Sigríður Víðis ráðin upplýsingafulltrúi félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins

Sigríður Víðis Jónsdóttir hefur verið ráðin tímabundið til starfa sem upplýsingafulltrúi félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Fyrir nokkrum árum var hún aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar núverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Sigríður Víðis Jónsdóttir hefur verið ráðin tímabundið sem upplýsingafulltrúi félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytisins.
Sigríður Víðis Jónsdóttir hefur verið ráðin tímabundið sem upplýsingafulltrúi félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytisins.
Auglýsing

Sig­ríður Víðis Jóns­dóttir hefur verið ráðin til starfa sem upp­lýs­inga­full­trúi félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Tekur Sig­ríður við starf­inu af Grét­ari Sveini Theó­dórs­syni, sem hafði sinnt starf­inu frá árinu 2020.

Staðan var ekki aug­lýst og var raunar síð­ast aug­lýst árið 2019, en heim­ild er í lögum til þess að ráða fólk tíma­bundið í störf á vegum hins opin­bera til allt að tveggja ára, þrátt fyrir að meg­in­reglan sé sú að laus störf skuli aug­lýst.

Sig­ríður er fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar núver­andi félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, en hann fékk hana til aðstoðar árið 2018 er hann var á sínu fyrsta starfs­ári sem umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra. Gegndi hún því starfi í rúmt ár.

Auglýsing

Áður en Sig­ríður varð aðstoð­ar­maður ráð­herra hafði hún verið upp­lýs­inga­full­trúi hjá UNICEF á Íslandi frá árinu 2011, en frá alda­mótum hafði hún starfað sem blaða­mað­ur, ýmist í lausa­mennsku, í fullu starfi eða með­fram námi.

Hún er höf­undur bók­ar­innar Rík­is­fang: Ekk­ert sem fjallar um hóp palest­ínskra kvenna og barna sem flúðu Írak og end­uðu á Akra­nesi, en bókin var til­nefnd til bæði Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og Fjöru­verð­laun­anna auk þess að hljóta verð­laun Hag­þenkis, félags höf­unda fræði­rita og kennslu­gagna.

Sig­ríður er með BA-­próf í heim­speki frá Háskóla Íslands, með mann­fræði sem auka­grein, og meist­ara­próf í þró­un­ar- og átaka­fræðum frá Uni­versity of East Ang­lia í Bret­landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent