Tæp tíu prósent áskrifenda DV hafa sagt upp áskrift

15003113329-3d9263f7fd-z.jpg
Auglýsing

538 manns hafa sagt upp áskrift að DV á und­an­förnum tveimur vik­um, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Þetta eru rúm­lega tíu pró­sent allra áskrif­enda blaðs­ins, en áskrif­endur blaðs­ins eru á milli fimm og sex þús­und tals­ins. Tap­aðar tekjur vegna þess­arra áskrifta eru tæpar tvær millj­ónir króna á mán­uði miðað við upp­gefið verð á áskrift á vef DV, www.dv.is. Engir nýir áskrif­endur hafa komið á móti.

Mik­ill styr hefur staðið um eign­ar­haldið á DV und­an­farnar tvær vik­ur. Þor­steinn Guðna­son, sem heldur því fram að hann hafi bæði keypt hlutafé í DV og lánað háar fjár­hæðir til rekstur útgáfu­fé­lags DV á und­an­förnum miss­erum, hefur viljað fá ítök í stjórn í sam­ræmi við eign­ar­hald sitt. Reynir Trausta­son, rist­jóri og einn stærsti eig­andi DV, og hópur tengdur honum hef­ur­haft tögl og haldir í stjórn­inni til þess.

Reynir hefur sagt að á bak­við Þor­steinn standi Gísli Guð­munds­son, fyrrum eig­andi B&L. Hann hafi í raun fjár­magnað bæði hluta­bréfa­kaup hans og lán. Þá hefur komið fram að umræddur Gísli hafi einnig lánað Reyni fé til að auka við hlut sinn í DV. Reynir hefur einnig geng­ist við því að hafa fengið 15 millj­ónir króna lán­aðar frá útgerð­ar­mann­inum Guð­mundi Krist­jáns­syni, kenndum við Brim, vegna sömu ástæðu.

Auglýsing

Talið er borð­liggj­andi að nái hópur Þor­steins Guðna­sonar meiri­hluta í DV muni feðgarnir Reynir Trausta­son, rit­stjóri, og Jón Trausti Reyn­is­son, fram­kvæmda­stjóri, missa störf sín. Því til stuðn­ings er hægt að vísa í að Björn Þor­láks­son, rit­stjóri Akur­eyr­i-Viku­blaðs, hefur upp­lýst um það opin­ber­lega að honum hafi verið boð­inn rit­stjóra­stóll­inn hjá DV.

Björn Leifs­son, kenndur við World Class, hefur einnig blandað sér í mál­ið. Hann keypti rúm­lega fjög­urra pró­senta hlut í DV á síð­ustu vikum og lýsti því opin­ber­lega yfir að hann ætl­aði sér að losna við Reyni Trausta­son úr rit­stjóra­stóli. Tæk­ist það væru bréf hans á ný til sölu.

Hlut­hafa­fundur í DV fór fram síð­ast­lið­inn föstu­dag og var búist við því að fram­tíð blaðs­ins myndi liggja fyrir eftir hann. Það varð ekki og fund­inum var frestað um viku vegna ágrein­ings um árs­reikn­ing útgáfu­fé­lags­ins. Hinn frestaði fundur fer fram næst­kom­andi föstu­dag.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None