Umsóknum um alþjóðlega vernd fjölgaði um 33 prósent milli ára

Heimsfaraldur COVID-19 hafði töluverð áhrif á umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi en þeim fer fjölgandi á ný. Til stendur að legggja fram frumvarp um breytingar á útlendingalögum í fjórða sinn.

Mótmæli við Hörpu – Palestína-Ísrael maí 2021
Auglýsing

871 umsókn um alþjóð­lega vernd barst stjórn­völdum í fyrra sem er fjölgun um 33 pró­sent frá 2020 þegar umsókn­irnar voru 654. Heims­far­aldur COVID-19 hefur haft tölu­verð áhrif á umsóknir um alþjóð­lega vernd en fjöldi umsókna í fyrra voru örlítið fleiri en árið 2019 þegar þær voru 867.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein­ar­gerð frum­varps um breyt­ingu á lögum um útlend­inga sem birt hefur verið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Sam­hliða fjölgun umsókna hafa heild­ar­út­gjöld vegna umsækj­enda um alþjóð­lega vernd auk­ist und­an­far­inn ára­tug, eða úr rúmum 220 millj­ónum árum 2012 í rúm­lega 3,3 millj­arða árioð 2020. Kostn­aður á síð­asta ári nam 2,3 millj­örðum króna. Inn í þessar tölur vantar þó útgjöld vegna rekst­urs Útlend­inga­stofn­unar og kæru­nefndar útlend­inga­mála.

Auglýsing

Fjöldi umsókna um alþjóð­lega vernd tíföld­uð­ust á fjórum árum þegar þær fóru úr 118 árið 2012 í 1.132 árið 2016. Í kjöl­farið réð­ust stjórn­völd í aðgerðir til að draga úr „fjölda ber­sýni­lega til­hæfu­lausum umsókn­um“ og fækk­aði umsóknum í 1.096 árið 2017 og 800 árið á eft­ir. Frum­varp um breyt­ingar á útlend­inga­lögum sem nú er í sam­ráðs­gátt stjórn­valda­var fyrst lagt fram að Sig­ríði Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, vorið 2018 og var þá fyrst og fremst við­brögð við mik­illi fjölgun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hér á landi, ekki síst frá fólki sem þegar hefur verið veitt vernd í öðrum ríkjum Evr­ópu.

Heimild: Útlendingastofnun

Fjöldi umsókna jókst um mitt ár í fyrra

Árið 2019 voru umsókn­irnar 867. Árið eft­ir, þegar heims­far­aldur COVID-19 skall á, fækk­aði umsóknum hér á landi fyrst um sinn. Í mars 2020 fækk­aði umsóknum um 35% frá fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins og í apríl bár­ust ein­ungis fimm umsóknir og fjórar í maí. Á hinn bóg­inn fjölg­aði málum í efn­is­með­ferð umtals­vert þegar Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála ákváðu tíma­bundið að aðlaga mat sitt á því hvort taka bæri Dyfl­inn­ar- og vernd­ar­mál til efn­is­með­ferðar að virtum þessum sér­stöku aðstæðum sem komu upp í kjöl­far far­ald­urs­ins.

Í júní 2020 fjölg­aði umsóknum á ný, einkum á síð­ari hluta mán­að­ar­ins, þegar 19 umsóknir bár­ust og í júlí voru þær 106 en það voru flestar umsóknir sem höfðu borist í einum mán­uði síðan í ágúst 2017. Heild­ar­fjöldi umsókna 2020 var 654.

Heimild: Útlendingastofnun

Fyrstu fimm mán­uði árs­ins 2021 bár­ust heldur fáar umsóknir um alþjóð­lega vernd eða að jafn­aði um 30 á mán­uði. Fjöldi umsækj­enda jókst hins vegar hratt í byrjun sum­ars. Í júní til sept­em­ber bár­ust að með­al­tali um 75 umsóknir á mán­uði og í októ­ber einum bár­ust 124 umsókn­ir. Á árinu 2021 bár­ust sam­tals 871 umsókn um alþjóð­lega vernd og fjölg­aði þeim því um 33% milli ára, þrátt fyrir áfram­hald­andi tak­mark­anir vegna Covid-19 heims­far­ald­urs­ins.

228 bíða flutn­ings úr landi

Í grein­ar­gerð­inni er fjallað um nýjar áskor­anir sem stoð­deild lög­reglu mætti við að flytja úr landi ein­stak­linga sem hlotið höfðu synjun á umsóknum sínum um alþjóð­lega vernd, vegna krafna við­töku­ríkja um PCR-­próf, vott­orðs um afstaðna Covid-19 sýk­ingu eða bólu­setn­ingu gegn veirunni. „Þeir ein­stak­ling­ar, sem lögum sam­kvæmt eiga að yfir­gefa land­ið, hafa nýtt sér þessa stöðu og ítrekað neitað að und­ir­gang­ast PCR-­próf og kom­ast þannig undan fram­kvæmd­inni. Jafn­framt reynd­ist erfitt og í sumum til­vikum ómögu­legt fyrir stoð­deild að fá upp­lýs­ingar frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum um það hvort ein­stak­ling­arnir væru bólu­settir eða höfðu þegar fengið Covid-19 sýk­ing­u,“ segir í grein­ar­gerð­inni. Hópur þeirra ein­stak­linga sem biðu flutn­ings úr landi hefur stækkað hratt og í lok árs 2021 var um 228 ein­stak­linga að ræða.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að frum­varpið sem lagt er fram nú sé „liður í nauð­syn­legri end­ur­skoðun lag­anna og felur í sér efn­is­meiri laga­breyt­ingar varð­andi mót­töku og máls­með­ferð umsókna um alþjóð­lega vernd en gerðar hafa verið til þessa“.

Sams konar frum­varp hefur þrisvar áður verið lagt fyrir þingið en hefur ekki náð fram að ganga. Frum­varpið varðar ákvæði útlend­inga um alþjóð­lega vernd og lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga, útgáfu tíma­bund­inna leyfa vegna sér­stakra ástæðna. Frestur til að skila inn umsögn um frum­varpið rennur út á föstu­dag, 4. febr­ú­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent