Ásgeir Trausti Einarsson, betur þekktur sem Ásgeir á erlendri grundu, hefur selt alla miða á tónleika sína í stóra sal Óperuhússins í Sidney, en þar verður hann á tónleikaferð frá 27. desember til 15. janúar. Aðrir tónleikar hafa verið settir á, en miðarnir á fyrri tónleikana ruku út. Hann mun einnig leika á tvennum tónleikum í Tokyo, en uppselt er á þá fyrri.
Ásgeir Trausti hefur verið á tónleikaferð um Bandaríkin að undanförnu, og hélt meðal annars tónleika í Lincoln Hall í Chicago, 12. október síðastliðinn, sem fengu framúrskarandi umsögn.
https://www.youtube.com/watch?v=kn60eDa3lDI
Spenntir fyrir Chicago
Ásgeir Trausti segir sjálfur að það hafi verið gaman að spila í Lincoln Hall, og upplifa góða strauma frá áhorfendum. „Við vorum allir spenntir að koma aftur til Chicago til að spila á svona flottum tónleikastað og ekki skemmdi ánægja tónleikagesta fyrir. Lincoln Hall er helmingi stærri staður en sá sem við spiluðum á síðast sem var í júní. Túrinn hér i Bandaríkjunum hefur bara gengið alveg ótrúlega vel,“ sagði Ásgeir Trausti.
Ásgeir á tónleikum á tónlistarhátíðinni Treasure Island í San Francisco núna fyrir nokkrum dögum Mynd/GV
Hann segir ferðalagið hafa gengið vel, en eins og oft er með tónleikaferðir í Bandaríkjunum, þá fari mikil orka í löng ferðalög milli staða. „Við ferðumst um á „nightliner“ sem skemmir ekki fyrir og gerir alla upplifunina og ferðalagið auðveldara. Við erum búnir að vera á ferðalagi síðan 27. september, byrjuðum í Frakklandi, áður en við fórum til Bandaríkjanna í byrjun október svo við erum nú líka orðnir spenntir yfir þvi að koma heim og spila á Iceland Airwaves miðvikudaginn 5. nóvember. Við ætlum að gefa allt í þá tónleika og koma fram með brassi, strengjum og frumsýna það „show“ sem við ætlum nota á mörgum stórum tónleikum sem framundan eru í Evrópu, Ástralíu og Japan,“ sagði Ásgeir Trausti.
Plata Ásgeirs, Dýrð í dauðaþögn, er mesta selda fyrsta plata tónlistarmanns í Íslandssögunni, með yfir 30 þúsund eintök seld. Platan nefnist In The Silence á ensku, og er Ásgeir nú að fylgja plötunni eftir með tónleikaferð sinni. Hinn 5. nóvember spilar Ásgeir Trausti á Iceland Airwaves í Silfurbergi í Hörpunni.
Dagana 9. nóvember til 9. desember spilar Ásgeir á tónleikum í Evrópu, meðal annars í Koncerthuset í Kaupmannahöfn, Rockerfeller í Osló og Shephard's Bush í London.