Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, segist geta séð fyrir sér eins konar „premium“ áskrift af Vísi sem veiti aðgang að enn meira efni en stendur öðrum notendum til boða. Það sé samt sem áður mikilvægt að miðillinn haldi áfram að sinna hlutverki sínu sem almannaþjónusta. Þetta kemur fram í viðtali við Heiðar í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um efnahagsmál og viðskipti, í dag.
Sýn er fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki sem er skráð á markað og stærstu eigendur þess eru íslenskir lífeyrissjóðir. Árið 2017 keypti Sýn stóran hluta af fjölmiðlum 365 miðla – Vísi, Stöð 2 og fjölda útvarpsstöðva – og víkkaði þar með rekstur sinn verulega. Mikill tekjusamdráttur hefur orðið hjá þeim fjölmiðlum síðan að Sýn keypti þá en frá lokum árs 2018 og til síðustu áramóta hafa tekjur Sýnar vegna fjölmiðlunar lækkað um rúmlega einn milljarð króna.
Heiðar segir í viðtalinu að samþættingin hafi ekki gengið sem skyldi en að viðskiptahugmyndin á bakvið sameiningu fjarskipta og fjölmiðla sé enn góð og gild. Lækkun áskriftaverðs fyrir sjónvarpsstöðvar Sýnar, sem reknar eru undir merkjum Stöðvar 2, hafi til að mynda skilað sér í mikilli fjölgun áskrifenda og ákvörðun um að læsa fréttatíma Stöðvar 2 hafi gert það að verkum að áskrifendum hafi fjölgað í þúsundatali.
Ein hugmynd að setja Vísi á bakvið greiðslugátt
Í viðtalinu er Heiðarspurður hvort það sé í pípunum að setja til dæmis hluta af Vísi.is, sem hefur á stundum verið mest lesna fréttavef landsins á þessu ári, á bakvið greiðslugátt þannig að notendur þurfi að greiða fyrir efni. Heiðar segir það vera eina hugmynd og að nánast allir fjölmiðlar á Norðurlöndunum séu með efni á bakvið greiðslugátt. Hérlendis eru tveir stærstu veffréttamiðlarnir, Vísir og mbl.is, hins vegar með opinn aðgang að öllu sínu efni. „Ég get séð fyrir mér eins konar „premium“ áskrift að Vísi sem veitir aðgang að enn meira efni og sníður viðmótið eftir höfði neytandans.“
Heiðar segir í viðtalinu að hann telji Vísi eiga mikið inni og á síðasta ársfjórðungi hafi auglýsingatekjur miðilsins aukist um 15 prósent þegar miðað er við sama tímabil í fyrra.
Styrkjafrumvarp afgreitt út úr nefnd
Heiðar ræðir einnig um stöðu einkarekinna fjölmiðla hérlendis og segir að það sé ótrúlegt að stjórnvöld hafi ekki gripið til aðgerða vegna ásóknar samfélagsmiðla í auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla, en samfélagsmiðlafyrirtækin greiða enga skatta af þeirri tekjuöflun hérlendis. Um er að ræða milljarðatilfærslu á tekjum úr landi sem hefur veikt rekstrargrundvöll einkarekinna íslenskra fjölmiðla verulega. Heiðar segir það ótrúlegt að stjórnvöld hafi ekki kippt þessu ástandi í liðinn þar sem þau hafi skýra hagsmuni af því að vernda íslenska fjölmiðlun.
Þess í stað sé allur fókus á því að koma á fót styrkjakerfi fyrir fjölmiðla, sem í felst að dreifa 400 milljónum króna á milli allra þeirra sem keppa við RÚV í miðlun á fréttatengdu efni. Heiðar segir það frumvarp ekki bjarga neinu. „Það er plástur á sár sem stækkar og stækkar.“
Mælt var fyrir frumvarpi um styrkjakerfið í desember í fyrra og það hefur verið til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd alla tíð síðan. Frumvarpið var afgreitt út úr nefndinni í gær og álit meirihluta hennar, sem stjórnarþingmenn skipa, liggur fyrir. Nú er unnið að minnihlutaáliti á meðal stjórnarandstöðuþingmanna og von er á málinu til annarrar umræðu í þinginu innan tíðar, en verði það að lögum á að klára móttöku umsókna um styrki í þessum mánuði.
Til viðbótar við þessa vinnu var í febrúar myndaður starfshópur stjórnarþingmanna sem ætlað var að sætta ólík sjónarmið um starfsemi RÚV. Hópurinn átti að rýna lög um RÚV og gera tillögur að breytingum sem líklegar eru til að sætta ólík sjónarmið um starfsemi og hlutverk þess.
Fulltrúar flokkanna eru Kolbeinn Óttarsson Proppé, fulltrúi Vinstri grænna sem er jafnframt formaður hópsins, Silja Dögg Gunnarsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins, og Páll Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi útvarpsstjóri.
Ráðgert var að þau myndu ljúka störfum eigi síðar en 31. mars en hópurinn hefur enn ekki lokið störfum. Samkvæmt heimildum Kjarnans stóð til að hann myndi funda í þessari viku og skila svo af sér sér niðurstöðu.