Sólveig Anna vann – Verður formaður Eflingar á ný

Þrír listar voru í framboði til stjórnar Eflingar í kosningum sem lauk í dag. Baráttulistinn, leiddur af fyrrverandi fomanninum Sólveigu Önnu Jónsdóttur, vann.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jónsdóttir.
Auglýsing

Bar­áttu­list­inn, sem leiddur var af Sól­veigu Önnu Jóns­dótt­ur, vann sigur í stjórn­ar­kjöri Efl­ingar sem lauk í dag. Hún verður því for­maður Efl­ingar á ný, en hún sagði af sér sem slíkur í fyrra­haust.

Þrír listar voru í fram­boði. Trún­­að­­ar­ráð Efl­ingar sam­­þykkti á fundi sínum 13. jan­úar síð­­ast­lið­inn til­­lögu upp­­still­ing­­ar­­nefndar um svo­­kall­aðan A-lista, en Ólöf Helga Adolfs­dótt­ir, sem setið hefur sem vara­­for­­maður stjórnar Efl­ingar frá því að Sól­­veig Anna sagði af sér, leiddi þann lista. Tveir aðrir núver­andi stjórn­­­ar­­menn eru á þeim lista en Agn­i­ezka Ewa Ziólkowska, sem tók við for­­mennsku í Efl­ingu eftir að Sól­­veig Anna hætti, verður ekki í fram­­boð­i. 

Guð­­mundur Bald­­ur­s­­son, stjórn­­­ar­­maður í Efl­ingu, var einnig í for­svari fyrir fram­boðs­lista.

Sól­veig Anna leiddi svo hóp Efl­ing­­ar­­fé­laga sem buðu fram svo­­kall­aðan B-lista, sem kall­aður var Bar­átt­u­list­inn. Þegar hóp­­ur­inn til­kynnti um fram­boð sitt sagð­ist hann eiga „það sam­eig­in­­legt að vilja umbylta félag­inu okk­­ar.“

Báráttu­list­inn fékk 52 pró­sent greiddra atkvæða, A-list­inn 37 pró­sent og C-listi Guð­mundar átta pró­sent. Tvö pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði tóku ekki afstöðu.

Á kjör­skrá voru 25.842 en atkvæði greiddu alls 3.900 manns og kjör­sókn því 15,1 pró­sent.

Aðrir á B-lista eru Ísak Jóns­son, Guð­björg María Jós­eps­dótt­ir, Inn­ocentia F. Frið­geirs­son, Kol­brún Valv­es­dótt­ir, Mich­ael Bragi Whal­ley, Olga Leons­dóttir og Sæþór Benja­mín Randals­son. Skoð­un­ar­menn reikn­inga eru Bar­bara Sawka, Magnús Freyr Magn­ús­son og Val­týr Björn Thors, sem er vara­mað­ur.

Þegar Sól­­veig Anna bauð sig fyrst fram til for­­manns Efl­ingar árið 2018, gegn A-lista upp­­still­ing­­ar­­nefndar Efl­ing­­ar, fékk list­inn sem hún leiddi 2.099 atkvæði en hinn list­inn 519 atkvæði. Listi Sól­­veigar Önnu var svo einn í fram­­boði árið 2020 og hún þá sjálf­krafa end­­ur­­kjörin for­­mað­­ur­.  

Sagði af sér í fyrra eftir ósætti við starfs­menn á skrif­stofu

Þegar Sól­­veig Anna sagði af sér sem for­­maður Efl­ingar í fyrra­haust var ástæðan ósætti við starfs­­menn á skrif­­stofu Efl­ing­­ar. Sú atburða­rás hófst fimmt­u­dag­inn 28. októ­ber 2021 þegar RÚV birti við­­­­tal við áður­­­nefndan Guð­­­­mund Bald­­ur­s­­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að álykt­un­ sem afhent hefði verið í júní síð­­­ast­liðnum og inn­­i­hélt ásak­­­anir um að hún héldi úti sér­­­­­stökum „af­­­töku­lista“ og hefði framið grafal­var­­­leg kjara­­­samn­ings­brot. Álykt­unin var und­ir­­­­rit­uð af trún­­­­að­­­­ar­­­­mönnum og sögð sett fram fyrir hönd starfs­­­­manna. Guð­­­mundur sagði í frétt­inni að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­­­ars um að starfs­­­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­­­ar­­­­stjórn.“

Auglýsing
Í við­tali við Kjarn­ann sem birt­ist snemma í nóv­­em­ber í fyrra sagði Sól­­veig Anna að með álykt­un­inni sem sett var fram í júní hafi vopnin sem hún telur nauð­­­syn­­­leg til að sinna því starfi sem hún var kosin til að sinna verið slegin úr hönd­unum á henn­i. 

Þegar sím­­­tal hafi borist frá frétta­­­manni RÚV í aðdrag­anda birt­ingu frétt­­­ar­innar hafi Sól­­­veig Anna áttað sig á því að atburða­rásin sem hún hafði að ein­hverju leyti verið að und­ir­­­búa sig undir að gæti orð­ið, væri að verða að veru­­­leika. „Ég hug­­­leiddi bara stöðu mína og þær aðstæður sem voru upp komnar og komst að þeirri nið­­­ur­­­stöðu að það væri ekk­ert annað að gera. Ég taldi mig vita með vissu að á þessum tíma væru mjög fáir úr starfs­­­manna­hópn­um, alls fimm manns auk nokk­­­urra stjórn­­­enda, sem hefðu séð þessa álykt­un. Ég taldi mig vita að það væru fáir sem hefðu komið að því að skrifa hana og að hún hefði ekki farið í neina dreif­ingu innan starfs­­­manna­hóps­ins. Af ein­hverjum ástæðum virð­ist Guð­­­mundur Bald­­­ur­s­­­son hafa fengið ein­hvers­­­konar aðgang eða veður af þessu og söm­u­­­leiðis fyrr­ver­andi stjórn­­­andi sem reyndi að nota álykt­un­ina til að fjár­­­­­kúga mjög veg­­­legan starfs­loka­­­samn­ing út úr félag­in­u.“ 

Hún ákvað að ávarpa starfs­­fólk dag­inn eftir við­talið og óska eftir lág­­marks­­traust­yf­­ir­lýs­ingu starfs­­fólks við sig. Við því var ekki orðið og nið­­ur­­staða starfs­­manna­fundar inn­­i­hald álykt­un­­­ar­innar ætti rétt á sér. Henni, og helsta sam­­­starfs­­­fólki henn­­­ar, hafi orðið ljóst að ef álykt­unin yrði gerð opin­ber myndi þau ekki getað starfað leng­­­ur. „Það myndi þessi her­­­ferð sem rekin hefur verið gegn okkur víða að loks­ins ná þessum raun­veru­­­lega árangri að við hefðum á end­­­anum engan trú­verð­ug­­­leika.“

Í kjöl­farið sagði hún af sér. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent