Sólveig Anna í bréfi til starfsmanna: Tímasetning umfjöllunar engin tilviljun

Fráfarandi formaður Eflingar segir í bréfi sem hún sendi starfsfólki að umfjöllun um ályktun þeirra sem innihélt gagnrýni á stjórnendur væri í augljósu samhengi við yfirstandandi baráttu gegn réttindabrotum á trúnaðarmanni á Reykjavíkurflugvelli.

Sólveig Anna Jónsdóttir sendi öllum starfsmönnum Eflingar bréf í gærkvöldi þar sem hún greindi frá afsögn sinni.
Sólveig Anna Jónsdóttir sendi öllum starfsmönnum Eflingar bréf í gærkvöldi þar sem hún greindi frá afsögn sinni.
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, frá­far­andi for­maður Efl­ing­ar, segir í bréfi til starfs­manna sem hún sendi í gær­kvöldi að tíma­setn­ing fjöl­miðlaum­fjöll­unar um ályktun þeirra frá því í sumar þar sem stjórn­endur stétt­ar­fé­lags­ins voru gagn­rýndir með ýmsum hætti fyrir fram­komu sína ekki vera til­vilj­un. Hún sé „í aug­ljósu sam­hengi við yfir­stand­andi bar­áttu félags­ins gegn rétt­inda­brotum gegn trún­að­ar­manni okkar á Reykja­vík­ur­flug­velli og þeirri árás á rétt­indi allra okkar félags­manna sem í þeim fel­ast.“

Málið sem þar er vísað í snýst um upp­sögn Ólafar Helgu Adolfs­dóttur sem var sagt upp án aðvör­unar á meðan hún stóð í við­ræðum við fyr­ir­tækið um rétt­inda­mál vinnu­fé­laga sinna í sum­ar. Þann 20. októ­ber var bæði Sam­tökum atvinnu­lífs­ins og Icelandair stefnt fyrir Félags­dóm vegna máls­ins. 

Á fimmtu­dag, 28. októ­ber, birti RÚV við­tal við Guð­mund Bald­urs­son, stjórn­ar­mann í Efl­ingu, þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá álykt­un­ina afhenta og að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­fólki. Tal­aði hann meðal ann­ars um að starfs­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­ar­stjórn.“

Vegna þessa ávarp­aði Sól­veig starfs­menn á föstu­dags­morgun og bað þá um að draga til baka álykt­un­ina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér. 

Segir vand­ann vera ótil­greindan

Í nýrri ályktun starfs­manna Efl­ing­ar, sem sam­þykkt var í kjöl­far­ið, kom fram að þeir töldu ósann­gjarnt að stjórn­endur veltu ábyrgð á inn­an­hús­málum yfir á sig. Ástæða hafi verið fyrir ályktun sem sam­þykkt var af starfs­fólki Efl­ingar í júní síð­ast­liðnum þar sem Sól­veig Anna var meðal ann­ars ásökuð um að halda aftöku­lista og um að fremja kjara­samn­ings­brot gegn starfs­fólki með fyr­ir­vara­lausum upp­sögn­um.

Auglýsing
Þegar þessi við­brögð starfs­manna lágu fyrir ákvað Sól­veig Anna að segja af sér sem for­mað­ur. Hún til­kynnti það opin­ber­lega með stöðu­upp­færslu á Face­book seint í gær­kvöldi en sendi einnig bréf á alla starfs­menn Efl­ingar til að greina þeim frá þeirri nið­ur­stöðu.

Í bréf­inu, sem Kjarn­inn hefur undir höndum og ber yfir­skrift­ina „af­sögn mín í kjöl­far starfs­manna­fund­ar“, rekur Sól­veig Anna inni­hald álykt­unar starfs­manna, segir þann vanda sem þar er vísað í vera ótil­greindan og að því sé sleppt að til­taka þau við­brögð sem stjórn­endur og mannauðs­stjóri Efl­ingar hafi gripið til síðan í sum­ar. 

Telur starfs­fólk ljá mál­flutn­ingi Guð­mundar lög­mæti

Hún segir í bréf­inu að ekk­ert komi fram í ályktun starfs­manna frá því á föstu­dag sem við­ur­kenni vinnu stjórn­enda á vinnu­staðn­um, bæði mannauðs­stjóra og yfir­manna, við að bæta vinnu­að­stæð­ur, starfsanda og kjör starfs­fólks síðan Sól­veig anna tók við sem for­maður félags­ins. „Þó er það svo, að list­inn yfir þær úrbætur er of langur til að ég geti talið hann upp hér. Ályktun fundar ykkar felur þannig ekki í sér neina trausts­yf­ir­lýs­ingu til mín og ekki heldur neitt sem dregur úr alvar­leika þeirra ásak­ana sem trún­að­ar­menn ykkar hafa borið á mig og stjórn­endur vinnu­stað­ar­ins. Ályktun fundar ykkar er van­trausts­yf­ir­lýs­ing til mín og til allra þeirra sem bera ábyrgð á starfs­manna­málum vinnu­stað­ar­ins.“

Sól­veig Anna segir ályktun starfs­fólks­ins auk þess ljá mál­flutn­ingi Guð­mundar Bald­urs­sonar lög­mæti. „Guð­mundur hefur kallað opin­ber­lega eftir klofn­ingi félags­ins en aldrei hefur hann þó haft hug­rekki til að mæla fyrir þeim hug­myndum á vett­vangi stjórnar eða trún­að­ar­ráðs Efl­ing­ar. Sama gildir um her­ferð hans fyrir afhend­ingu marg­um­ræddrar álykt­unar trún­að­ar­manna. Þá her­ferð hefur hann alfarið unnið með klögu­málum til utan­að­kom­andi aðila, fram hjá félögum sínum í stjórn og trún­að­ar­ráði félags­ins. Um holl­ustu hans við Efl­ingu þarf ekki að segja meira.“

Ásakar starfs­menn um að opna á nei­kvæða umfjöllun

Í bréf­inu segir Sól­veig Anna síðan að and­stæð­ingar Efl­ingar og þeirrar stefnu sem hún og stjórn félags­ins hafa markað í bar­áttu verka- og lág­launa­fólks séu marg­ir.

„­Tíma­setn­ing fjöl­miðlaum­fjöll­un­ar­inn­ar, sem var til­efni þess að ég leit­aði til ykkar á föstu­dags­morg­un, er í aug­ljósu sam­hengi við yfir­stand­andi bar­áttu félags­ins gegn rétt­inda­brotum gegn trún­að­ar­manni okkar á Reykja­vík­ur­flug­velli og þeirri árás á rétt­indi allra okkar félags­manna sem í þeim fel­ast. Með ákvörðun ykkar sl. föstu­dag um að standa stað­fast­lega við ýktar og ósann­gjarnar lýs­ingar trún­að­ar­manna á vinnu­staðnum sem ég ber ábyrgð á hafið þið opnað á nei­kvæða umfjöllun og umræðu sem gerir mér ill­mögu­legt að leiða þá bar­átt­u.“

Sól­veig Anna var fyrst kjörin for­maður Efl­ingar í mars 2018 og svo end­ur­kjörin án mót­fram­boðs tveimur árum síð­ar. Viðar Þor­steins­son, sem ráð­inn var fram­kvæmda­stjóri Efl­ingar eftir kjör Sól­veigar Önnu, sagði við Kjarn­ann fyrr í dag að hann myndi fylgja henni út úr félag­inu. Upp­sagn­ar­bréf hans yrði lagt fram í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent