Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segist enn sannfærðari en áður um að afgerandi vísbendingar um að lögbrot hafi átt sér stað sölu á 22,5 prósent hlut ríkisins í Íslandsbanka eftir að hafa lesið minnisblað sem LOGOS gerði fyrir Bankasýslu ríkisins. Í minnisblaðinu er komist að þeirri niðurstöðu að engin lög hafi verið brotin. LOGOS, sem vann minnisblaðið, varð ráðið sem innlendur lögfræðilegur ráðgjafi Bankasýslunnar í tengslum við sölumeðferðina á hlutnum í Íslandsbanka 18. febrúar, en hluturinn í bankanum var seldur með tilboðsfyrirkomulagi þann 22. mars. Minnisblað hennar fjallar því um lögmæti sölumeðferðar sem stofan vann sjálf að.
Kristrún segir í stöðuuppfærslu á Facebook að minnisblaðið sé augljóst viðbragð við grein sem hún birti á Vísi í byrjun maí með fyrirsögninni „Afgerandi vísbendingar um lögbrot“. „Minnisblaðið á að svara röksemdarfærslunni sem birtist í grein minni um að jafnræði hafi verið brotið við söluna á bankanum. Við lestur þess kemur hins vegar í ljós að engar nýjar upplýsingar er þar að finna. Engin rök sem hafa ekki nú þegar heyrst frá Bankasýslunni og fjármálaráðherra. Aðeins rök sem einmitt þóttu ótrúverðug og ég rakti í greininni.“
Ríkisstjórnin sé að vonast til að málið gleymist
Hún segir það líka athyglisvert að Bankasýslan, sem sé opinber stofnun á fjárlögum sem hafi starfsmenn, hafi séð ástæðu til að leita til utanaðkomandi lögfræðings til að vinna minnisblað til að svara grein hennar. „Þar sem engar nýjar upplýsingar eða röksemdarfærslur koma fram. Margir hljóta að spyrja sig hvað var greitt fyrir þessa þjónustu. Ef mönnum er alvara með að fara í saumana á þessu máli þá er það ekki gert með aðkeyptum lögfræðiálitum sem bæta engu við málflutninginn og er komið með forgangi til ákveðinna fjölmiðla til forsíðubirtingar.“
Kristrún segir að nú séum við að koma út úr sveitarstjórnarkosningum og að ríkisstjórnin sé að vona að bankasölumálið gleymist. „Eða ef ekki, að það snúist bara um Bankasýsluna, ekki fjármálaráðherra. Eins og rakið er ítarlega í greininni sem þurfti lögfræðistofu til að svara er Ríkisendurskoðandi ekki réttur farvegur fyrir málið. Um það á málið að snúast núna. Þetta nýjasta útspil Bankasýslurnar er ekki til að auka traustið, og er lýsandi fyrir það hvernig viðbrögðin hjá Bankasýslunni og ríkisstjórninni hafa verið í þessu máli: því er ítrekað haldið fram að almenningur skilji bara ekki hvað málið snúist um, hér sé aðeins verið að þyrla upp moldviðri. En þegar kemur að því að efnislega bregðast við málefnalegri gagnrýni hefur ekkert komið sem dregur úr efasemdum um að ferlið hafi staðist lög.“