Sólveig Anna Jónsdóttir, sem sagði af sér sem formaður Eflingar í gær, segir að einn af karlkyns starfsmönnum skrifstofu Eflingar hafi „lýst því yfir við annan starfsmann að hann væri mjög reiður út í mig og væri að hugsa um að fara heim til mín og vinna mér þar skaða sem ekki var lýst nánar en voru augljóslega einhvers konar ofbeldi.“
Hún segir í stöðuuppfærslu á Facebook að umræddur starfsmaður Eflingar hafi látið „fylgja sögunni, þegar hann lýsti ofbeldishótunum sínum gegn mér, að hann hefði í tvö ár rispað bíl manns sem honum var illa við. Það sannaði að honum væri alvara og að hann væri fær um að fremja glæp. Hann bætti því við, að hann hefði ekki áhyggjur af að verða dæmdur í fangelsi vegna þess sem hann kynni gera mér, af því að jafnvel þó að hann yrði dæmdur þá þyrfti hann aldrei að sitja inni, þar sem hann væri með hreint sakavottorð.“
Tilefni stöðuuppfærslunnar er frétt á Vísi í dag þar sem sagt er frá því að yfirlýsing Sólveigar Önnu um ástæður afsagnar hennar úr stöðu formanns Eflingar hafi „hleypt illu blóði í marga starfsmenn stéttarfélagsins“. Þar var haft eftir heimildum að starfsfólk Eflingar hefði fundist Sólveig Anna hafa gefið „opið skotleyfi“ með því að hafa greint frá því að hún teldi starfsmenn hafa hrakið sig úr starfi.
Segir manninn óánægðan með að hafa ekki fengið stöðuhækkun
Sólveig Anna segir að sér sé ekki kunnugt um að hún hafi gert nokkuð á hlut þess manns sem hún segir hafa hótað sér ofbeldi, og er ekki nafngreindur í stöðuuppfærslunni, en að henni skiljist að hann sé óánægður með að annar starfsmaður fékk stöðuhækkun sem hann taldi sig eiga rétt á. „Það er alvitað að hann er náinn fyrrum stjórnendum á skrifstofu Eflingar, þeim sömu sem hafa á síðastliðnum árum farið fram með endalausar lygar, hótanir um dómsmál og óhróður gegn mér, í fjölmiðlum og víðar.
Hún telji blasa við að nú verði hún sökuð um lygar, og beðin um sönnunargögn sem aldrei verða nógu marktæk. „Ég verð sjálf sögð vera vandmálið. Ég stundi ógnarstjórn og gangi um með aftökulista. Skelli jafnvel hurðum, svo fast að starfsfólk Eflingar óttist mig og þurfi sérstaka vernd. Það mun ekki skipta neinu þótt ég hafi tilkynnt um málið til lögreglu. Það mun ekki skipta máli þótt að starfsmenn á vinnustaðnum viti af og hafi rætt sín á milli um þessa uppákomu. Þeir munu eflaust ekki kannast lengur við neitt.“
Dramatík á síðustu dögum
Forsaga málsins er sú að í júní samþykktu starfsmenn Eflingar ályktun sem hefur ekki verið birt opinberlega. Í henni voru stjórnendur stéttarfélagsins gagnrýndir með ýmsum hætti fyrir framkomu sína gagnvart starfsfólki. Trúnaðarmenn starfsmanna undirrituðu ályktunina og hún var sett fram fyrir hönd starfsmanna.
Á fimmtudag birti RÚV svo viðtal við Guðmund Baldursson þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að fá ályktunina afhenta og að hann hefði áhyggjur af framkomu stjórnenda Eflingar gagnvart starfsfólki. Talaði hann meðal annars um að starfsfólk sem hefði hætt hjá Eflingu hefði talið sér „að einhverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógnarstjórn.“
Vegna þessa ávarpaði Sólveig Anna starfsmenn á föstudagsmorgun og bað þá um að draga til baka ályktunina. Ef þeir myndu ekki gera það myndi hún segja af sér.
Þeir gerðu það ekki heldur sendu frá sér aðra ályktun þar sem kom fram að þeir töldu ósanngjarnt að stjórnendur veltu ábyrgð á innanhúsmálum yfir á sig.
Í kjölfarið sagði Sólveig Anna af sér og sagði starfsmenn Eflingar hafa hrakið sig úr starfi.
Fleiri með vitneskju um hótunina
Í stöðuuppfærslunni í kvöld segir hún að starfsfólk Eflingar hafi talið mjög brýnt og nauðsynlegt að hún sitji áfram undir óleiðréttum ásökunum. „Í salnum sat starfsmaðurinn, sem sjálfur varð vitni að ofbeldishótunum í minn garð frá þessum samstarfsmanni okkar, og sem hefur sagt frá uppákomunni við nokkra aðra starfsmenn. Í salnum sátu einnig fleiri úr hópi þeirra sem hafa fengið vitneskju um hótunina, til dæmis trúnaðarmaður vinnustaðarins, sá sami og gengið hefur harðast fram í glórulausum ásökunum gegn mér og kröfum um að vinnustaðafundum verði snúið upp í réttarhöld yfir glæpum mínum.
Ég var ekki á fundinum. Ég veit því ekki hvort einhver fundarmanna sem hafði vitneskju um rétt svo tveggja vikna gamlar ofbeldishótanirnar gegn mér hafi rétt upp hönd, spurt ef til vill spurninga, velt því ef til vill upp hvort komið væri gott af „opnu skotleyfi“ á mig? Það veit ég ekki, en ég veit hver niðurstaðan var af fundinum.“
Stendur við ákvörðun sína
Sólveig Anna segist hafa tekið sína ákvörðun og ætla að standa við hana. Hún sé ekki að hlaupast undan merkjum.
„Ég er einungis að viðurkenna fyrir sjálfri mér og öðrum hverjar takmarkanir mínar sem manneskju eru, þegar fólk sem ég þarf að geta treyst hefur lýst sig reiðubúið að svipta mig ærunni opinberlega en stendur þögult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi fyrir framan augun á þeim.Ég legg til að við, undirokað fólk af stétt verka- og láglaunafólks, stöndum saman. Ég hvet til þess að við áttum okkur á því að heimurinn sem við lifum í er skakkur, viðsnúinn, bjagaður. Í þessari skekkju hallar alltaf á okkur. Að átta sig á því er fyrsta skrefið. Svo fikrum við okkur áfram saman, eitt skref í einu, stöppum stálinu hvert í annað, vinnum fyrst lítinn sigur, svo annan lítinn og svo stóran. Óhjákvæmilega getum við þurft að stíga skref til baka líka – það er erfitt – en við getum barist áfram og gert þennan skakka heim réttan.“
Á Vísi í dag er sagt frá því að yfirlýsing mín um ástæður afsagnar minnar úr stöðu formanns Eflingar hafi „hleypt illu...
Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Monday, November 1, 2021