Teva greiðir á sjötta hundrað milljarða í sátt vegna máls sem tengist Actavis

Lyfjafyrirtækið Teva hefur nú náð samkomulagi í fjölda dómsmála sem höfðuð hafa verið gegn því í kjölfar ópíóðafaraldursins í Bandaríkjunum. Fyrirtækið keypti Actavis árið 2016 en Actavis hefur verið stór framleiðandi ópíóðalyfja fyrir Bandarískan markað.

Um hálf milljón Bandaríkjamanna hafa látist í ópíóðafaraldrinum á síðastliðnum tveimur áratugum.
Um hálf milljón Bandaríkjamanna hafa látist í ópíóðafaraldrinum á síðastliðnum tveimur áratugum.
Auglýsing

Ísra­elski lyfja­fram­leið­and­inn Teva hefur náð sam­komu­lagi um 4,25 millj­arða Banda­ríkja­dala sátt­ar­greiðslu vegna sölu fyr­ir­tæk­is­ins á ópíóðum í Banda­ríkj­un­um. Upp­hæðin sam­svarar um 584 millj­örðum króna. Teva keypti íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Act­a­vis árið 2016 en Act­a­vis var meðal þeirra lyfja­fyr­ir­tækja sem seldu hve mest af ópíóða­lyfjum í Banda­ríkj­unum árunum 2006 til 2014.

Sagt er frá því á vef New York Times að sam­komu­lagið feli í sér að fyr­ir­tækið greiði stjórn­völdum og sam­fé­lögum frum­byggja í Banda­ríkj­unum bætur á þrettán ára tíma­bili. Fjár­mun­irnir sem fyr­ir­tækið mun þurfa að greiða eru, líkt og áður seg­ir, 4,25 millj­arðar dala en inni í þeirri tölu eru bætur að fjár­hæð tæp­lega 550 milljón dala, um 75 millj­arða króna, sem fyr­ir­tækið hafði áður fall­ist á að greiða stjórn­völdum í San Frans­isco, Flori­da, West Virg­inia, Texas, Lou­isi­ana og Rhode Island.

„Þrátt fyrir að í sam­komu­lag­inu felist ekki við­ur­kenn­ing á mis­gerð­um, þá er það í hag fyr­ir­tæk­is­ins að ljúka þessum málum og ein­beita sér þess í stað að þeim sjúk­lingum sem við þjón­ustum á degi hverj­u­m,“ segir í yfir­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Auglýsing

Árið 2016 keypti Teva íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Act­a­vis af All­ergan en til þess að hægt sé að ljúka málum Teva, þarf All­ergan einnig að ganga frá sam­komu­lagi um sátta­greiðsl­ur. Von er á að þeim við­ræðum ljúki fljót­lega.

Mark­aðs­hlut­deild Act­a­vis í sölu ópíóða 32 pró­sent

Í grein­ingu Was­hington Post frá því árið 2019 sem fjallar um ópíóða­far­ald­ur­inn sem unnin var upp úr gögnum banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins kemur fram að Act­a­vis hafi verið næst stærsti fram­leið­andi ópíóða­lyfja á banda­rískum mark­aði á árunum 2006 til 2014. Á þessu tíma­bili nam mark­aðs­hlut­deild Act­a­vis 32 pró­sentum en félagið seldi 32 millj­arða pilla á tíma­bil­inu. Fyrr á þessu árið fjall­aði Stundin sér­stak­lega um hlut Act­a­vis í ópíóða­far­aldr­in­um.

Í frétt Reuters um sam­komu­lagið segir um ópíóða­far­ald­ur­inn í Banda­ríkj­unum að hann hafi dregið í það minnsta hálfa milljón Banda­ríkja­manna til dauða á síð­ast­liðnum tveimur ára­tug­um. Þar af lét­ust 80 þús­und vegna notk­unar ópíóða­lyfja árið 2021 þar í landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent