Skammlíf gjaldeyrismiðlun í Hafnartorgi

Fyrirtækið FX Iceland, sem opnaði gjaldeyrisskiptastöð á Hafnartorgi árið 2020, hefur að eigin ósk verið tekið af lista Seðlabankans yfir aðila sem veita gjaldeyrisskiptaþjónustu. Fjármálaeftirlitið gerði miklar athugasemdir við starfsemi fyrirtækisins.

FX Iceland starfrækti gjaldeyrisskiptastöð á Hafnartorgi frá því árið 2020.
FX Iceland starfrækti gjaldeyrisskiptastöð á Hafnartorgi frá því árið 2020.
Auglýsing

Fyr­ir­tækið FX Iceland ehf., sem hóf rekstur gjald­eyr­is­skipta­stöðvar í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, hefur óskað eftir því að verða fellt af skrá Seðla­bank­ans yfir aðila sem veita gjald­eyr­is­skipta­þjón­ustu og hefur Seðla­bank­inn orðið við þeirri beiðni.

Frá þessu segir í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum í dag, en í sumar sektaði fjár­mála­eft­ir­lit bank­ans fyr­ir­tækið um 2,7 milljón fyrir marg­háttuð og alvar­leg brot á lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Eins og Kjarn­inn fjall­aði um í ágúst var mál­inu lokið með sátt milli FX Iceland og fjár­mála­eft­ir­lits­ins, en athugun eft­ir­lits­ins hafði leitt í ljós víð­tæka veik­leika sem fólu í sér alvar­leg brot gegn grund­vall­ar­þáttum í vörnum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur heim­ild til þess að leggja allt að 500 milljón króna stjórn­valds­sekt á fyr­ir­tæki vegna brota á ákvæðum lag­anna, en horfði auk ann­ars til þess við sekt­ar­á­kvörð­un­ina að umfang starf­sem­innar væri lít­ið, að fyr­ir­tækið hefði nýlega hlotið skrán­ingu sem gjald­eyr­is­skipta­stöð og einnig sýnt sam­starfsvilja við með­ferð máls­ins, með því að gera að fyrra bragði áætlun um úrbætur og upp­lýsa og fram­gang þeirra.

Auglýsing

Eig­endur FX Iceland, sem fékk starfs­­leyfi um mitt ár 2019 og opn­aði gjald­eyr­is­­skipta­­stöð á Hafn­­ar­­torgi í Reykja­vík snemma árs 2020, eru hjónin Berg­­sveinn Samp­­sted, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri hjá Valitor og Hrönn Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri fjár­­­mála- og rekstr­­ar­sviðs Sýn­­ar.

Fyr­ir­tækið var með rúmar 28 millj­­ónir króna í rekstr­­ar­­tekjur í fyrra og tap­aði rúmum 1,2 millj­ónum króna. Árið áður hafði tapið einnig verið rúm millj­ón.

Ann­markar á flestum þáttum sem skoð­aðir voru

Fjár­mála­eft­ir­litið réðst í vett­vangs­rann­sókn hjá fyr­ir­tæk­inu í nóv­em­ber 2020 og kom sú vett­vangs­rann­sókn illa út, sam­kvæmt því sem fram kemur í sam­komu­lagi um sátt­inna milli fyr­ir­tæk­is­ins og fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem birt var í sum­ar.

„Í ljós komu ann­­markar sem snéru að aðgerðum máls­að­ila gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka. Voru ann­­markar taldir vera á flestum þáttum sem teknir voru til skoð­un­­ar, m.a. áhætt­u­mati máls­að­ila á rekstri sínum og við­­skipt­um, fram­­kvæmd áreið­an­­leikakann­ana, reglu­bundnu eft­ir­liti, verk­­ferlum, til­­kynn­ingum til skrif­­stofu fjár­­­mála­­grein­inga lög­­­reglu (SFL) og varð­­veislu gagna,“ sagði í sam­komu­lag­inu.

Einnig kom fram í skjal­inu að fyr­ir­tækið hefði stundað við­skipti við tvo aðila eftir að Skrif­­stofa fjár­­­mála­­grein­inga lög­­­reglu, sem sinnir eft­ir­liti með pen­inga­þvætti, sendi til­­kynn­ingu um grun­­sam­­leg við­­skipti vegna þeirra.

Þá leiddu upp­­lýs­ingar um 20 stærstu við­­skipta­­menn fyr­ir­tæk­is­ins í ljós að í öllum til­­vikum var um við­var­andi við­­skipta­­sam­­band að ræða þar sem sömu ein­stak­l­ing­­arnir komu ítrekað með háar fjár­­hæðir án þess að máls­að­ili óskaði frek­­ari upp­­lýs­inga eða stað­­fest­inga þeim tengd­­um.

Þá kom einnig fram í vett­vangs­rann­­sókn­inni að FX Iceland óskaði ekki eftir því að við­­skipta­­menn sem stund­uðu við­­skipti að jafn­­virði 150 evrur eða minna gerðu grein fyrir sér með nafni eða per­­són­u­skil­­ríkj­­um. Í kerfum fyr­ir­tæk­is­ins voru slíkir við­­skipta­­menn merktir sem „walk-in” og frek­­ari upp­­lýs­ingar um þá ekki skráð­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent