Segja niðurskurð á framlögum færa fagsjóði listgreina á sama stað og þeir voru 2014

Bandalag íslenskra listamanna vill að starfslaun listamanna verði hækkuð, að niðurskurður í framlögum til Kvikmyndasjóðs verði dreginn til baka, að „andlitslaust“ skúffufé ráðuneytis verði útskýrt og að fé verði eyrnarmerkt Þjóðaróperu.

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Auglýsing

Banda­lag íslenskra lista­manna (BÍL) telur að bæta þurfi fag­sjóðum list­greina upp það tap sem fyr­ir­hugað er í fjár­lögum og færa þeim sjóðum í það minnsta það sem þeir höfðu til ráð­stöf­unar 2021. Sé vísi­tala reiknuð inn í þessum nið­ur­skurði eru sjóð­irnir á pari við það sem þeir höfðu til ráð­stöf­unar 2014.

Þá telur banda­lagið að lista­manna­laun þurfi að hækka í 560 þús­und krónur til að þau haldi í við launa­vísi­tölu og mán­uðum sem úthlutað er þurfi að fjölga í 2.700 úr þeim 1.600 sem hefur verið óbreyttur fjöldi frá árinu 2014. Það myndi þýða að 450 millj­ónum króna þyrfti að bæta í sjóð­inn. 

BÍL vill að 30 pró­sent skerð­ing á fram­lögum í Kvik­mynda­sjóð verði dregin til baka enda telur banda­lagið hana vera í and­stöðu við sam­þykkta kvik­mynda­stefnu. Sjóð­ur­inn fékk 1.527 millj­ónir króna á fjár­lögum þessa árs en á að fá 1.094 millj­ónir króna á næsta ári. Ef skerð­ingin yrði dregin til baka myndi það þýða við­bót­ar­kostnað upp á 433 millj­ónir króna á ári.  

Þetta kemur fram í umsögn BÍL um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp. 

Vilja skýr­ingar á „and­lits­lausu“ ráð­stöf­un­arfé

Banda­lagið vill líka að gerð verði grein fyrir því fjár­magni sem í dag er stærsti útgjalda­liður samn­inga og styrkja við lista menn­ingu. Það kallar þennan útgjalda­lið, sem er 1,2 millj­arðar króna í fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi og hækkar um tíu pró­sent milli ára, „and­lits­laust“ ráð­stöf­un­arfé mennta- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins. 

Auglýsing
Að lokum vill BÍL að fé verði eyrn­ar­merkt til und­ir­bún­ing stofn­unar Þjóð­ar­óp­eru. Í umsögn banda­lags­ins segir að nefndir á vegum ráðu­neyt­is­ins hafi á und­an­förnum árum unnið að und­ir­bún­ingi Þjóð­ar­óp­eru og að stofnun hennar hafi verið á verk­efna­lista þess sem kynntur var í Hörpu í upp­hafi starfs­tíma sitj­andi rík­is­stjórn­ar. „Sú stað­reynd að óperan sem list­form skuli ekki eiga stöðugri starfs­grund­völl en raun ber vitni gerir menn­ing­ar­lands­lag okkar fátæk­legra en ásætt­an­legt er. Við eigum gríð­ar­legan fjölda hæfi­leika­fólks í grein­inni sem flest starfar erlend­is, því tæki­færin og óperu­um­hverfið hér heima býður ekki upp á að þeir lista­menn starfi hér nema stöku sinn­um. Fyrir liggja hug­myndir og vinna í ráðu­neyt­inu til að hrinda þessu í fram­kvæmd og því þarf að skapa rými í fjár­lögum rík­is­ins.“

End­ur­greiðslur auknar en fram­lög til Kvik­mynda­sjóð skorin niður

Stjórn­völd ákváðu fyrr á þessu ári að hækka end­ur­greiðslu­hlut­fall fyrir stærri kvik­mynda­verk­efni úr 25 í 35 pró­sent. Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu eiga slíkar end­ur­greiðsl­ur, sem fara að uppi­stöðu til erlendra fram­leið­enda sem ákveða að vinna verk­efni sín á Íslandi, að hækka úr 1.453 millj­ónum króna í ár í 1.724 millj­ónir króna á næsta ári.

Á árunum 2021 og 2022 voru 412 millj­ónir króna, á hvoru ári um sig, settar inn í Kvik­mynda­sjóð auka­lega við það sem áður hafði verið ákveð­ið. Auk þess var 98 milljón króna við­bót­ar­fram­lag veitt til Kvik­mynda­mið­stöðvar vegna sér­staks tíma­bund­ins fjár­fest­ing­ar­átaks rík­is­stjórn­ar­innar til að sporna við nið­ur­sveiflu í efna­hags­líf­inu í kjöl­far heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunn­ar. 

Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi næsta árs verða þessar við­bót­ar­greiðslur ekki lengur í boði þar sem rík­is­stjórnin er að vinna gegn þenslu og verð­bólgu í hag­kerf­inu. Þess vegna verður fram­lag rík­is­sjóðs í Kvik­mynda­sjóð dregið saman um næstum 30 pró­sent milli ára og fram­lög til Kvik­mynda­mið­stöðvar um rúman fjórð­ung.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent