Stjórn KSÍ öll búin að segja af sér

Ákveðið var á stjórnarfundi í dag að flýta aðalþingi KSÍ og halda það innan fjögurra vikna. Öll stjórn sambandsins hefur sagt af sér.

36-utgafa_14085092642_o.jpg
Auglýsing

Stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) sam­þykkti á fundi sínum í dag að boða með fjög­urra vikna fyr­ir­vara til auka­þings í sam­ræmi við 13. grein laga KSÍ. Stjórn, vara­full­trúar og lands­hluta­full­trúar ákváðu á sama tíma að segja af sér og munu skila umboði sínu í síð­asta lagi þegar til auka­þingis kem­ur. Ásgeir Ásgeirs­son stjórn­ar­maður til­kynnti fyrr í kvöld að hann segi sig frá trún­að­ar­störfum fyrir KSÍ sam­stund­is. Í pistli sem hann rit­aði á Face­book sagði Ásgeir að „drullan hafi dunið yfir“ hann án þess að hann hefði gert nokkuð af sér. „Ég get ekki boðið mér og minni fjöl­skyldu uppá þann við­bjóð sem hefur verið sagt um okkur í stjórn KSÍ.“

Klara Bjart­marz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, ætlar að gegna starfi sínu áfram en skorað hafði verið á hana að segja einnig af sér. Hún stað­festi það í tíu­fréttum RÚV í kvöld.

„Þessi nið­ur­staða er í sam­ræmi við áskor­anir Íslensks Topp­fót­bolta, óskir full­trúa félaga sem sent hafa áskorun um auka­þing og þrýst­ing frá sam­fé­lag­inu. Stjórnin hefur fundað með for­seta ÍSÍ um fram­gang máls­ins og um það hvernig best verður haldið um starf­semi KSÍ fram að auka­þingi svo starf­semin hald­ist órof­in. Fundað verður með full­trúum UEFA og FIFA um stöðu máls­ins og fyr­ir­huguð stjórn­ar­skipti þannig að ekki þurfi að koma til afskipta knatt­spyrnu­sam­band­anna að starf­semi sam­bands­ins.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá KSÍ. Þar segir einnig að vinna fag­hóps um end­ur­skoðun við­bragða við kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi innan hreyf­ing­ar­innar og hvernig staðið var og verður að stuðn­ingi við þolendur verði áfram í for­gangi.

Auglýsing
Í gær var til­kynnt að Guðni Bergs­son, for­maður KSÍ, myndi segja af sér í kjöl­far mik­illar umræðu eftir að frá­sagnir af kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borð­ið. Þjar­mað var að KSÍ í kjöl­farið en sam­bandið neit­aði ítrekað að slík mál hefðu „komið á þeirra borð“. Guðni sagði sjálfur við Frétta­blaðið að þau hefðu ekki fengið neinar til­kynn­ingar né ábend­ingar um slíkt inn á þeirra borð síðan hann tók við for­mennsku en hins vegar væru þau með­vituð um frá­sagnir á sam­fé­lags­miðl­um.

Ung kona steig hins vegar fram í við­tali við RÚV á föstu­dags­kvöldið og greindi frá því að hún hefði orðið fyrir ofbeldi og grófri kyn­ferð­is­legri áreitni af hálfu lands­liðs­manns í knatt­spyrnu árið 2017. Hún sagði einnig frá sam­skiptum við KSÍ á sínum tíma og furð­aði sig á að for­maður KSÍ full­yrti að engin til­kynn­ing hefði borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot leik­manna. Konan sagði að lög­maður á vegum KSÍ hefði boðið henni þagn­ar­skyldu­samn­ing sem hún hafn­aði.

KSÍ neit­aði síðar um kvöldið að umræddur lög­maður hefði verið á þeirra vegum en hún stóð föst á sínu.

Til­kynntu í gær að þau ætl­uðu að sitja áfram

Stjórn KSÍ til­kynnti hins vegar í gær að hún og lyk­il­starfs­menn myndu sitja áfram. Vinna myndi hefj­ast með utan­að­kom­andi fag­að­ilum um að end­ur­skoða öll við­brögð við kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi innan KSÍ og hvernig staðið var og verður að stuðn­ingi við þolend­ur. Fag­hópur yrði settur á lagg­irnar og stjórn KSÍ hét því í yfir­lýs­ingu að taka á þessum málum af alvöru og festu og fylgja ráð­legg­ingum fag­hóps­ins.

­Stjórnin hefur fundað und­an­farna daga um þær alvar­legu ásak­anir sem beinst hafa að sam­band­inu að und­an­förnu um þöggun kyn­ferð­is­brota. „Við lítum málið afar alvar­legum aug­um,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Þar sagði enn fremur að allir stjórn­ar­menn hefðu íhugað stöðu sína en ákveðið að sitja áfram. Vara­for­menn KSÍ myndu taka við verk­efnum sem höfðu verið á hendi Guðna, en þau eru Gísli Gísla­son og Borg­hildur Sig­urð­ar­dótt­ir.

Ákvörðun stjórn­ar­innar var illa tekið og aðild­ar­fé­lög KSÍ skor­uðu á stjórn­ina og fram­kvæmda­stjór­ann Klöru Bjart­marz að segja af sér. Þá kröfð­ust stórir styrkt­ar­að­ilar sam­bands­ins skýr­inga á stöðu mála auk þess sem mikil sam­fé­lags­legur þrýst­ingur skap­að­ist á að gripið yrði til frek­ari aðgerða. Það leiddi til þess að stjórnin sagði öll af sér í kvöld.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent