Spyr forsætisráðherra hvort Bjarni hafi verið vanhæfur og hvort Lilja hafi brotið siðareglur

Þingmaður Viðreisnar vill að forsætisráðherra svari með hvaða rökum hún hafi hafnað viðvörunarorðum Lilju Alfreðsdóttur um söluna á hlut í Íslandsbanka og með hvaða rökum hún hafi fallist á þá aðferð sem Bjarni Benediktsson lagði til um hana.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­maður Við­reisn­ar, hefur beint skrif­legri fyr­ir­spurn til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra þar sem hún spyr hana meðal ann­ars um hvort til­efni hafi verið fyrir Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að víkja sæti við með­ferð á sölu á hlut rík­is­ins Íslands­banka vegna sjón­ar­miða um van­hæfi.

Þor­björg fjallar um fyr­ir­spurn­ina í færslu á Twitter og birtir þar með skjá­skot af umfjöllun Vísis um við­tal við Bjarna í Sprengisandi á Bylgj­unni í gær­morgun sem ber fyr­ir­sögn­ina: „Bjarni um pabba sinn: „Var honum bannað að kaupa?““. Er þar vísað í að félagið Haf­silf­ur, í eigu Bene­dikts Sveins­sonar föður Bjarna, var á meðal þeirra 207 fag­fjár­festa sem fengu að kaupa hluti rík­is­ins í Íslands­banka sem seldir voru í lok­uðu útboði 22. mars síð­ast­lið­inn.

Fyr­ir­spurn Þor­bjargar er alls í fjórum lið­um. Í henni spyr hún for­sæt­is­ráð­herra einnig um gagn­rýni Lilju Alfreðs­dótt­ur, ferða­mála- við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sem hefur sagt opin­ber­lega að hún hafi verið mót­fallin þeirri aðferð sem beitt var við sölu á bréf­unum í Íslands­banka, til val­ins hóps fjár­festa, og að fátt hefði komið henni á óvart um það hver útkoman varð. Lilja hefur auk þess sagt að hún hafi komið þessum sjón­ar­miðum fram í aðdrag­anda útboðs­ins, en for­sæt­is­ráð­herra á móti bent á að Lilja hafi ekki bókað neitt um and­stöðu hennar á fundum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál sem þær sitja báðar í. Þor­björg spyr Katrínu með hvaða rökum hún hafi hafnað sjón­ar­miðum og við­vör­un­ar­orðum Lilju og með hvaða rökum hún hafi fall­ist á þá aðferð sem Bjarni lagði til um fyr­ir­komu­lag söl­unn­ar. 

Auglýsing
Þá spyr Þor­björg for­sæt­is­ráð­herra hvort hún telji að Lilja hafi gerst brot­leg við siða­reglur ráð­herra með því að upp­lýsa ekki um sjón­ar­mið sín fyrr en eftir að útboðið var afstað­ið, en siða­reglur ráð­herra mæla fyrir um að ráð­herra leyni ekki upp­lýs­ingum sem varða almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess.

Að end­ingu spyr hún hvers vegna látið hafi verið hjá líða að fara að þeim skil­yrðum laga um sölu­með­ferð á eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum um sam­keppni sem raktar eru í meg­in­reglum lag­anna. Þar segir meðal ann­ars að gæta skuli þess að skil­yrði þau sem til­boðs­gjöfum eru sett séu sann­gjörn og að þeir njóti jafn­ræð­is.

Sam­kvæmt þing­skap­a­lögum hefur for­sæt­is­ráð­herra 15 virka daga til að svara skrif­legum fyr­ir­spurn­um. 

Öllum mark­miðum náð

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið birti lista yfir þá 207 aðila sem fengu að kaupa 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka í lok­uðu útboði með til­boðs­að­ferð, þar sem hlut­irnir voru seldir 2,25 millj­örðum króna undir mark­aðsvirði þrátt fyrir að umfram­eft­ir­spurn hafi verið næstum tvö­föld. 

Við birt­ingu list­ans kom í ljós að félag föður Bjarna hafði keypt hlut fyrir tæp­lega 55 millj­ónir króna. Bjarni sagði í kjöl­farið við Morg­un­blaðið að hann hafi ekki haft vit­neskju um þátt­töku föður síns. Hann sagði við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis að hann hefði beðið sitt nán­asta fólk um að taka ekki þátt og að það hefði komið sér á óvart að sjá föður sinn á meðal kaup­enda. 

Í við­tali við Sprengisand á Bylgj­unni í gær­morgun var Bjarni svo aftur spurður út í kaup föður síns og svar­aði með eigin spurn­ingu: „Var honum bannað að kaupa?“ Í því við­tali sagði hann enn­fremur að öllum mark­miðum með söl­unni hafi verið náð en gagn­rýndi stjórn­ar­and­stöð­una og fjöl­miðla harð­lega fyrir þeirra umfjöllun um banka­söl­una. 

Sagði Lilju ekki hafa bókað neitt

Lilja sagði í Morg­un­­­blað­inu í 11. apríl að hún hefði ekki verið hlynnt þeirri aðferða­fræði sem var beitt við sölu á 22,5 pró­­­sent hlut í Íslands­­­­­banka 22. mars síð­­­ast­lið­inn. Hún hafi viljað almennt útboð, en ekki að bréf­in yrðu seld til val­ins hóps fjár­­­­­­­festa. Lilja, sem er einn þriggja ráð­herra rík­­­is­­­stjórnar sem situr í ráð­herra­­­nefnd um efna­hags­­­mál og end­­­ur­­­skipu­lagn­ingu fjár­­­­­mála­­­kerf­is­ins, sagð­ist hafa komið þeim sjón­­­­­ar­miðum sínum skýrt á fram­­­færi í aðdrag­anda útboðs­ins. „Ég hef alltaf talið skyn­­­­sam­­­­legt að taka lít­il og hæg­fara skref. Hafa vaðið fyr­ir neðan sig. Ekki ein­blína á verð, held­ur gæði fram­­­tíð­­­ar­­eig­enda. Önnur leið var hins veg­ar val­in og því miður er fátt sem kem­ur á óvart í þessu máli og hver út­kom­an varð.“ 

Auk Lilju sitja Bjarni og Katrín í ráð­herra­­­nefnd­inni. Sú nefnd á meðal ann­­­ars að vera stefn­u­­­mót­andi við upp­­­­­bygg­ingu fjár­­­­­mála­­­kerf­is­ins auk þess sem henni er ætlað að vera „vett­vangur sam­ráðs og sam­ræm­ingar við end­­­ur­­­skoðun fjár­­­­­mála­­­kerf­is­ins í sam­ræmi við þá áherslu í sátt­­­mála rík­­­is­­­stjórnar að breið sátt náist um end­­­ur­­­skipu­lagn­ingu fjár­­­­­mála­­­kerf­is­ins á Ísland­i“.

Katrín brást við gagn­rýni Lilju með því að segja að hún hafi ekki óskað að færa neitt til bókar um sölu­­ferli á hlut Íslands­­­banka þegar málið var rætt í rík­­is­­stjórn og ráð­herra­­nefnd um efna­hags­­mál.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent