Útgáfufélag Stundarinnar tapaði rúmlega milljón krónum á síðasta ári

Tekjur útgáfufélags Stundarinnar námu 233,9 milljónum króna á síðasta ári og jukust þær um fjögur prósent á milli ára. Tapið af rekstrinum nam 1,2 milljónum króna í fyrra, samanborið við rúmlega sjö milljóna hagnað árið 2020.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir er ritstjóri Stundarinnar, en Jón Trausti Reynisson er framkvæmdastjóri útgáfufélagsins auk þess að vera blaðamaður á miðlinum.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir er ritstjóri Stundarinnar, en Jón Trausti Reynisson er framkvæmdastjóri útgáfufélagsins auk þess að vera blaðamaður á miðlinum.
Auglýsing

Útgáfu­fé­lag Stund­ar­innar var rekið með 1,2 millj­óna króna tapi á síð­asta ári, sem er við­snún­ingur frá árinu 2020, en þá hagn­að­ist Stundin um 7,2 millj­ón­ir. Tekjur félags­ins námu alls 233,9 millj­ónum og hækk­uðu um rúm 4 pró­sent á milli ára.

Þetta má lesa í árs­reikn­ingi útgáfu­fé­lags­ins, sem skilað var inn til Skatts­ins í upp­hafi mán­að­ar. Í skýrslu stjórnar um starf­semi félags­ins segir að eftir lok reikn­ings­árs­ins 2021 hafi tekjur félag­ins auk­ist veru­lega, en kostn­aður einnig að sama skapi.

Það teng­ist vænt­an­lega nýlegum skipu­lags­breyt­ingum hjá miðl­inum og áhrifum þeirra, en í jan­ú­ar­mán­uði var til­kynnt að Jón Trausti Reyn­is­son myndi stíga úr stóli ann­ars tveggja rit­stjóra og verða í kjöl­farið fram­kvæmda­stjóri útgáfu­fé­lags­ins og blaða­maður á miðl­in­um.

Auglýsing

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir er ein aðal­rit­stjóri eftir þessar breyt­ing­ar, en blaða­mað­ur­inn Helgi Seljan bætt­ist við hóp starfs­manna í febr­úar og er hann rann­sókn­ar­rit­stjóri mið­ils­ins.

85 pró­sent tekna frá almenn­ingi

Stjórn útgáfu­fé­lags­ins telur lík­legt að vax­andi verð­bólga komi til með að valda þrýst­ingi til tekju­lækk­un­ar, hvort sem er að raun- eða nafn­virði, auk kostn­að­ar­hækk­un­ar. Í skýrslu stjórn­ar­innar kemur fram að um 85 pró­sent af öllum tekjum Stund­ar­innar komi beint frá almenn­ingi í gegnum áskrifta­kaup, styrki eða lausa­sölu blaða.

Í skýrslu stjórnar kemur fram að Stundin hafi ekki nýtt sér nein úrræði stjórn­valda vegna COVID-19 far­ald­urs­ins, en að aðhalds hafi verið gætt í rekstr­inum á árinu 2021.

Fjallað er um áfram­hald opin­bers rekstr­ar­stuðn­ings við fjöl­miðla í árs­reikn­ingi Stund­ar­innar og tekið fram að óvissa er um áfram­hald þess stuðn­ings, þrátt fyrir að fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar geri ráð fyrir að hann haldi áfram.

Því er ekki enn ljóst hvort rekstr­ar­stuðn­ingur komi á móti rit­stjórn­ar­kostn­aði sem fellur til á reikn­ings­ár­inu 2022, sem síðan feng­ist greiddur á árinu 2023. Stundin fékk 25,3 millj­ónir í opin­beran rekstr­ar­stuðn­ing á síð­asta ári, eða sem nam tæpum 11 pró­sentum af heild­ar­tekjum fjöl­mið­ils­ins.

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi voru tólf stöðu­gildi hjá útgáfu­fé­lag­inu á árinu 2021 og hafði þeim fjölgað um tvö frá fyrra ári. Kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins vegna launa og launa­tengdra gjalda nam alls 127,4 millj­ónum króna í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent