Stærstu útgáfufyrirtækin fá rúma 81 milljón hvert í fjölmiðlastyrki

Úthlutun fjölmiðlastyrkja fyrir árið 2021 var birt í dag. Árvakur, Sýn og Torg, stærstu einkareknu fjölmiðlafyrirtæki landsins, fá rúmar 244 milljónir af þeim 389 milljónum sem voru til úthlutunar í sinn hlut.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kom frumvarpi sínu um styrki til einkarekinna fjölmiðla í gegnum þingið á vordögum.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kom frumvarpi sínu um styrki til einkarekinna fjölmiðla í gegnum þingið á vordögum.
Auglýsing

Stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­ur, Sýn og Torg, fá hvert um sig rúm­lega 81,4 millj­ónir króna í opin­beran rekstr­ar­stuðn­ing árið 2021, sam­kvæmt úthlutun sem var í höndum úthlut­un­ar­nefndar sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skip­aði.

Sam­kvæmt því sem segir á vef fjöl­miðla­nefndar í dag bár­ust alls 23 umsóknir um rekstr­ar­stuðn­ing og sam­tals sótt um stuðn­ing að fjár­hæð 880 millj­óna króna. Tveimur umsóknum var synjað og tveimur vísað frá, þar sem þær bár­ust eftir lög­bund­inn frest.

Fyrir utan stærstu fyr­ir­tækin þrjú fær Myllu­set­ur, útgef­andi Við­skipta­blaðs­ins, hæstan styrk eða 26,8 millj­ónir króna. Útgáfu­fé­lag Stund­ar­innar fær 25,3 millj­ón­ir, sjón­varps­stöðin N4 fær 19,4 millj­ónir og Kjarn­inn fær 14,4 millj­ónir króna.

Bænda­sam­tök Íslands, sem gefa út Bænda­blað­ið, fá 12,4 millj­ónum úthlut­að. Önnur útgáfu­fyr­ir­tæki fá úthlutað undir tíu millj­ónum króna.

Auglýsing

Sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla, sem breyt­ingar voru gerðar á fyrr á þessu ári, getur rekstr­ar­stuðn­ingur við einka­rekna miðla að hámarki numið 25 pró­sentum af stuðn­ings­hæfum rekstr­ar­kostn­aði umsækj­enda, en þó að hámarki til 100 pró­sent

Til úthlut­unar voru alls 392 millj­ónir króna að frá­dregnum kostn­aði vegna umsýslu, aug­lýs­inga, þókn­unar fyrir störf úthlut­un­ar­nefnd­ar, sem nam um 0,8 pró­sentum af heild­ar­upp­hæð­inni eða 3.152.661 krón­um. Til úthlut­unar voru því 388.847.339 krón­ur.

Stærstu miðl­arnir skerð­ast frá fyrra ári

Verið er að úthluta rekstr­ar­stuðn­ingi til fjöl­miðla annað árið í röð, en í fyrra var um sér­staka COVID-19 aðgerð að ræða. Þá fengu tvö stærstu útgáfu­fé­lögin hærri úthlut­un, en Árvakur fékk 99,9 millj­óna króna styrk og Sýn fékk 91,1 millj­ón.

Nú fá þessi fyr­ir­tæki, rétt eins og Torg sem gefur út Frétta­blað­ið, Hring­braut og DV, 81,4 millj­ón­ir, en Torg fékk 64,7 millj­ónir króna í fyrra. Ekk­ert fyr­ir­tæki fer upp í 100 millj­óna króna þakið sem er sett á hvert og eitt fyr­ir­tæki, eins og Árvakur gerði í fyrra.

Virð­ist úthlut­un­ar­nefndin því hafa not­ast við þá aðferða­fræði við úthlut­un­ina sem fjöl­miðla­nefnd setti fram í sínum skiln­ingi á regl­unum í umsögn til Alþingis snemma á þessu ári. Fjöl­miðla­nefnd horfði á hlut­ina með þeim hætti að ef hlutur stuðn­ings­hæfs rekstr­ar­kostn­aðar væri hærri en 100 millj­ónir króna bæri að miða við að hlutur við­kom­andi félags fyrir hlut­falls­lega skerð­ingu teld­ist aldrei hærri en 100 millj­ónir króna.

Stuðn­ing­ur­inn ætti svo að skerð­ast í jöfnum hlut­föllum þar til að heild­ar­upp­hæðin væri sú sama og áætl­aðar fjár­veit­ingar til verk­efn­is­ins.

Athuga­semd rit­stjórnar: Kjarn­inn er eitt þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem nýtur opin­bers rekstr­ar­stuðn­ings.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent