Samfylkingin, Píratar og Viðreisn ætla að fylgjast að við meirihlutamyndun í Reykjavík

Þrír flokkar úr fráfarandi meirihluta ætla að fylgjast að í komandi meirihlutaviðræðum í Reykjavík. Þeir eiga tvo möguleika á meirihlutamyndun en haldi samfylgd flokkanna þá eru engir aðrir mögulegir meirihlutar án þeirra í stöðunni.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Auglýsing

Sam­fylk­ing­in, Píratar og Við­reisn hafa ákveðið að fylgj­ast að í við­ræðum um myndun nýs meiri­hluta í Reykja­vík næstu daga. Frá þessu greindi Dagur B. Egg­erts­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar og borg­ar­stjóri, í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun. Flokk­arnir þrír mynd­uðu meiri­hluta ásamt Vinstri grænum á síð­asta kjör­tíma­bili en sá meiri­hluti féll í kosn­ing­unum á laug­ar­dag. 

Vinstri græn fengu ein­ungis fjögur pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum og Líf Magneu­dótt­ir, odd­viti flokks­ins, til­kynnti í gær að þau myndu ekki sækj­ast eftir því að vera í meiri­hluta á kom­andi kjör­tíma­bili í ljósi þeirrar nið­ur­stöðu.

Sam­fylk­ing­in, Píratar og Við­reisn hafa sam­tals níu borg­ar­full­trúa og geta því myndað góðan 13 manna meiri­hluta með Fram­sókn­ar­flokkn­um, sem vann mik­inn kosn­inga­sigur og fékk fjóra borg­ar­full­trúa, eða tólf manna meiri­hluta með Sós­í­alista­flokki Íslands og Flokki fólks­ins. Ekki kemur til greina að mynda meiri­hluta með Sjálf­stæð­is­flokki, stærsta flokknum í borg­inni, þar sem Sam­fylk­ing, Píratar og Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafa úti­lokað slíkt sam­starf.

Auglýsing
Ofangreint gerir það að verkum að eini raun­hæfi mögu­leiki Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að mynda meiri­hluta með Fram­sókn, Við­reisn og Flokki fólks­ins er ekki lengur til staðar miðað við orð Dags í morg­un.

Hildur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagð­ist þó ekki úti­loka sam­starf við neinn í Morg­un­út­varp­inu í morg­un. Hún gæti alveg hugsað sér að mynda meiri­hluta með Við­reisn, Flokki fólks­ins og Fram­sókn­ar­flokki, sem þó er ekki á borð­inu sem stend­ur. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar, sagð­ist reiðu­bú­inn að starfa með öllum og að hann væri til­bú­inn í sam­tal við alla. Engar við­ræður væru þó hafnar en hann og Dagur muni hitt­ast síðar í dag á fundi. Einar sagði að hann vildi líka ræða við Hildi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var ótví­ræður sig­ur­veg­ari borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna í Reykja­vík á Laug­ar­dag. Undir for­ystu Ein­ars Þor­steins­son­ar, fyrr­ver­andi frétta­manns og nýliða í póli­tík, náði flokk­ur­inn í 18,7 pró­sent atkvæða sem skil­aði honum fjórum borg­ar­full­trúum í stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins þar sem Fram­sókn hafði engan áður. Auk Fram­sóknar bættu Píratar og Sós­í­alista­flokkur Íslands við sig manni og fylgi en aðrir flokkar stóðu annað hvort í stað í fjölda borg­ar­full­trúa eða töp­uðu slík­um.

Mest tap­aði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, 6,3 pró­sentu­stigum og tveimur mönn­um, og Sam­fylk­ingin kom þar skammt á eftir með litlu minna tap og missti sama fjölda borg­ar­full­trúa. Við­reisn tap­aði öðrum borg­ar­full­trúa sínum og Mið­flokk­ur­inn sínum eina.

Sam­an­lagt fylgi frá­far­andi meiri­hluta dróst saman og varð ein­ungis 41,1 pró­sent. Það skil­aði þeim ell­efu borg­ar­full­trú­um, eða einum minna en þarf til að mynda meiri­hluta. Þetta er orðið nokkuð þekkt þróun í Reykja­vík en allir meiri­hlutar sem setið hafa frá árinu 2006 hafa fallið í næstu kosn­ingum á eft­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent