Vanda endurkjörin formaður KSÍ

Ársþing KSÍ fór fram í dag og þar var kjörinn formaður: Vanda Sigurgeirsdóttir, sem hefur gegnt starfinu frá því í fyrrahaust, sigraði Sævar Pétursson.

Vanda Sigurgeirsdóttir.
Vanda Sigurgeirsdóttir.
Auglýsing

Vanda Sig­ur­geirs­dótt­ir, sem var fyrst kjörin for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) í októ­ber í fyrra, var end­ur­kjörin for­maður á árs­þingi sam­bands­ins í dag. Hún atti þar kappi við Sævar Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóra KA, og fékk yfir­burð­ar­kosn­ingu. Vanda fékk alls 105 atkvæði, ða rúm­lega 70 pró­sent greiddra atkvæða, en Sævar 44, eða tæp­lega 30 pró­sent greiddra atkvæða.

Vanda var kjörin í fyrra­haust í kjöl­far þess að Guðni Bergs­son, þáver­andi for­maður KSÍ, sagði af sér emb­ætti auk þess sem stjórn sam­bands­ins vék í heild sinni. Það gerð­ist eftir að frá­sagnir af kyn­­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­­manna í knatt­­spyrnu komu upp á yfir­­­borð­ið. 

Auglýsing
Í des­em­ber í fyrra var birt skýrsla nefndar sem Íþrótta­sam­band Íslands (ÍSÍ) skip­aði til að gera úttekt á við­brögðum og máls­­með­­­ferð KSÍ vegna kyn­­ferð­is­of­beld­is­­mála sem tengd­ust leik­­mönnum í lands­liðum Íslands. Þar kom meðal ann­ars fram að KSÍ hafi fengið upp­lýs­ingar um meinta hópnauðgun tveggja lands­liðs­manna fyrir ell­efu árum síðan í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Eftir til­kynn­ingu þar um frá starfs­manni sam­bands­ins, tengda­móður þol­and­ans, var meðal ann­ars rætt við annan ger­and­ann. Samt ákvað KSÍ að hlíta ráð­legg­ingu almanna­tengsla­fyr­ir­tækis og svara fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um málið með vill­andi hætt­i. 

Sævar Pétursson.

Að mati nefnd­­ar­innar mátti til sanns vegar færa að yfir­­lýs­ing­­arnar hafi borið með sér ákveðin merki þögg­un­­ar- og nauðg­un­ar­menn­ing­ar, þar sem því var í reynd hafnað í yfir­­lýs­ing­unum að mál kvenn­anna hefðu komið til vit­undar KSÍ. 

Guðni Bergs­­­son sagði í yfir­­­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í kjöl­farið að hann hafi borið ábyrgð á við­brögðum sam­­­bands­ins, vegna þeirra ofbeld­is­­­mála sem komu upp í for­­­mann­s­­­tíð hans. Sömu sögu væri að segja um miðlun upp­­­lýs­inga til fjöl­miðla og almenn­ings. „Þar hefði ég getað gert bet­­­ur.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent