Sjálfstæðisflokkur nú með fimm menn í Reykjavík

kosningaspa.jpg
Auglýsing

Sam­fylk­ingin og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eru stærstu fram­boðin í Reykja­vík sam­kvæmt kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­son­ar, dokt­ors í stærð­fræði, eftir að nið­ur­stöður könn­unar Félags­vís­inda­stofn­unnar HÍ er reiknuð með. Sam­fylk­ingin reikn­ast með 28,6 pró­senta fylgi en Sjálf­stæð­is­flokkur með 27,0 pró­sent. Fram­boð­in ­fengju fimm ­full­trúa í borg­ar­stjórn hvort. Mun­ur­inn á fylgi fram­boð­anna er þó enn innan vik­marka, svo ekki er hægt að segja með fullri vissu hvort stjórn­mála­aflið sé vin­sælla í Reykja­vík.

Fylgi fram­boða til borg­ar­stjórnar í Reykja­vik



Sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá, gerðri 9. maí 2014

[visu­alizer id="4609"]

Könn­unin sýnir að flokk­arnir tveir eru að sækja í sig veðrið á kosnað ann­arra fram­boða, sér­stak­lega Bjartar fram­tíðar sem tapar manni til Sjálf­stæð­is­flokks­ins á þeirri rúmu viku sem liðin er síðan kosn­inga­spáin var síð­ast reikn­uð. Meiri­hluti Bjartar fram­tíðar (áður Besta flokks­ins) og Sam­fylk­ing­ar­innar veltur aðeins á einum full­trúa verð­i þetta nið­ur­staða kosn­ing­anna 31. maí.

Auglýsing

Vinstri græn tapa einnig fylgi. Í síð­ustu kosn­inga­spá mæld­ist fram­boð þeirra með 8,3 pró­sent fylgi en er nú með 7,1 pró­sent. Það litla sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig er langt innan við vik­mörk útreikn­ing­anna. Það sama á við um Pírata sem virð­ist þó tapa örlitlu fylgi síðan 1. maí. Vinstri græn og Píratar fengju enn bæði einn full­trúa yrði þetta nið­ur­staða kosn­ing­anna.

Þróun a fylgi flokka í Reykja­vík



Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 9. maí 2014

[visu­alizer id="4616"]

Röðun full­trúa er áhuga­verð fyrir þær sakir að fimmti maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Hildur Sverr­is­dótt­ir, er nú fimmt­ándi og síð­asti full­trú­inn inn í borg­ar­stjórn á undan fjórða full­trúa Bjartar fram­tíð­ar. Skúli Helga­son, fimmti maður á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, er fjórt­ándi inn. Alls kom­ast 15 full­trúar að en kosn­inga­spáin reiknar röð efstu 20. Á lista þeirra fimm sem næstir eru inn er áhuga­vert að sjá að eini full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins sem kemst á topp 20 fellur um eitt sæti sam­kvæmt spánni, úr átj­ánda í nítj­ánda. Sjötti full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar er nú lík­legri til að ná kjöri en odd­viti Fram­sókn­ar.

Röðun full­trúa sam­kvæmt nýj­ustu spá



[visu­alizer id="4611"]

Könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag en þar mæld­ust báðir flokk­arnir með fimm manns. Sam­fylk­ingin mæld­ist þar með rúm­lega þriggja pró­sentu­stiga for­skot á Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None