Segir marga hljóta að spyrja hvað LOGOS fékk greitt fyrir minnisblað um Bankasýsluna

Þingmaður Samfylkingar segir að ef mönnum sé alvara um að fara í saumana á sölunni á Íslandsbanka sé það ekki ekki gert með aðkeyptum lögfræðiálitum sem bæta engu við málflutninginn og er komið með forgangi til ákveðinna fjölmiðla til forsíðubirtingar.“

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, seg­ist enn sann­færð­ari en áður um að afger­andi vís­bend­ingar um að lög­brot hafi átt sér stað sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka eftir að hafa lesið minn­is­blað sem LOGOS gerði fyrir Banka­sýslu rík­is­ins. Í minn­is­blað­inu er kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að engin lög hafi verið brot­in. LOGOS, sem vann minn­is­blað­ið, varð ráðið sem inn­­­lendur lög­­fræð­i­­legur ráð­gjafi Banka­­sýsl­unnar í tengslum við sölu­­með­­­ferð­ina á hlutnum í Íslands­­­banka 18. febr­­ú­ar, en hlut­­ur­inn í bank­­anum var seldur með til­­­boðs­­fyr­ir­komu­lagi þann 22. mars. Minn­is­­blað hennar fjallar því um lög­­­mæti sölu­­með­­­ferðar sem stofan vann sjálf að. 

Kristrún segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að minn­is­blaðið sé aug­ljóst við­bragð við grein sem hún birti á Vísi í byrjun maí með fyr­ir­sögn­inni „Af­ger­andi vís­bend­ingar um lög­brot“. „Minn­is­blaðið á að svara rök­semd­ar­færsl­unni sem birt­ist í grein minni um að jafn­ræði hafi verið brotið við söl­una á bank­an­um. Við lestur þess kemur hins vegar í ljós að engar nýjar upp­lýs­ingar er þar að finna. Engin rök sem hafa ekki nú þegar heyrst frá Banka­sýsl­unni og fjár­mála­ráð­herra. Aðeins rök sem einmitt þóttu ótrú­verðug og ég rakti í grein­inn­i.“

Rík­is­stjórnin sé að von­ast til að málið gleym­ist

Hún segir það líka athygl­is­vert að Banka­sýslan, sem sé opin­ber stofnun á fjár­lögum sem hafi starfs­menn, hafi séð ástæðu til að leita til utan­að­kom­andi lög­fræð­ings til að vinna minn­is­blað til að svara grein henn­ar. „Þar sem engar nýjar upp­lýs­ingar eða rök­semd­ar­færslur koma fram. Margir hljóta að spyrja sig hvað var greitt fyrir þessa þjón­ustu. Ef mönnum er alvara með að fara í saumana á þessu máli þá er það ekki gert með aðkeyptum lög­fræði­á­litum sem bæta engu við mál­flutn­ing­inn og er komið með for­gangi til ákveð­inna fjöl­miðla til for­síðu­birt­ing­ar.“

Auglýsing
Þar vísar Kristrún til þess að almanna­teng­ill sendi minn­is­blaðið á fjöl­miðla fyrir hönd Banka­sýslu rík­is­ins klukkan sex í morg­un, en þá hafði for­síðu­frétt upp úr því þegar birst í Morg­un­blað­inu. Blaðið fékk því minn­is­blaðið á undan öðrum fjöl­miðl­u­m. 

Kristrún segir að nú séum við að koma út úr sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og að rík­is­stjórnin sé að vona að banka­sölu­málið gleym­ist. „Eða ef ekki, að það snú­ist bara um Banka­sýsl­una, ekki fjár­mála­ráð­herra. Eins og rakið er ítar­lega í grein­inni sem þurfti lög­fræði­stofu til að svara er Rík­is­end­ur­skoð­andi ekki réttur far­vegur fyrir mál­ið. Um það á málið að snú­ast núna. Þetta nýjasta útspil Banka­sýsl­urnar er ekki til að auka traust­ið, og er lýsandi fyrir það hvernig við­brögðin hjá Banka­sýsl­unni og rík­is­stjórn­inni hafa verið í þessu máli: því er ítrekað haldið fram að almenn­ingur skilji bara ekki hvað málið snú­ist um, hér sé aðeins verið að þyrla upp mold­viðri. En þegar kemur að því að efn­is­lega bregð­ast við mál­efna­legri gagn­rýni hefur ekk­ert komið sem dregur úr efa­semdum um að ferlið hafi stað­ist lög.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent