Sendiráð Íslands í Moskvu búið að gefa út 125 áritanir til rússneskra ferðamanna frá innrás

Frá því að rússneskur herafli réðist inn í Úkraínu í febrúar og fram í byrjun september veitti íslenska sendiráðið í Moskvu 125 rússneskum ferðamönnum skammtímaáritanir inn á Schengen-svæðið. Það er einungis brot af fjöldanum sem fékk áritanir árið 2019.

Sendiráð Íslands í Moskvu.
Sendiráð Íslands í Moskvu.
Auglýsing

Frá inn­rás rúss­neska hers­ins í Úkra­ínu 24. febr­úar og fram til 8. sept­em­ber gaf sendi­ráð Íslands í Moskvu út 125 skamm­tíma­á­rit­anir inn á Schen­gen-­svæðið til rúss­neskra rík­is­borg­ara. Þetta kemur fram í skrif­legu svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að hafa beri í huga að þessi tala jafn­gildi ekki þeim fjölda rúss­neskra ferða­manna sem kann að hafa komið til Íslands á þessu tíma­bili, m.a. vegna þess að ein­hverjir ferða­menn sem hafa haft gilda áritun til ann­ars Schen­gen-­ríkis gætu hafa haft við­dvöl hér á landi.

Fjöldi útgef­inna árit­ana frá þessu sama tíma­bili árið 2019, síð­asta árið áður en COVID-far­ald­ur­inn skall á, en þá gaf sendi­ráð Íslands í Moskvu út alls 2.167 skamm­tíma­á­rit­anir inn á Schen­gen-­svæð­ið.

Sum Schen­gen-­ríki ætla að loka á rúss­neska ferða­menn

Á und­an­förnum vikum hefur verið lagt til á vett­vangi Evr­ópu­sam­bands­ins að gera það bæði erf­ið­ara og dýr­ara fyrir rúss­neska ferða­menn að ferð­ast til Evr­ópu, en póli­tískur vilji var til þess á utan­rík­is­ráð­herra­fundi sam­bands­ins sem fram fór 31. ágúst síð­ast­lið­inn.

Í kjöl­farið lagði fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins fram til­lögu þann 6. sept­em­ber um að gild­andi samn­ingi við Rúss­land um útgáfu Schen­gen-á­rit­ana yrði rift. Sam­kvæmt umfjöllun vefrits­ins Schen­gen­Visa­Info fela til­lög­urnar í sér að rúss­neskir ferða­menn munu þurfa að greiða meira fyrir árit­an­ir, 80 evrur í stað 35 evra áður, hámarks­tím­inn sem umsóknir eiga að taka verði lengdur úr 10-15 dögum í 45 daga, erf­ið­ara verði að fá árit­anir sem gilda til fleiri en einnar ferðar inn á Schen­gen-­svæðið og umsækj­endur þurfi að fram­vísa fleiri gögn­um.

Auglýsing

Nokkur ríki hafa ákveðið að ganga lengra, og frá og með 19. sept­em­ber ætla Eystra­salts­ríkin þrjú, Eist­land, Lett­land og Litá­en, auk Pól­lands, að hætta tíma­bundið að afgreiða vega­bréfs­á­rit­anir inn á Schen­gen-­svæðið til rúss­neskra ferða­manna og meina Rússum aðgang að ríkj­un­um.

Finnskar sendi­skrif­stofur afgreiða 10 pró­sent af því sem þær áður gerðu

Finn­land hefur líka þegar gripið til þess ráðs að fækka útgefnum vega­bréfs­á­rit­unum til rúss­neskra borg­ara um 90 pró­sent, og hafa sendi­skrif­stofur Finn­lands ein­ungis afgreitt um 100 umsóknir um Schen­gen-á­rit­anir frá 1. sept­em­ber. Áður en þessar hömlur voru settar á afgreiðslu umsókna þaðan voru um 1.000 manns að fá árit­anir þar á degi hverj­um. Rússar geta ein­ungis sótt um árit­anir hjá finnsku sendi­skrif­stof­unum á mánu­dög­um.

Pekka Haavisto, utan­rík­is­ráð­herra Finn­lands, útskýrði ákvörðun stjórn­valda með þeim hætti að Finn­land vildi ekki verða við­komu­staður rúss­neskra ferða­manna sem vildu kom­ast til ann­arra ríkja.

„Þeir koma til Helsinki-flug­vallar og fara beint í frí ann­ars stað­ar. Það er ekki hlut­verk sem Finn­land vill gegna,“ sagði Haavisto við finnska rík­is­mið­il­inn Yle.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent