Fékk 2,7 milljóna króna sekt fyrir margháttuð og alvarleg brot á peningaþvættislögum

Annmarkar voru á flestum þáttum starfsemi gjaldeyrisskiptamiðstöðvar sem hóf starfsemi snemma árs 2020. Fyrirtækið stundaði meðal annars áfram viðskipti við aðila eftir að peningaþvættiseftirlitið hafði sent tilkynningu um grunsamleg viðskipti þeirra.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands birti samkomulag um sátt við FX Iceland í liðinni viku.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands birti samkomulag um sátt við FX Iceland í liðinni viku.
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur sektað fyr­ir­tækið FX Iceland ehf., sem rekur gjald­eyr­is­skipta­stöð, um 2,7 millj­ónir króna fyrir marg­háttuð og alvar­leg brot á lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem sam­þykkt voru á Alþingi í des­em­ber 2018 og tóku gildi í byrjun árs 2019. Sam­kvæmt lög­unum hefur eft­ir­litið heim­ild til að leggja stjórn­valds­sektir á fyr­ir­tæki sem brjóta gegn lög­unum frá 500 þús­und krónum að 500 millj­óna króna.

Athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins leiddi í ljós víð­tæka veik­leika sem fólu í sér alvar­leg brot gegn grund­vall­ar­þáttum í vörnum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Aftur á móti horfði Fjár­mála­eft­ir­litið til þess að umfang starf­semi máls­að­ila var lítið og að máls­að­ili var nýbú­inn að hljóta skrán­ingu sem gjald­eyr­is­skipta­stöð þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst. Til lækk­unar á sekt­ar­fjár­hæð horfði Fjár­mála­eft­ir­litið horft til þess að um væri að ræða fyrsta brot máls­að­ila, að máls­að­ili sýndi sam­starfsvilja við með­ferð máls­ins sem fólst í því að gera að fyrra bragði áætlun um úrbætur og upp­lýsa um fram­gang þeirra. Þá leit Fjár­mála­eft­ir­litið við ákvörðun sekt­ar­fjár­hæðir til fjár­hags­stöðu máls­að­ila. 

Mál­inu var lokið með sam­komu­lagi um sátt milli FX Iceland og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem birt var á vef Seðla­bank­ans í síð­ustu viku.

Auglýsing
Eigendur FX Iceland, sem fékk starfs­leyfi um mitt ár 2019 og opn­aði gjald­eyr­is­skipta­stöð sína á Hafn­ar­torgi snemma árs 2020, eru Berg­sveinn Samp­sted, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Valitor, og Hrönn Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs Sýn­ar. Þau eru hjón. 

FX Iceland var með 22 millj­ónir króna í rekstr­ar­tekjur á árinu 2020 og tap­aði alls 1,1 milljón króna. 

Við­var­andi við­skipta­sam­band

Málið á rætur sínar að rekja til þess að Fjár­mála­eft­ir­litið réðst í vett­vangs­rann­sókn hjá fyr­ir­tæk­inu í nóv­em­ber 2020. Mark­miðið var að kanna hvort FX Iceland væri að starfa í sam­ræmi við áður­nefnd lög. 

Í  sam­komu­lag­inu sem birt var í lið­inni viku kemur fram að á meðal þess sem eft­ir­litið gerði í vett­vangs­rann­sókn­inni var að taka úrtak 20 stærstu við­skipta­manna máls­að­ila. „Í ljós komu ann­markar sem snéru að aðgerðum máls­að­ila gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Voru ann­markar taldir vera á flestum þáttum sem teknir voru til skoð­un­ar, m.a. áhættu­mati máls­að­ila á rekstri sínum og við­skipt­um, fram­kvæmd áreið­an­leikakann­ana, reglu­bundnu eft­ir­liti, verk­ferlum, til­kynn­ingum til skrif­stofu fjár­mála­grein­inga lög­reglu (SFL) og varð­veislu gagna.“

Á meðal þess sem kemur fram í skjal­inu er að við yfir­ferð gagna um 20 stærstu við­skipta­menn máls­að­ila hafi komið í ljós að alls 14 við­skipta­menn hafi stundað við­skipti umfram 15 þús­und evr­ur. „Í áhættu­mati máls­að­ila kom fram að m.a. skyldi fram­kvæma aukna áreið­an­leika­könnun þegar við­skipta­maður stund­aði við­skipti með 15.000 evrur í ein­stökum við­skiptum eða sam­an­lagt. Þá reynd­ist máls­að­ili hafa stundað við­skipti við tvo við­skipta­menn eftir að Skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu, sem sinnir eft­ir­liti með pen­inga­þvætti, sendi til­kynn­ingu um grun­sam­leg við­skipti vegna þeirra. „Máls­að­ili fram­kvæmdi ekki aukna áreið­an­leika­könnun í fram­an­greindum til­vik­um, þ.e. hvorki í þeim til­vikum þar sem við­skipta­menn stund­uðu við­skipti fyrir 15.000 evrur eða meira né í þeim til­vikum sem máls­að­ili stund­aði við­skipti við við­skipta­menn eftir að hafa sent til­kynn­ingu um grun­sam­leg við­skipti þeirra.“

Upp­lýs­ingar um 20 stærstu við­skipta­menn máls­að­ila leiddu í ljós að í öllum til­vikum var um við­var­andi við­skipta­sam­band að ræða þar sem sömu ein­stak­ling­arnir komu ítrekað með háar fjár­hæðir án þess að máls­að­ili óskaði frek­ari upp­lýs­inga eða stað­fest­inga þeim tengd­um. 

Þá kom einnig fram í vett­vangs­rann­sókn­inni að FX Iceland óskaði ekki eftir því að við­skipta­menn sem stund­uðu við­skipti að jafn­virði 150 evrur eða minna gerðu grein fyrir sér með nafni eða per­sónu­skil­ríkj­um. Í kerfum fyr­ir­tæk­is­ins voru slíkir við­skipta­menn merktir sem „walk-in” og frek­ari upp­lýs­ingar um þá ekki skráð­ar.

Ísland lenti á gráum lista vegna ónógra pen­inga­þvætt­is­varna

FAT­F, al­þjóð­­legur fjár­­­­­mála­að­­gerða­hópur ríkja um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­­­mögn­un hryðju­verka, ­setti Ísland á gráan lista sam­tak­anna í októ­ber árið 2019, meðal ann­­ars vegna þess að þau töldu skort vera á upp­­lýs­ingum um eign­­ar­hald íslenskra félaga. Sam­tökin gáfu eft­ir­liti hér á landi með pen­inga­þvætti fall­ein­kunn í kjöl­far úttektar sem þau gerðu á Íslandi, en sú nið­­ur­­staða lá fyrir vorið 2018. 

Alls var gerð athuga­­semd við 51 atriði í laga- og reglu­­gerð­­ar­um­hverfi Íslands og því hvernig við fram­­fylgjum eft­ir­liti með pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka.

FATF ákvað að fjar­lægja Ísland af gráa list­anum í októ­ber 2020 eftir að marg­hátt­aðar úrbætur voru gerðar í vörnum gegn þeim mál­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent