Starfsmenn Þjóðminjasafnsins gagnrýna líka Lilju og segja verklagið lýsa metnaðarleysi

Enn eitt félagið hefur bæst á vagn þeirra sem opinberlega hafa lýst yfir andstöðu við það verklag sem ráðherra viðhafði þegar hún skipaði nýjan þjóðminjavörð án auglýsingar. Það beri „vott um ógagnsæja stjórnsýslu og kastar rýrð á málaflokkinn.“

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Auglýsing

Starfs­manna­fé­lag Þjóð­minja­safns Íslands hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem það tekur undir þá gagn­rýni sem komið hefur fram hjá ýmsum fag­fé­lögum og BHM á verk­lagi menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytis við skipun þjóð­minja­varðar fyrir viku síð­an. Þar segir að félagið harmi að „ráðu­neyti og ráð­herra hafi valið að aug­lýsa ekki emb­ættið til umsókn­ar. Verk­lagið lýsir metn­að­ar­leysi ráðu­neyt­is­ins í garð Þjóð­minja­safns Íslands, ber vott um ógagn­sæja stjórn­sýslu og kastar rýrð á mála­flokk­inn í heild. Gagn­rýnin bein­ist alfarið að ferli skip­un­ar­innar en ekki að Hörpu Þórs­dótt­ur.“

Þar með bæt­ist starfs­manna­fé­lagið í hóp ann­arra gagn­rýnenda en Félag forn­leifa­fræð­inga og stjórn Félags íslenskra safna og safn­manna (FÍSOS) sendu frá sér harð­orðar yfir­lýs­ingar vegna ákvörð­unar Lilju D. Alfreðs­dótt­ur, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, að skipa Hörpu til að gegna emb­ætti þjóð­minja­varðar án þess að aug­lýsa emb­ættið laust til umsókn­ar.

Í yfir­lýs­ingu fyrr­nefnda fag­fé­lags­ins var miklum von­brigðum lýst yfir með ráðn­ing­ar­ferl­ið. „Ís­lensk menn­ing á nú betur skilið en eitt­hvað svona emb­ætt­is­leikja rugl.“ Það sendi auk þess ábend­ingu til umboðs­manns Alþingis í gær vegna máls­ins og í morgun ábend­ingu til stjórn­skip­un­ar- og eftr­lits­nefnd alþing­is.

Auglýsing
Í yfir­lýs­ingu FÍSOS sagði að stjórn félags­ins gerði alvar­­legar athuga­­semdir við skipun nýs þjóð­minja­varðar og sagði að ráðn­­ingar sem þess­­ar, með til­­­færslu á milli emb­ætta, væru ógagn­­sæjar og ófag­­leg­­ar. „Slík vinn­u­brögð grafa undan trausti á stjórn­­­sýsl­una og emb­ætt­is­­manna­­kerf­ið.“

Þá sagði Frið­rik Jóns­son, for­maður BHM, við RÚV um síð­ustu helgi og í sam­hengi við þessa skipun að tryggja þyrfti heil­indi og traust til stjórn­sýsl­unnar og ræða heim­ild ráða­manna til að færa emb­ætt­is­menn til í starf­i. 

Meg­in­reglan í lögum að aug­lýsa skuli laus emb­ætti

Allt frá árinu 1954, þegar lög um rétt­indi og skyldur starfs­­­manna rík­­­is­ins voru sett, hefur það verið meg­in­regla í lögum á Íslandi að aug­lýsa skuli opin­ber­­­lega laus emb­ætti og störf hjá rík­­­in­u. 

Þegar lögin voru end­­­ur­­­skoðuð og ný lög sett árið 1996 voru áfram ákvæði um aug­lýs­inga­­­skyld­una. Í þessum reglum er það meg­in­reglan að aug­lýsa skuli laus störf en þau til­­­vik þegar ekki er skylt að aug­lýsa störf eru afmörkuð sér­­­stak­­­lega. Þessar und­an­þágur frá aug­lýs­inga­­­skyldu eiga við um störf sem aðeins eiga að standa í tvo mán­uði eða skem­­­ur, störf sem eru tíma­bundin vegna sér­­­stakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, fæð­ing­­­ar- og for­eldra­or­lofs, náms­­­leyf­­­is, leyfis til starfa á vegum alþjóða­­­stofn­ana og því um líkt, enda sé ráðn­­­ing­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mán­uði sam­­­fellt.

Þá eru und­an­þágur frá regl­unum sem fela í sér að störf sem hafa verið aug­lýst innan síð­­­­­ustu sex mán­aða ef þess er getið í aug­lýs­ing­unni að umsóknin geti gilt í sex mán­uði frá birt­ingu henn­­­ar. Að end­ingu er að finna und­an­þágur um störf vegna tíma­bund­inna vinn­u­­­mark­aðsúr­ræða á vegum stjórn­­­­­valda og aðila vinn­u­­­mark­að­­­ar­ins og hluta­­­störf fyrir ein­stak­l­inga með skerta starfs­­­get­u. 

Engar fleiri und­an­þágur er að finna í lög­­­un­­­um.

Meiri­hluti ráðu­­neyt­is­­stjóra skip­aðir án aug­lýs­ingar

Það hefur hins vegar færst veru­­lega í vöxt hér­­­lendis að ráð­herrar skipi í emb­ætti án þess að þau séu aug­lýst. Það leiddi meðal ann­­ars til þess að umboðs­­maður Alþingis tók upp frum­­kvæð­is­at­hugun á mál­inu. Hann gafst upp á þeirri athugun í fyrra­vor. 

Í bréfi þar sem þá settur umboðs­­maður útskýrði ástæðu þessa kom fram að ekki væri for­svar­an­­legt að nýta tak­­mark­aðan mann­afla emb­ætt­is­ins til að ljúka frum­­kvæð­is­at­hug­un­inni í ljósi þess að ráða­­menn færu hvort eð er ekk­ert eftir skýrum reglum og vilja lög­­gjafans í þessum mál­u­m. 

Kjarn­inn greindi frá því í frétta­­skýr­ingu í síð­­asta mán­uði að sjö af tólf starf­andi ráðu­­neyt­is­­stjórum hefðu verið skip­aðir án þess að emb­ættin hafi verið aug­lýst laus til umsókn­­ar. Á yfir­­stand­andi kjör­­tíma­bili hafa þrír af þeim fjórum ráðu­­neyt­is­­stjórum sem hafa verið skip­aðir fengið þær stöður án þess að þær hafi verið aug­lýstar lausar til umsókn­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent