Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur formlega sagt upp störfum frá og með 1. september næstkomandi.
Þetta kemur fram á vef embættis landlæknis í dag.
Þar segir að ástæður uppsagnarinnar séu bæði persónulegar og faglegar. „Nú er núverandi bylgja COVID-19 að mestu yfirstaðin og nýr kafli að hefjast í starfsemi sóttvarnalæknis. Í þessum nýja kafla felast meðal annars uppgjör á viðbrögðum við COVID-faraldrinum með það fyrir augum að bæta viðbrögð við faröldrum framtíðarinnar og vinna við þau lögboðnu verkefni sem sóttvarnalækni er ætlað að sinna en hafa að miklu leyti fallið niður á tímum COVID-19,“ segir á vef landlæknis.
Verður sjötugur á næsta ári
Þá kemur fram að þó að Ísland sé nú á góðum stað í COVID-faraldrinum þá sé honum hvergi lokið á heimsvísu og á meðan að svo er, þurfi að fylgjast náið með tilkomu nýrra afbrigða veirunnar og hversu vel og lengi ónæmið sem einstaklingar hafa náð mun vara. Að auki muni koma til lögskipaðra starfsloka sóttvarnalæknis á næsta ári er hann verður sjötugur.
Embætti landlæknis mun á næstu dögum auglýsa starf sóttvarnalæknis.