Rekstrartap samstæðu opinbera hlutafélagsins Isavia á fyrri hluta þessa árs nam 5,1 milljarði króna, sem er svipuð afkoma og á fyrri hluta seinasta árs. Í fyrra tapaði Isavia 13,2 milljörðum og samanlagt rekstrartap Isavia árið 2020 og á fyrri hluta þessa árs nemur því 18,3 milljörðum króna.
Isavia segir frá rekstrarafkomu sinni á fyrri hluta árs í tilkynningu í dag. Í henni segir að áhrifa kórónuveirunnar hafi enn gætt verulega á rekstur félagsins á fyrri hluta ársins, en samdráttur tekna var um 27 prósent miðað við fyrri helming síðasta árs og 65 prósent miðað við fyrri helming ársins 2019. Ef eingöngu er horft til móðurfélagsins, sem sinnir rekstri Keflavíkurflugvallar er tekjusamdrátturinn enn meiri, eða um 83 prósent miðað við fyrri helmings árs 2019.
„Miðað við fyrri helming ársins 2020 fóru 76% færri farþegar um Keflavíkurflugvöll en á sama tímabili á þessu ári. Ef bornir eru saman fyrri helmingar áranna 2019 og 2021 nemur samdrátturinn um 93%,“ segir í tilkynningu Isavia.
Í tilkynningunni segir að heildarafkoma tímabilsins hafi verið neikvæð um 3,5 milljarða króna samanborið við neikvæða afkomu um 7,6 milljarða króna fyrir sama tímabil í fyrra. Þann viðsnúning segir að rekja megi til „jákvæðra gengisáhrifa vegna langtímalána í erlendum gjaldmiðlum.“
Forstjórinn segir sóttvarnatakmarkanir skýra færri farþega en búist var við
Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia segir í tilkynningu að áhrifa veirunnar gæti enn verulega á rekstur flugvalla og flugleiðsöguþjónustu og segir hann sömuleiðis að harðar sóttvarnatakmarkanir á landamærum hafi dregið úr fjölda farþega um Keflavíkurflugvöll.
„Endurheimtin á Keflavíkurflugvelli hefur farið hægar af stað en við áttum von á. Ljóst er að fjöldi farþega á síðustu mánuðum þessa árs verður minni en við vonuðumst eftir og má rekja það beint til harðra takmarkana sóttvarnaryfirvalda á landamærum Íslands. Flugfélög hafa dregið úr framboði sínu og þeim flugfélögum, sem við töldum að myndu sinna flugi til Íslands yfir vetrarmánuðina, hefur fækkað og gæti þeim auðveldlega fækkað enn frekar. Þessi staða er mikið áhyggjuefni, og í raun alvarleg, þar sem við ættum að vera að vinna með endurheimtinni en ekki gegn henni,“ er haft eftir Sveinbirni í tilkynningu Isavia.
Áfram haldið með uppbyggingu í Keflavík
Í tilkynningunni er segir að þrátt fyrir óvissu í vetur hafi Isavia að nýju hafið framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli í samræmi við uppbyggingaráætlun félagsins:
„Ákvörðun um að auka hlutafé í Isavia fyrr á árinu gerði okkur mögulegt að hefjast handa við uppbygginguna á Keflavíkurflugvelli og stuðla þannig áfram að endurreisn ferðaþjónustunnar. Frekari uppbygging, og þá ekki síst þegar kemur að tengistöðinni á Keflavíkurflugvelli, styður við fjölgun öflugra flugtenginga en þær eru ein af lykilforsendum lífsgæða á Íslandi,” er haft eftir forstjóranum um þetta efni.