Tilvalið að dreifa hlutum í Íslandsbanka til almennings í næsta skrefi

Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir flokk sinn lengi hafa talað fyrir því að dreifa hlutum úr ríkisbönkum til almennings. VG og Framsókn hafi hins vegar skotið þessa hugmynd í kaf.

Sigríður Á. Andersen.
Sigríður Á. Andersen.
Auglýsing

Sig­ríður Á. And­er­sen, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir til­valið að næsta skref í sölu rík­is­ins í Íslands­banka verði það að dreifa hlutum til almenn­ings – heim­il­anna í land­inu. Hún segir það „skandal“ að Vinstri græn og Fram­sókn hafi lagst gegn þess­ari hug­mynd Sjálf­stæð­is­manna.

Sig­ríður var gestur í Silfr­inu á RÚV í morg­un. Þar var síð­asta útboðið í Íslands­banka til umræðu.

Guð­mundur Gunn­ars­son, frétta­stjóri Mark­að­ar­ins og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Ísa­firði, sagði risa­stóra málið að Banka­sýslan sitji enn á 400 millj­örðum króna og nú væri búið að „setja stopp“ á frek­ari sölu á hlut rík­is­ins. „Inn­viða­upp­bygg­ing víða um land er í hættu. Það er það sem að ég hef áhyggjur af, sem lands­byggð­ar­mað­ur.“ Banka­salan hafi verið tæki­færi til að fá fjár­magn til að greiða upp þá „inn­viða­skuld“ sem skap­ast hefði í land­inu. En af því verður ekki út af því „klúðri“ sem síð­asta útboð var.

Auglýsing

Sig­ríður sagð­ist taka undir þetta með Guð­mundi en sagði annan „skandal“ einnig hafa komið upp. „Fjár­mála­ráð­herra lýsti því hvernig VG og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lögð­ust gegn því, skutu þá hug­mynd hans í kaf, að fram­kvæma þá hug­mynd sem Sjálf­stæð­is­menn hafa haft í ára­tugi, meðal ann­ars ég, um að deila – dreifa – þessum hlutum í bönk­unum til almenn­ings í land­inu. Þetta hefur VG og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ekki viljað heyra minnst á.“

Hún sagði hins vegar til­valið að taka það skref núna. „Að næsta ferli í að losa ríkið úr þessu eign­ar­haldi eigi að vera með þessum hætti. Að taka ákveð­inn hluta af bank­anum og dreifa þessu á heim­ilin í land­inu og renna þannig styrkum stoðum undir öll heim­ili í land­inu. Í kjöl­farið svo að selja loka­hlut­inn.“

Þetta er að sögn Sig­ríðar leið sem Sjálf­stæð­is­menn hafa viljað fara en hefur ekki hlotið hljóm­grunn hjá öðrum rík­is­stjórn­ar­flokk­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent