Björgólfur Thor: Jarðarför Icesave grýlunnar fór næstum fram í „kyrrþey“

Bjorgolfur_Thor_Bjorgolfsson_til_debatarrangenmentet_Thors_Saga_._hvordan_kommer_Island_videre.jpg
Auglýsing

„Nú er end­an­lega búið að stað­festa dauða gömlu Ices­a­ve-grýl­unn­ar. Jarð­ar­för hennar fór næstum fram í kyrr­þey, a.m.k. sé miðað við þær upp­hróp­an­ir, for­mæl­ingar og djöf­ul­skap sem ein­kenndu til­veru henn­ar. Öll sú til­finn­inga­semi var byggð á inn­an­tómum hræðslu­á­róðri og stjórn­mála­menn þess tíma ættu að skamm­ast sín fyrir að leiða þjóð­ina á þær skað­legu braut­ir,“ segir Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi stærsti eig­andi Lands­banka Íslands ásamt föður sínum Björgólfi Guð­munds­syni, á vef sínum í dag.

Þar gerir hann upp­gjör Ices­ave skuld­ar­innar að umtals­efni, en eins og greint var frá 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn er Ices­a­ve-­deil­unni form­lega lokið með upp­gjörs­greiðslu Trygg­ing­ar­sjóðs inn­stæðu­eig­enda og fjár­festa til Breta og Hol­lend­inga, upp á 20 millj­arða króna.

Trygg­ing­ar­sjóður inn­stæðu­eig­enda og fjár­festa hefur nú þegar greitt Hol­lend­ingum og Bretum sam­tals tutt­ugu millj­arða íslenskra króna úr B deild sjóðs­ins, en í þeirri deild eru fjár­munir sem að mestu leyti var safnað fyrir banka­hrun­ið, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

DNB og FSCS hafa eins og aðrir for­gangs­kröfu­hafar hjá þrota­búi gamla Lands­bank­ans fengið greiðslur frá gamla Lands­bank­anum sem nema um 85 pró­sentum af höf­uð­stól krafn­anna.

Á vef sínum segir Björgólftur Thor að „skömm“ þeirra sem hafði séð sér hag í því að búa til „grýlu“ úr Ices­a­ve-­mál­inu, en ekki leita lausna og horfa til mik­il­vægi þess að vernda eign­ir, sé mik­il. „Þjóðin klofn­aði í stríð­andi fylk­ingar og  ásak­anir um föð­ur­lands­svik urðu svo algengar að eng­inn virt­ist gera sér grein fyrir alvar­leika þeirra leng­ur. Lífs­kjör hér áttu að fær­ast aftur á stein­öld og þjóð­ar­innar beið það eitt að verða und­ir­ok­aðir þrælar stór­þjóða. Stjórn­mála­menn kyntu margir und­ir, í stað þess að hefja sig upp yfir öfgarnar og benda rólega og yfir­vegað á færar leiðir til lausn­ar. Skömm þeirra er mik­il.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None