstri græn tapa fylgi frá því í febrúar og mælast nú með 12,3 prósent stuðning. Það er töluvert frá þeim 16,9 prósentum sem flokkur forsætisráðherrans Katrínar Jakobsdóttur fékk í síðustu kosningum. Enginn þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi í dag hafa tapað jafn miklu fylgi á kjörtímabilinu og Vinstri græn.
Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna þriggja er 46,4 prósent og allt bendir til þess að sitjandi ríkisstjórn myndi falla ef kosið yrði í dag.
Níu flokkar mælast inni
Samkvæmt könnun Gallup myndi flokkunum sem næðu inn þingmanni fjölga úr átta í níu þar sem bæði Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkur Íslands mælast með um fimm prósent fylgi.
Píratar halda áfram að sýna stöðugleika í könnunum og mælast nú með 11,5 prósent fylgi, sem er aðeins minna en fyrir mánuði síðan.
Miðflokkurinn er sá flokkur sem bætir mestu við sig á milli mánaða og segjast nú 9,5 prósent kjósenda styðja hann. Það er sama prósenthlutfall og styður Viðreisn.
Í frétt RÚV um könnunina segir að yrðu þetta úrslit kosninganna í haust þá fengi Sjálfstæðisflokkur 15 þingmenn, Framsóknarflokkur, Samfylking, Vinstri græn og Píratar átta hver. Miðflokkurinn og Viðreisn fengju hvor um sig sex þingmenn, Flokkur fólksins þrjá og Sósíalistaflokkur Íslands fengi einn kjördæmakjörinn mann í Reykjavíkurkjördæmi norður, en næði ekki fimm prósenta þröskuldinum fyrir uppbótarmenn.
Miðað við þessa stöðu væri ómögulegt að mynda þriggja flokka ríkisstjórn þrátt fyrir að Samfylkingin, næst stærsti flokkur landsins, myndi draga til baka yfirlýsingu sína um að vinna ekki með stærsta flokknum, Sjálfstæðisflokki.
Heildarúrtakið í könnuninni, sem var netkönnun, var 9.856 manns sem valdir voru af handahófi og þátt tóku 53 prósent. Næst verður kosið til þings 25. september næstkomandi.