Samkomulag hefur verið gert um kaup útgerðarfyrirtækisins Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn í Hornafirði á öllum hlutabréfum í Auðbjörgu hf. á Þorlákshöfn. Samkomulagið er með fyrirvörum, m.a. um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu Skinneyjar-Þinganess og Auðbjargar, sem vitnað er til á vef mbl.is. Kaupverð er ekki gefið upp, en sé mið tekið af umfangi, þar á meðal virði aflaheimilda, er ljóst að það hleypur á milljörðum króna.
Auðbjörg ehf. hefur frá stofnun árið 1970 verið með starfsemi í Þorlákshöfn. Skip fyrirtækisins ráða meðal annars yfir um sjö prósent aflamarks í humri, um tíu prósent í skrápflúru og 0,8 prósent í löngu, að því er segir á vef Viðskiptablaðsins, vb.is.
Ef af kaupunum verður, verður Skinney-Þinganes með starfsemi á Höfn og í Þorlákshöfn. Með þeim hyggst Skinney-Þinganes styrkja sig í sessi sem eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og treysta enn ferkar fjölbreyttan rekstur í útgerð, fiskvinnslu og sölu. Fyrirtækið er með um 260 starfsmenn í heild, þar á meðal 90 sjómenn á sjö skipum sem gerð eru út.
„Auðbjörg ehf. hefur frá stofnun árið 1970 verið með starfsemi í Þorlákshöfn. Fyrirtækið hefur undanfarin tuttugu og fimm ár keypt skip og aflaheimildir til að styrkja rekstur fyrirtækisins. Þrátt fyrir kaup veiðiheimilda hefur fyrirtækinu ekki tekist að halda í við skerðingu á þeim veiðiheimildum er fyrirtækið ræður yfir. Það er mat eigenda að rétt sé og tímabært að koma fyrirtækinu í hendur traustra aðila sem hafa það að markmiði að halda áfram starfsemi fyrirtækisins í Þorlákshöfn,“ segir í tilkynningunni.