Að minnsta kosti tíu eru látnir og tuttugu særðir eftir skotárás í framhaldsskóla bænum Roseburg í Oregon, að því er segir á vef New York Times. Vopnaður maður er sagður hafa hafið skotárás í Umpqua Community-skólanum í Roseburg, en þar eru á fjórða þúsund nemendur.
At least 7 killed and 20 hurt, shooter 'down' and in custody. #UCCshooting live updates: https://t.co/aSJGmhXkVJ pic.twitter.com/dsgFzKE6Qr
— Los Angeles Times (@latimes) October 1, 2015
Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari upplýsingar berast.
Auglýsing