Tvö ráðuneyti ekki að birta upplýsingar úr málaskrám eins og lög gera ráð fyrir

Vegna uppstokkunar ráðuneyta innan hafa tvö ráðuneyti það sem af er ári ekki birt upplýsingar úr málaskrám sínum eins og þeim er skylt að gera samkvæmt upplýsingalögum. Það stendur þó til bóta.

Stjórnarráðið
Auglýsing

Bæði mat­væla­ráðu­neytið og menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neytið hafa það sem af er ári ekki birt upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum eins og kveðið er á um að ráðu­neyti skuli gera sam­kvæmt upp­lýs­inga­lög­um.

Í báðum til­fellum er ástæðan fjölgun ráðu­neyta og upp­stokkun mála­flokka innan stjórn­ar­ráðs­ins, sam­kvæmt svörum ráðu­neyt­anna til Kjarn­ans, en unnið er að því að koma birt­ing­unni af stað.

Frá því að breyt­ingar á upp­lýs­inga­lögum tóku gildi í fyrra hefur ráðu­neytum verið skylt að birta upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum með raf­rænum hætti. Að lág­marki skulu ráðu­neytin birta skrá yfir mál sem eru til með­ferðar í ráðu­neyt­inu í til­efni af inn­sendum eða útsendum erind­um, þar sem til­greind eru bæði máls­númer og heiti máls.

Auglýsing

Þessar breyt­ingar voru gerðar á upp­lýs­inga­lögum í því skyni að „auka upp­lýs­inga­frelsi og gagn­sæi í stjórn­sýsl­unni“ sagði í til­kynn­ingu stjórn­valda er vakin var athygli á því að birt­ing þess­ara upp­lýs­inga væri hafin í mars í fyrra.

Þá var sett upp sér­stök síða á vef stjórn­ar­ráðs­ins, þar sem hægt hefur verið að nálg­ast Excel-skjöl með upp­lýs­ingum úr mála­skrám ráðu­neyta allar götur síð­an. Upp­lýs­ing­arnar eru birtar með eins til tveggja mán­aða töf, þannig að núna í júlí hafa nýj­ustu upp­lýs­ing­arnar úr mála­skránum sem birtar eru á vef stjórn­ar­ráðs­ins verið frá því í maí.

Unnið að sam­ein­ingu mála­skráa og nýjum verk­ferlum

Sem áður segir er hins vegar ekki hægt að sjá neinar upp­lýs­ingar úr mála­skrám tveggja ráðu­neyta það sem af er ári, og það á sínar skýr­ing­ar.

Í svari frá mat­væla­ráðu­neyt­inu segir að þegar ráðu­neytið tók til starfa 1. febr­úar síð­ast­lið­inn hafi haf­ist „um­fangs­mikil vinna við sam­ein­ingu mála­skráa af mál­efna­sviðum fyrrum ráðu­neyta“ og að nú sjái fyrir end­ann á þeirri vinnu. Því stytt­ist í „að hægt verði að gera upp­lýs­ingar úr mála­skránni aðgengi­legar á vef stjórn­ar­ráðs­ins“.

Í svari frá menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu segir að eftir breyt­ing­arnar sem gerðar voru á ráðu­neyt­unum hafi verið unnið að því að búa til nýja vinnu­ferla. Til standi að birta þær upp­lýs­ingar sem standa út af um eða eftir mán­að­ar­mót, er upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins snúi aftur úr sum­ar­fríi.

Kjarn­inn sendi for­sæt­is­ráðu­neyt­inu einnig fyr­ir­spurn vegna þessa, en ráðu­neytið ann­ast fram­kvæmd upp­lýs­inga­laga og er það í höndum for­sæt­is­ráð­herra hvernig birt­ingu upp­lýs­inga frá ráðu­neyt­unum skal hátt­að, þar með talið hvar og hvernig upp­lýs­ingar skuli birt­ar, eins og nánar er farið yfir í reglu­gerð um birt­ingu upp­lýs­inga að frum­kvæði stjórn­valda sem Katrín Jak­obs­dóttir setti árið 2018.

Frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu höfðu hins vegar ekki svör er þessi frétt birtist, fyrir utan sjálf­virkt svar um að tölvu­póstur blaða­manns hafi verið mót­tek­inn.

Með því staðl­aða svari fylgir eft­ir­far­andi klausa: „At­hygli er vakin á að skv. 2. mgr. 13. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012 er ráðu­neyti í Stjórn­ar­ráði Íslands skylt að birta upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum með raf­rænum hætt­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent