Stjórn Samherja sendir bréf til bankaráðs - Varpar ljósi á „brotalamir“

--orsteinnmar.jpg
Auglýsing

Stjórn Sam­herja hefur sent banka­ráði Seðla­banka Íslands form­legt bréf þar sem þess er óskað að banka­ráðið hlut­ist til um það, að skoð­un fari fram á því hvernig Seðla­banki Íslands hafi staðið að rann­sóknum á meintum brotum gegnum gjald­eyr­is­lög­um.

Í bréf­inu, sem birt er á heima­síðu Sam­herja, er Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri harð­lega gagn­rýndur og orð sem hann hefur látið falla um mál­ið, þar sem vitnað er til „laga­klúð­ur­s“, eru harð­lega gagn­rýnd. Segir í bréf­inu að málin á hendur stjórn­endum Sam­herja hafi verið látin niður falla vegna þess að ekki hafi fund­ist nein rök fyrir ásök­unum um lög­brot eftir ítar­lega rann­sókn.

Eins og þegar hefur verið greint frá, felldi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara niður mál á hendur Þor­steini Má Bald­vins­syni, og þremur öðrum stjórn­endum Sam­herja, en gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands kærði meint lög­brot til emb­ætt­is­ins. Má rekja upp­haf máls­ins til umfangs­mik­illa hús­leita í mars 2012 í höf­uð­stöðvum Sam­herja á Akur­eyri og í Reykja­vík þar sem hald var lagt á gögn fyr­ir­tæk­is­ins.

Auglýsing

Stjórn Samherja gagnrýnir Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, harðlega. Mynd: Anton. Stjórn Sam­herja gagn­rýnir Má Guð­munds­son, seðla­banka­stjóra, harð­lega. Mynd: Ant­on.

Í bréfi stjórnar Sam­herja er fram­ferði seðla­bank­ans harð­lega gagn­rýnt.

„Að mati stjórnar Sam­herja hefur þetta mál varpað ljósi á alvar­legar brotala­mir í stjórn­sýslu og starf­semi seðla­bank­ans, sem og seðla­banka­stjóra sjálfs, í gjald­eyr­is­mál­um. Hvort ein­göngu sé um að kenna brotum bank­ans á þeim lögum og reglum sem um hann gilda eða hvort sá lag­ara­mmi sem veita á bank­anum aðhald og stýra honum í átt til góðrar stjórn­sýslu sé um að kenna verður ekki sagt til um hér. Hins vegar varpar mál þetta ljósi á brýna nauð­syn þess að stjórn­sýsla bank­ans og seðla­banka­stjóra í gjald­eyr­is­málum og -eft­ir­liti, sé skoðuð ofan í kjöl­inn, og er þess, sem fyrr seg­ir, óskað að banka­ráð Seðla­bank­ans hlut­ist til um það,“ segi í lokarðum bréfs­ins.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None