Segist hafa fengið uppsagnarbréf frá Eflingu kl. 2 um nótt

Starfsmaður Eflingar sem verið hefur í veikindaleyfi undanfarna mánuði greinir frá því að hún hafi fengið uppsagnarbréf kl. 2 í nótt, frá lögmanni úti í bæ. Hún segir vanvirðinguna við starfsfólk félagsins fordæmalausa.

Starfsmaður Eflingar sem er í veikindaleyfi segir að hún hafi fengið uppsagnarbréf sent frá lögmanni kl. 2 í nótt.
Starfsmaður Eflingar sem er í veikindaleyfi segir að hún hafi fengið uppsagnarbréf sent frá lögmanni kl. 2 í nótt.
Auglýsing

Vala Árna­dótt­ir, starfs­maður Efl­ing­ar, segir frá því á Face­book-­síðu sinni í morgun að hún hafi fengið upp­sagn­ar­bréf frá lög­manni úti í bæ um kl. 2 í nótt. Hún er í veik­inda­leyfi í kjöl­far slyss og var búin að tjá Efl­ingu að hún myndi ekki snúa aftur til starfa hjá stétt­ar­fé­lag­inu, en mán­uði eftir að hún lenti í slys­inu síð­asta sumar var henni til­kynnt að félags- og þró­un­ar­svið Efl­ing­ar, sem hún starf­aði hjá sem teym­is­stjóri félaga­mála, hefði verið lagt niður „vegna skipu­lags­breyt­inga” og afþakk­aði Vala starf á nýju sviði.

Vala seg­ist vegna sinna veik­inda og vegna fjöl­skyldustengsla við Sól­veigu Önnu ekk­ert hafa viljað tjá sig um mál­efni Efl­ingar út á við til þessa, en segir að nú sé nóg kom­ið.

Hún segir að stuttu eftir að sviðið sem hún starf­aði hjá hafi verið lagt niður hafi „skrif­stofa félaga­mála“ verið stofnuð og Viðar Þor­steins­son settur þar yfir, en skrif­stofa hans og starfs­fólk hafi þjónað sama til­gangi og félags- og þró­un­ar­svið gerði áður, þannig að skipu­lags­breyt­ingin hafi verið nán­ast engin og ekki til neins fallin nema að að „losa sig við sumt starfs­fólk“ og „setja Viðar yfir ein­ingu sem hann myndi geta sætt sig við eftir að fjölda kvart­anna í hans garð gerðu honum erfitt um vik að starfa áfram sem fram­kvæmda­stjóri.“

Auglýsing

Vala seg­ist hafa stutt þær konur sem „kvört­uðu undan fram­komu og ein­elt­istil­burðum Við­ars“ og segir að hún hafi beðið Sól­veigu Önnu um að standa með þeim líka, fyrir ári síð­an. Við­brögðin hafi hins vegar verið þau að segja upp sviðs­stjóra, sem Sól­veig og Viðar hafi talið að ætti upp­tökin að kvört­un­unum í garð Við­ars.

„Ég reyndi að biðla til hennar að standa með þeim konum sem alltaf hefðu staðið með henni, konur sem komu til starfa hjá Efl­ingu til að styðja við hennar bar­áttu og ég trúði því ekki að hún myndi bregð­ast þeim, en allt kom fyrir ekki,“ skrifar Vala og bætir við að ekki hafi verið um ein­hverja „starfs­menn fyrri stjórn­ar” að ræða eins og Sól­veig Anna og Viðar hafi viljað halda fram. Þau hafi ráðið þessar konur sjálf.

Auk þess heldur hafi ekki verið um „plott fyrrum trún­að­ar­manna Efl­ingar að ræða né „leifar af gam­alli vinnu­staða­menn­ingu Efl­ing­ar“.

„Þetta er allt ein­fald­lega lygi og hefur það margoft komið í ljós bæði í við­tölum við starfs­menn og í úttekt sál­fræði­stofu á vinnu­staða­menn­ing­unn­i,“ skrifar Vala, sem segir að eng­inn græði á „þeim farsa sem hófst í lok októ­ber í fyrra, ekki starfs­menn og ekki félags­menn Efl­ing­ar.“

„Ef ein­hver vinnu­staður annar hefði til­kynnt um hóp­upp­sagnir til að svo end­ur­ráða starfs­fólk á lægri kjörum þá værum við hjá Efl­ingu fyrst til að verja þau og þeirra rétt­indi, ef ein­hver annar vinnu­staður hefði ráð­ist á trún­að­ar­menn sína og starfs­menn í fjöl­miðlum þá værum fyrst til að for­dæma það og taka upp hansk­ann fyrir það starfs­fólk,“ skrifar Vala, sem seg­ist „djúpt von­svikin með stjórn og trún­að­ar­ráð Efl­ingar og öll þau sem í blindni trúa eft­irá­skýr­ingum sem stand­ast ekki skoð­un.“

„Ég var stolt af því að starfa fyrir Efl­ingu og trúði því að okkar bar­átta væri rétt­lát og árang­urs­rík fyrir félags­menn. Van­virð­ing við okkur starfs­fólkið er for­dæma­laus,“ skrifar Vala.

Ég er starfs­maður Efl­ingar í veik­inda­leyfi eftir að ég lenti í slysi síð­asta sum­ar. Í nótt kl 2 fékk ég upp­sagn­ar­bréf...

Posted by Vala Arna­dottir on Wed­nes­day, April 13, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent