Segir að það sé „sérstök orka“ og „rosalegur kraftur“ hjá Play, sem undirbýr flugtak

Birgir Jónsson, nýráðinn forstjóri flugfélagsins Play, segir að honum líði eins og allt sem hann hafi gert hingað til hafi verið uppbygging að því takast á við forstjórastarfið hjá Play. Félagið auglýsir í dag tvær yfirmannastöður lausar til umsóknar.

Flugfélagið Play kynnti sig til leiks í árslok 2019. Síðan kom heimsfaraldur, en nú er komið nýtt fjármagn að borðinu og stefnt að flugi á næstu mánuðum.
Flugfélagið Play kynnti sig til leiks í árslok 2019. Síðan kom heimsfaraldur, en nú er komið nýtt fjármagn að borðinu og stefnt að flugi á næstu mánuðum.
Auglýsing

Birgir Jóns­son, nýráð­inn for­stjóri flug­fé­lags­ins Play, segir aldrei hafa „verið eins spenntur fyrir neinu á ævinni eins og tæki­fær­inu sem Play hefur til að ná árangri.“ Þetta sagði for­stjór­inn í færslu á Face­book í morgun og lét fylgja að það væri ein­hver „sér­stök orka“ sem umlykti fólkið sem starf­aði hjá fyr­ir­tæk­inu og fólk­inu sem hefði fjár­fest í félag­inu sömu­leið­is.

„Ótrú­legur metn­aður og hungur í árang­ur. Rosa­legur kraft­ur,“ skrifar Birgir og deilir nýrri starfs­aug­lýs­ingu frá félag­inu, en Play aug­lýsir í dag tvær yfir­manna­stöður lausar til umsókn­ar, ann­ars vegar stöðu fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs og hins vegar stöðu fram­kvæmda­stjóra sölu- og mark­aðs­sviðs.

„Þetta verður erfitt, flókið og hratt. En djöf­ull sem þetta verður gam­an!!“ skrifar for­stjóri Play og bætir við að það sé „gríð­ar­legur heið­ur“ fyrir sig að fá að leiða hóp­inn – „ein­hvern­veg­inn finnst mér eins og að allt sem ég hef gert hingað til hafi verið upp­bygg­ing að þessu verk­efn­i.“

Birgir, sem síð­ast starf­aði sem for­stjóri Íslands­pósts, hefur reynslu úr flug­heim­inum en hann var á sínum tíma fram­kvæmda­stjóri lággjalda­flug­fé­lags­ins Iceland Express og síðar aðstoð­ar­for­stjóri hjá WOW air.

Auglýsing

Í starfs­aug­lýs­ing­unni frá Play segir að í hluta­fjár­út­boði félags­ins, sem lauk í síð­ustu viku, hafi fjár­festar komið með alls ríf­lega 6 millj­arða króna í nýju hlutafé inn í félag­ið.

„Á næstu vikum og mán­uðum er fyr­ir­hugað að bjóða almenn­ingi að fjár­festa í Play sam­hliða skrán­ingu á verð­bréfa­markað First North, leggja loka­hönd á öflun flug­rekstr­ar­leyf­is, hefja sölu flug­miða og að sjálf­sögðu – byrja að fljúga. Meira seinna,“ segir í aug­lýs­ingu félags­ins.

Ég hef aldrei verið eins spenntur fyrir neinu á ævinni eins og tæki­fær­inu sem Play hefur til að ná árangri. Það er...

Posted by Birgir Jóns­son on Sat­ur­day, April 17, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent