Sumarbörn fá ekki borgað – lögfræðingar í málinu

sumarborn.jpg
Auglýsing

„Til okkar hafa leitað félags­menn, ell­efu tals­ins, sem hafa ekki fengið greidd laun vegna vinnu við mynd­ina og við erum að reyna að aðstoða þá eftir fremsta megn­i,“ segir Hrafn­hildur Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Félags kvik­mynda­gerð­ar­manna. Vinna við mynd­ina Sum­ar­börn, sem fékk einn hæsta styrk­inn úr Kvik­mynda­sjóði Íslands í fyrra, 90 millj­ónir króna, er nú í nokk­urri óvissu þar sem starfs­fólk hefur ekki fengið greidd laun að fullu fyrir vinnu sína. „Við lítum þetta mjög alvar­legum augum og auð­vitað von­umst við eftir því að úr þessu verði leyst og starfs­fólkið fái launin greidd sem það á inni sem allra fyrst.“ Lög­fræð­ing­ar, fyrir hönd þeirra sem eiga laun inni, hafa sent fram­leið­endum mynd­ar­innar bréf og kraf­ist þess að launin verði greidd hið fyrsta.

Hrafn­hildur segir málið líka við­kvæmt þar sem stór hópur barna hafi verið meðal leik­ara í mynd­inni og að þau hafi ekki fengið greidd laun eins og um hafi verið samið í upp­hafi. Ekki síst í ljósi þess skipti máli að fram­leið­andi mynd­ar­inn­ar, fyr­ir­tækið Ljós­band, standi við sitt.

Í for­svari fyrir Ljós­band eru Anna María Karls­dóttir og Hrönn Krist­ins­dótt­ir, sem hafa mikla reynslu af kvik­mynda­gerð og fram­leiðslu.

Auglýsing

Hrönn sagði í sam­tali við Kjarn­ann að henni þætti mjög leitt að ekki hefði tek­ist að greiða laun að fullu. Hún sagði ekki vera neinn skort á greiðslu­vilja og að þau sem að fram­leiðslu mynd­ar­innar stæðu ætl­uðu sér að gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að standa í skilum við alla þá sem ættu inni laun vegna Sum­ar­barna, bæði starfs­fólk og leik­ara. Vonir stæð­u ­jafn­vel til þess að hægt yrð­i að gera það fyrir næstu mán­aða­mót og að fram­leið­end­urnir væru í sam­skiptum við for­eldra þeirra barna sem ættu inni laun vegna mynd­ar­inn­ar. Allt yrði gert til þess að greiða fólki það sem það ætti inni vegna mynd­ar­inn­ar.

Hrönn sagði enn fremur að málið sner­ist ekki síst um það að ekki hefði tek­ist að losa um fjár­magn til þess að greiða fólki í takt við það sem um hefði verið samið. „Kvik­myndin er þó full­fjár­mögn­uð,“ segir Hrönn, en hið 90 millj­óna króna fram­lag úr Kvik­mynda­sjóði dekk­aði aðeins hluta kostn­að­ar­ins við mynd­ina. Þá hefði auk þess ekki náðst að fá end­ur­greiddan virð­is­auka­skatt, eins og reiknað hefði verið með, og það hefði gert erf­iða stöðu enn þyngri.

Heild­ar­kostn­aður við mynd­ina er áætl­aður 214 millj­ónir króna, en Guð­rún Ragn­ars­dóttir er leik­stjóri mynd­ar­inn­ar. Um mjög metn­að­ar­fullt verk­efni er að ræða og er með­fram­leið­andi mynd­ar­innar norsk­ur.

Myndin segir sögu systk­ina sem eru send frá ást­vinum sínum á stað þar sem þeim er ekki sinnt. Þau þrá að kom­ast aftur heim. Inn í sög­una flétt­ast frá­sagnir af hinum börn­unum á barna­heim­il­inu og aðstæðum þeirra. Aðal­per­sónan flýr á vit ímynd­unar og svo kemur hestur og eig­andi hans við sögu, að því er sagði í umfjöllun RÚV um mynd­ina, hinn 27. októ­ber í fyrra, í til­efni af því að tökum á mynd­inni lauk.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None