Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Bæjarlistinn mynda meirihluta á Akureyri

Bæjarlistinn, Sjálfstæðiflokkur og Miðflokkur mynda minnsta mögulega meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar með sex fulltrúa af ellefu. Stefnt er að því að Ásthildur Sturludóttir verði áfram bæjarstjóri

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Bæjarlistans og Miðflokksins hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta á Akureyri. Samkomulagið náðist í sumarbústað.Mynd: Aðsend
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Bæjarlistans og Miðflokksins hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta á Akureyri. Samkomulagið náðist í sumarbústað.Mynd: Aðsend
Auglýsing

Bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks og Bæj­ar­list­ans á Akur­eyri hafa kom­ist að sam­komu­lagi um myndun meiri­hluta á Akur­eyri. Mál­efna­samn­ingur flokk­anna verður kynntur 1. júní, að því er kemur fram í til­kynn­ingu frá flokk­un­um.

Heimir Örn Árna­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Akur­eyri, segir í sam­tali við Vísi að stefnt sé að því að Ást­hildur Sturlu­dóttir verði áfram bæj­ar­stjóri Akur­eyr­ar. Hún var ráðin bæj­ar­stjóri eftir kosn­ing­arnar 2018.

Sjö flokkar náðu kjöri í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 14. maí síð­ast­lið­inn og fljótt varð ljóst að flóknar meiri­hluta­við­ræður voru fram und­an. Bæj­ar­listi Akur­eyr­ar, L-list­inn, fékk 18,7 pró­sent atkvæða og bætti við sig einum bæj­ar­full­trúa og fékk þrjá. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 18 pró­sent atkvæða og hélt sínum tveimur bæj­ar­full­trú­um. Fram­sókn­ar­flokkur fékk 17 pró­sent atkvæða og tvo full­trúa kjörna. Sam­fylk­ingin hélt sínum bæj­ar­full­trúa og Mið­flokk­ur­inn og Vinstri græn eru með einn bæj­ar­full­trúa. Þá fékk Flokkur fólks­ins, sem var að bjóða fram í fyrsta skipti á Akur­eyri, einn mann kjör­inn.

Auglýsing

Bæj­­­ar­list­inn, Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn og Sam­­fylk­ingin mynd­uðu meiri­hluta eftir kosn­­ing­­arnar 2018 en í sept­­em­ber 2020 til­­kynntu full­­trúar í bæj­­­ar­­stjórn að ákveðið hefði verið að afnema minni- og meiri­hluta í bæj­­­ar­­stjórn það sem eftir lifir kjör­­tíma­bils. Mark­miðið með því var mynda breiða sam­­stöðu vegna sér­­stakra aðstæðna í kjöl­far heims­far­ald­­urs og í rekstri sveit­­ar­­fé­lags­ins. Fyrir kosn­ing­arnar í vor lá fyrir að ekki var áfram­hald­andi vilji fyrir breiðu meiri­hluta­­sam­­starfi.

Allt er þegar þrennt er

Meiri­hluta­við­ræðum hefur verið slitið í tvígang. Fyrst ræddu full­trúar Bæj­ar­list­ans, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar myndun meiri­hluta en upp úr slitn­aði þegar full­trúar Bæj­ar­list­ans sök­uðu full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks um að hafa rofið heið­urs­manna­sam­komu­lag með því að ræða við full­trúa ann­arra flokka.

Við tóku við­ræður milli B-,D-,S- og M-lista en Sam­fylk­ingin sleit þeim við­ræðum í gær og sagði Hilda Jana Gísla­dótt­ir, odd­viti flokks­ins í sam­tali við RÚV að óyf­ir­stíg­an­legur mál­efna­á­grein­ingur væri á milli flokk­anna, til að mynda í vel­ferð­ar­mál­um, umhverf­is- og lofts­lags­málum og skipu­lags­mál­um.

En allt er þegar þrennt er. Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Mið­flokkur og Bæj­ar­list­inn hafa sex bæj­ar­full­trúa og mynda því minnsta mögu­lega meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Akur­eyrar sem sam­anstendur af ell­efu full­trú­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent