Samkeppniseftirlitið ekki haft aðkomu að rannsókn á dótturfélagi Eimskips í Danmörku

Dönsk samkeppnisyfirvöld staðfesta að húsleit hafi farið fram hjá dótturfélagi Eimskips í Danmörku en vilja að öðru leyti ekki tjá sig um rannsókn málsins. Ekki hefur verið óskað eftir aðstoð Samkeppniseftirlitsins hér á landi við rannsóknina.

Eimskip
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið á Íslandi hefur ekki haft neina aðkomu eða verið dönskum sam­keppn­is­yf­ir­völdum innan handar í tengslum við rann­sókn á dótt­ur­fé­lagi Eim­skips í Dan­mörku sem snýr að stærri rann­sókn á hátt­semi í land­flutn­ingum í Dan­mörku þar sem grunur leikur á að fyr­ir­tækið hafi brotið gegn dönskum sam­keppn­is­lög­um. .

Þetta kemur fram í fyr­ir­spurn Kjarn­ans til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en í því segir jafn­framt að það sé í höndum danskra sam­keppn­is­yf­ir­valda að „ákveða hvort þau leita aðstoðar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu á grund­velli þess sam­starfs sem mót­ast hefur á milli nor­rænna og evr­ópskra sam­keppn­is­eft­ir­lita“.

Eim­­skip sendi frá sér tvær til­­kynn­ingar til Kaup­hallar á mánu­dags­kvöld. Í annarri þeirra er greint frá því að á sunnu­dag hafi danska sam­keppn­is­eft­ir­litið fram­­kvæmt hús­­leit í Ála­­borg hjá dönsku dótt­­ur­­fé­lagi Eim­­skip Hold­ing B.V., sem er í eigu Eim­­skipa­­fé­lags Íslands hf., á grund­velli dóms­úr­­skurð­­ar.

Í til­kynn­ing­unni segir að hús­­leitin snúi að „starf­­semi Atl­antic Truck­ing sem er hluti af Eim­­skip Den­­mark A/S og er hluti af rann­­sókn á hátt­­semi í land­­flutn­ingum í Dan­­mörku og tók til fleiri félaga á þeim mark­aði. Til­­­gangur hús­­leit­­ar­innar er að rann­saka hvort brotið hafi verið gegn ákvæðum danskra sam­keppn­islaga.

Auglýsing
Dótt­ur­fé­lagið vinnur að því að veita dönskum sam­keppn­is­yf­­ir­völdum aðgang að umbeðnum upp­­lýs­ing­­um. Eim­­skipa­­fé­lag Íslands hf. hefur ekki ástæðu til að ætla að brotið hafi verið gegn dönskum sam­keppn­is­lögum í starf­­semi Atl­antic Truck­ing sem hefur um 5% mark­aðs­hlut­­deild í gáma­­flutn­ingum á þessum mark­að­i.“

Stað­festa ekki að hús­leitin sé hluti af stærri rann­sókn á land­flutn­ingum

Danska sam­keppn­is­eft­ir­litið stað­festir í sam­tali við Kjarn­ann að hús­leit hafi verið gerð hjá Atl­antic Truck­ing en vill ekki stað­festa að hús­leitin teng­ist stærri rann­­sókn á hátt­­semi í land­­flutn­ingum í Dan­­mörku líkt og full­yrt er í til­kynn­ingu Eim­skips. Þar sem rann­sóknin stendur enn yfir vill danska Sam­keppn­is­eft­ir­litið ekki veita frek­ari upp­lýs­ingar um rann­sókn máls­ins, hversu umfangs­mikil hún er eða hvenær megi búast við að henni ljúki.

Seinni til­kynn­ing sem Eim­skip sendi frá sér á mánu­dags­kvöld snýr að sölu Eim­skips á Goða­­foss og Lax­­foss, kom upp á yfir­­­­­borðið eftir umfjöllun Kveiks um það í sept­­em­ber 2020.

Þá var sagt frá því að Eim­­­skip hefði selt skipin tvö til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­­­­­­hæfir sig í að vera milli­­­­­­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­­­­­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­­­­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­­­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­­­­­ari en í Evr­­­­­­­ópu. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent