Ásta Möller, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hún telji mikilvægt að veita Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ráðherra brautargengi til að leiða lista flokksins í Norðvesturkjördæmi til komandi alþingiskosninga.
Þetta kom fram í aðsendri grein Ástu í Skessuhorni á miðvikudag, en greinin er svar við annarri grein eftir Óðin Sigþórsson, sem birtist á sama vettvangi í lok mars.
Eins og Kjarninn fjallaði um nýlega hefur titrings orðið vart vegna væntanlegrar prófkjörsbaráttu á milli Þórdísar Kolbrúnar og Haralds Benediktssonar, sem leitt hefur lista sjálfstæðismanna í kjördæminu í síðustu kosningum.
Í grein Óðins sagði meðal annars að ef Þórdísi Kolbrúnu tækist að fella Harald úr oddvitasætinu myndi það „veikja flokkinn í komandi kosningum“ og einu gilti þá um hvernig sæti skipuðust að öðru leyti. Haraldur hefði sýnt drengskap með því að „víkja til hliðar“ og lýsa yfir stuðningi við að Þórdís Kolbrún yrði ráðherra.
Ásta segir í grein sinni að Óðinn hafi tekið að sér að „vera sár fyrir hönd vinar síns“ Haraldar, sem sé vel virtur þingmaður og hafi staðið sig með prýði í sínum störfum. „En hann, ekki frekar en nokkur annar stjórnmálamaður, á nokkuð gefið í stjórnmálum, hvorki sæti né forfrömun. Þar ráða umbjóðendur hans fyrst og fremst,“ segir í grein Ástu.
Myndi einhver gera athugasemdir ef Þórdís væri karl?
Þar spyr hún hvað sé eðlilegra en að „metnaðarfullur stjórnmálamaður sem hefur vakið athygli fyrir áræðni, glæsileika, dugnað og hugmyndaríki kalli eftir stuðningi flokksfélaga sinna og bjóði sig fram til forystu á lista í sínu kjördæmi“ og nefnir að Þórdís Kolbrún hafi að aukið fengið traust til gegna ráðherraembætti og verið kjörin varaformaður.
„Ég velti því fyrir mér hvort einhver hefði við þessa ákvörðun ráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins að athuga væri viðkomandi karl en ekki kona. Spyr sá sem ekki veit, en sem grunar eitt og annað. Ef rétt er þá eru þetta úrelt viðhorf sem ekki eiga heima í Sjálfstæðisflokknum,“ skrifar Ásta í greininni. Hún segir raunar að hún hefði sjálf staldrað við ef varaformaður flokksins myndi ekki sækjast eftir því að leiða lista í sínu kjördæmi.
Það er því tekist á innan Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna prófkjörsmálanna, en allangt er þó þar til prófkjörið fer fram, en það verður ekki fyrr en um miðjan júní.
Þegar hefur gustað um vegna þessa, en snemma í mars, eftir að Þórdís Kolbrún opinberaði að hún ætlaði sér að fara gegn Haraldi og sækjast eftir oddvitasætinu á bæjarmálafundi flokksins á Akranesi, ákvað Halldór Jónsson að segja sig frá formannsstöðu í kjördæmisráði flokksins.
Hann skrifaði bréf til forystu flokksins þar sem sagði meðal annars að Þórdís Kolbrún hefði að hans mati ekki sett fram ríkar málefnalegar ástæður fyrir því að skora oddvita flokksins í kjördæminu á hólm.
„Þvert á móti lýsti hún afar vel styrk og góðum störfum Haraldar sem fyrsta þingmanns kjördæmisins. Það er rétt metið hjá varaformanninum því þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður sjá íbúar kjördæmisins mörg erfið mál þokast áfram eftir kyrrstöðu. Það er ekki síst elju og vinnusemi Haraldar að þakka,“ skrifaði Halldór til flokksforystunnar, samkvæmt frétt Skessuhorns um málið.