Sér dreift eignarhald fyrir sér sem leið til sátta um sjávarútveg

Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík viðrar í dag hugmynd um að þrengja að hámarksaflahlutdeild þeirra sjávarútvegsfyrirtækja sem kjósa að vera ekki skráð á hlutabréfamarkað.

Friðjón R. Friðjónsson frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Friðjón R. Friðjónsson frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Auglýsing

Frið­jón R. Frið­jóns­son, fram­bjóð­andi í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, segir í grein í Morg­un­blað­inu í dag að ein leið til að auka sátt um sjáv­ar­út­vegs­mál á Íslandi væri að skrá fleiri sjáv­ar­út­vegs­fé­lög á hluta­bréfa­markað og um leið þrengja að hámarks­afla­hlut­deild þeirra félaga sem ekki væru skráð á mark­að.

Sam­kvæmt hug­mynd Frið­jóns væri gengið út frá því að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem „lúta aðhaldi og gagn­sæis­kröfu aðal­l­ista Kaup­hall­ar­inn­ar“ mættu halda 12 pró­senta hámark­inu eða jafn­vel hækka það. Um leið segir Frið­jón að setja þyrfti „skýrar reglur um hvað telj­ist tengdir aðil­ar“ og jafn­vel setja kvaðir um að hluti bréfa félag­anna þurfi að vera í dreifðri eign sam­kvæmt fyr­ir­fram­skil­greindu lág­marki.

„Þannig yrði eina leiðin fyrir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki til að ná veru­legri stærð­ar­hag­kvæmni að vera í dreifð­ari eign­ar­að­ild en nú er og lytu þau þá síður duttl­ungum eða ákvörð­unum ein­staka eig­enda,“ skrifar Frið­jón.

Hann segir að sjáv­ar­út­vegur á Íslandi eigi að vera stolt lands og þjóð­ar.

„Til að svo megi verða þurfa að verða breyt­ing­ar. Atburðir síð­ustu daga og miss­era sýna það ber­sýni­lega. Við þurfum að vera opin fyrir breyt­ing­um, opin fyrir að bæta und­ir­stöðu­at­vinnu­veg­inn og opin fyrir að gera Ísland betra,“ skrifar Frið­jón, sem er mið­stjórn­ar­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum og fram­kvæmda­stjóri ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins KOM, í grein sinni.

Við­reisn og fleiri lögðu fram frum­varp um skrán­ing­ar­skyldu

Hug­myndir um dreift eign­ar­hald sjáv­ar­út­vegs­fé­laga með það að augna­miði að auka sátt um atvinnu­grein­ina og nýt­ingu auð­lind­ar­innar í sam­fé­lag­inu eru ekki nýjar af nál­inni.

Auglýsing

Á þessu kjör­tíma­bili hefur þing­flokkur Við­reisnar auk þing­manna Pírata og Sam­fylk­ingar lagt fram frum­varp sem fól í sér að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem hefðu meira en 1 pró­sent af heild­ar­afla á sínum höndum þyrftu að skrást á hluta­bréfa­mark­að. Ef fyr­ir­tæki réðu yfir 8-12 pró­sentum heild­ar­afla­hlut­deildar gætu ein­stakir hlut­hafar og aðilar honum tengdir ekki farið með meira en 10 pró­sent hluta­fjár eða atkvæð­is­rétt­ar.

Segja má að hug­myndin sem Frið­jón útlistar í Morg­un­blað­inu í dag gangi nokkuð skemur en frum­varp Við­reisnar og ann­arra, en hugs­unin er í grunn­inn svipuð — að tryggja aukið gagn­sæi í grein­inni með skrán­ingu á mark­að.

Skömmu eftir að Namib­íu­málið svo­kallað kom upp á yfir­borðið í nóv­em­ber 2019 sagði Magnús Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hall­ar­inn­ar, að fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi gætu haft mikið gagn af skrán­ingu á mark­að.

„Þessi tog­steita milli myndi ég segja, og sem hefur verið við líði í nokkuð lengi milli sjáv­ar­út­veg­ar­ins og almenn­ings, ég held að skrán­ing á markað og dreifð eign­ar­að­ild almenn­ings að þessum fyr­ir­tækjum verði svona grund­völlur sáttar um grein­ina,“ sagði Magnús í sam­tali við Vísi í nóv­em­ber 2019.

Ein­ungis tvö sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru skráð á hluta­bréfa­markað á Íslandi í dag, en það eru Brim og Síld­ar­vinnslan í Nes­kaup­stað.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent