Sigmundur Davíð: „Hvað tekur við?“

Formaður Miðflokksins segir að svo virðist sem þrír ráðherrar í ríkisstjórn hafi hist á fundi um páskana og sagt: „Eitthvað þurfum við að gera. Þetta er eitthvað, gerum það.“ – Og í framhaldinu ákveðið að leggja Bankasýslu ríkisins niður.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins gerði skoðun Bjarna Bene­dikts­sonar efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra á Íslands­banka­söl­unni að umtals­efni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Ráð­herr­ann hefði ítrekað lýst yfir ánægju sinni með það hvernig tek­ist hefði til við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka.

Spurði Sig­mundur Davíð því ráð­herr­ann hvers vegna hann hefði ákveðið að bregð­ast við með því að leggja til að Banka­sýslan yrði lögð af. „Hvers vegna var þá ákveðið að bregð­ast við gagn­rýni á söl­una með því að leggja niður Banka­sýsl­una?“ spurði hann. Hann spurði enn fremur hvort þessi áform hefðu verið rædd í rík­is­stjórn og kynnt í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál.

Auglýsing

„Hvað tekur við? Hvað tekur við þegar þessi áform ganga eftir og Banka­sýslan verður lögð nið­ur? Varla getur verið að þeir ráð­herrar sem tóku þessa ákvörðun um þessi áform hafi ekki haft neinar hug­myndir um hvað ætti að taka við. Verður stofnuð ný Banka­sýsla til að við­halda þessum svoköll­uðu arms­lengd­ar­sjón­ar­mið­um? Verður verk­efnið fært inn á borð rík­is­stjórn­ar­inn­ar? Hvað tekur við? Við hljótum að æskja svara um það í ljósi þess­arar skyndi­legu en afdrátt­ar­lausu yfir­lýs­ingar frá að minnsta kosti þremur hæst­virtum ráð­herrum,“ sagði hann.

Seg­ist ekki hafa gefið bank­ann

Bjarni svar­aði og sagð­ist vera ánægður með meg­in­nið­ur­stöðu í söl­unni á hluta­bréf­unum í Íslands­banka þegar horft væri til þess hvað stæði í lög­unum og hvað rík­is­stjórnin sagð­ist ætla að gera.

„Ég held að við höfum bara náð mjög vel öllum meg­in­mark­miðum okkar í að tryggja dreift eign­ar­hald, fá almenn­ing sem hlut­hafa, fjöl­breyttan eig­enda­hóp. Þetta hefur í öllum aðal­at­riðum bara tek­ist mjög vel. Ég held að það væri erfitt að full­yrða að ef ein­hver hefði haft þessa nið­ur­stöðu í hönd­un­um, bæði um verðið og um hlut­haf­alist­ann, fyrir ári síðan þegar við vorum að ræða það að fara að skrá bank­ann á markað hefði hann með rökum getað haldið því fram að þetta væri nú alveg ómögu­leg nið­ur­staða.

Við erum að selja banka núna á 50 pró­sent hærra verði en við gerðum fyrir tæpu ári síðan en samt mæta hér ákveðnir þing­menn og halda ræður og taka stöðu í hópi með fólki úti á Aust­ur­velli þar sem hrópað er: Við erum að gefa bank­ann. Auð­vitað stenst þetta ekki skoð­un. Hvers vegna þá að gera breyt­ingu til fram­tíð­ar? Ja, ef hátt­virtur þing­maður var að hlusta á þing­menn sem hafa gerst hér miklir lög­spek­ingar og fræða okkur um það hvernig hin eina rétta túlkun á lög­unum um Banka­sýsl­una á að vera, þá held ég að hann hljóti að hafa séð að það eru uppi núna mjög skiptar skoð­anir um það, meðal ann­ars hvernig hlut­verka­skipti eiga að vera milli ráð­herra, rík­is­stjórn­ar, ráð­herra­nefndar og Banka­sýsl­unnar varð­andi fram­kvæmd á sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­u­m,“ sagði Bjarni.

Bjarni Benediktsson Mynd: Bára Huld Beck

Benti hann á að Banka­sýsl­unni hefði upp­haf­lega verið komið á lagg­irnar til bráða­birgða til að losa hratt og örugg­lega um eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um.

„En svo breytt­ust tím­arn­ir. Það sem við erum fyrst og fremst að segja hér er að við munum leggja til við Alþingi að við förum nýjar leiðir þegar frek­ari skref verða stigin í fram­tíð­inni við það að losa um eign­ar­hald rík­is­ins á Íslands­banka,“ sagði Bjarni.

Spurði sömu spurn­inga aftur

Sig­mundur Davíð kom aftur í pontu og sagði að ráð­herr­anum hefði ekki unn­ist tími til að svara spurn­ing­unum og því ítrek­aði hann þær. „Því að þetta hljómar eins og þrír hæst­virtir ráð­herrar hafi hist á fundi um pásk­ana og sagt: „Eitt­hvað þurfum við að gera. Þetta er eitt­hvað, gerum það.““

Hann sagði að ekki lægju fyrir áform um hvað ætti að taka við. „Var þetta kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi? Var þetta rætt í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál?“

Hann spurði aft­ur: „Liggur eitt­hvað fyrir um hvað eigi að taka við eða voru þetta bara fálm­kennd við­brögð til að bregð­ast við gagn­rýni á söl­una?“

„Við munum áfram tryggja fag­mennsku“

Ráð­herr­ann svar­aði í annað sinn og sagði að varð­andi fyr­ir­komu­lag á sölu hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum þá hefðu þau rætt það í rík­is­stjórn – hann hefði rætt það í rík­is­stjórn.

„Ég hef meira að segja lagt til við Alþingi hér á fyrri þingum að gera breyt­ingar á því. Og varð­andi ólíka mögu­leika til þess að losa um eign­ar­hald rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum þá hefur það borið á góma í ráð­herra­nefnd. En alveg eins og við höfum ekki lagt til við Alþingi útfærða til­lögu þá höfum við ekki heldur rætt hana í rík­is­stjórn eða í ráð­herra­nefnd. En málið hefur borið á góma.

Þegar spurt er um nákvæm­lega hvernig við munum gera þetta – það sem við munum gera er að við munum áfram tryggja að ekki verði sendir stjórn­mála­menn inn í stjórnir rík­is­banka eða fyrir hönd rík­is­ins inn í banka þar sem ríkið fer með eign­ar­hald. Við munum áfram tryggja fag­mennsku í því hvernig staðið verður að skipan í stjórn­ir, alveg eins og Banka­sýslan hefur gert ágæt­lega sam­kvæmt lög­um. Síðan munum við hins vegar taka til skoð­unar alla aðra kosti en þá sem fel­ast í leið Banka­sýsl­unnar til að losa um eign­ar­hluti og virða fyrir okkur og koma með til­lögu inn í þing­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent