SkjárEinn vann fyrstu lotu í baráttunni um föstudagskvöldin

salka.jpg
Auglýsing

The Voice Ísland, flagg­skips­þáttur Skjá­sEins og Sím­ans, sigr­aði í fyrstu lotu bar­dag­ans milli íslensku sjón­varps­stöðv­anna um áhorf­endur á föstu­dags­kvöldum í vet­ur. Þátt­ur­inn var frum­sýndur föstu­dag­inn 2. októ­ber síð­ast­lið­inn og var lang­vin­sælasta efnið sem SkjárEinn sýndi í vik­unni 28. sept­em­ber til 4. októ­ber. Alls var með­al­á­horf á þátt­inn hjá Íslend­ingum á aldr­inum 12 til 80 ára 20,1 pró­sent og upp­safnað áhorf 28,7 pró­sent, sam­kvæmt könnun Gallup á sjón­varps­á­horfi.

Á sama tíma og SkjárEinn sýndi fyrsta þátt­inn í The Voice Ísland frum­sýndi RÚV nýjan þátt sem ber heit­ið: Vikan með Gísla Mart­eini . Í nið­ur­stöðum Gallup eru ein­ungis sýndir þeir tíu dag­skrár­liðið hverrar sjón­varps­stöðvar sem fá mest áhorf þá viku sem verið er að mæla. Þáttur Gísla Mart­eins komst ekki inn á þann topp tíu lista fyrstu vik­una sem hann var í loft­inu, sem þýðir að með­al­á­horf á hann var að minnsta kosti minna en á breska þátt­inn Pold­ark, sem var með 18,7 pró­sent með­al­á­horf og 26,8 pró­sent upp­safnað áhorf. Með­al­á­horf á Útsvar, sem hefst 40 mín­útum eftir að The Voice Ísland hefst, var 21,5 pró­sent og upp­safnað áhorf á þátt­inn var 30,9 pró­sent. Áhorf á Útsvar var því meira en á The Voice Ísland.

Sama föstu­dags­kvöldið og The Voice Ísland og þáttur Gísla Mart­eins hófu göngu sína snéri spjall­þáttur Loga Berg­manns Eiðs­sonar aftur á Stöð 2, þar sem hann hefur átt fast sæti í dag­skránni árum sam­an. Með­al­á­horf á þátt Loga var 11,8 pró­sent og upp­safnað áhorf var 19,1 pró­sent. Hann var umtals­vert frá því að ná The Voice Ísland. Vert er að taka fram að þáttur Loga er í læstri dag­skrá á meðan að hinir tveir keppi­naut­arnir um hylli sjón­varps­á­horf­enda á föstu­dags­kvöldum eru báðir í opinni dag­skrá.

Auglýsing

 

Áhorf á Skjá­Einn tekur kipp eftir opnun dag­skrár



Miklar breyt­ingar hafa orðið á sjón­varps­mark­að­inum að und­an­förnu í kjöl­far þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið lyfti hömlum af sam­starfi Skjá­sEins og eig­anda hans, Sím­ans. Þann 1. októ­ber síð­ast­lið­inn var Skjá­Einum breytt í gagn­virka efn­isveitu fyrir áskrif­endur stöðv­ar­inn­ar. Þeir geta nú horft á efni hennar hvenær sem þeir vilja í gegnum sjón­varp Sím­ans. Auk þess hefur miklum fjár­munum verið eytt til að bæta dag­skrá stöðv­ar­innar fyrir vet­ur­inn, meðal ann­ars með nýjum samn­ingi við Fox um að fá þaðan þætti til sýn­ingar og með fram­leiðslu The Voice Ísland.

Sam­tímis var línu­leg dag­skrá Skjá­sEins opnuð á ný. Hún hafði verið í læstri dag­skrá fyrir áskrif­endur frá árinu 2009. Þessar breyt­ingar hefur kúvent áhorfi á Skjá­Einn. Í vik­unni áður en dag­skráin var opnum var gam­an­þátt­ur­inn Odd Mom Out vin­sælasta efnið á Skjá­Ein­um. Alls var með­al­á­horf á þátt­inn 3,8 pró­sent og upp­safn­að­á­horf 4,8 pró­sent. Það er minna en áhorfið á þann þátt sem var í tíunda sæti á lista yfir mest áhorfðu þætti Skjá­sEins í fyrstu vik­unni eftir að opnað var aftur fyrir dag­skránna. Sá þátt­ur, The Mupp­ets, var með 4,8 pró­sent með­al­á­horf og 5,4 pró­sent upp­safnað áhorf.

The Voice Ísland var hins­vegar lang­vin­sælasta efni stöðv­ar­innar í síð­ustu viku. Rúm­lega helm­ingi fleiri horfðu á þann þátt en þann sem var í öðru sæti yfir vin­sælasta efnið á Skjá­Ein­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None