Varaformaður VG: Engin samstaða innan ríkisstjórnar um brottvísun um 300 manns

Nokkrir ráðherrar gerðu athugasemdir við þá vegferð sem Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra er á varðandi brottvísun fjölda flóttamanna frá Íslandi á ríkisstjórnarfundi í morgun. Félagsmálaráðherra segist ekki ánægður með hvernig Jón hefur haldið á málinu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna.
Auglýsing

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, segir það rangt að sam­staða ríki innan rík­is­stjórn­ar­innar um það að vísa tæp­lega 300 flótta­mönnum úr landi innan tíð­ar, líkt og Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur haldið fram. Hann seg­ist hafa gert „al­var­legar athuga­semd­ir“ við þá veg­ferð sem Jón væri á og að hann væri ekki ánægður með það hvernig Jón hafi haldið á mál­inu. „Nei, ég get ekki sagt að ég sé það. Ég held að það sé alveg ljóst af mínum orð­u­m.“ 

Þetta kom fram í við­tali við Guð­mund Inga í tíu­fréttum RÚV í kvöld.

Hann seg­ist þó von­ast til þess að nið­ur­staða náist í mál­inu líkt og í fjöl­mörgum öðrum málum sem ekki hefur ríkt ein­ing um innan rík­is­stjórn­ar­inn­ar. 

Fyrir helgi var greint frá því á for­síðu Frétta­blaðs­ins að flóð­bylgja brott­vís­ana þeirra sem sótt hafa hér um vernd sé framund­an. Alls telur hóp­ur­inn tæp­lega 300 manns. Stór hluti þeirra á að fara til Grikk­lands.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra sagði í Kast­ljósi í kvöld að sam­staða ríkti innan rík­is­stjórn­ar­innar um að fram­kvæma brott­vísun fólks­ins og að skýrar reglur giltu um það. „Við höfum skýrar reglur til að vinna eftir og það eru í sjálfu sér engar breyt­ingar á því.“

Auglýsing
Hann sagði það rétt að sér­stakar aðstæður væru uppi varð­andi þennan hóp. Skil­yrði hefðu verði um að það í mót­töku­ríkjum að flótta­menn sem ætti að senda þangað hefðu und­ir­geng­ist COVID-­próf eða bólu­setn­ingu. Margir flótta­menn hefðu neitað að gera það og því hefði brott­vísun þeirra taf­ist á meðan að slíkar reglur voru í gildi. „Nú eru þessar reglur að hverfa í þessum ríkjum og þá kemur þetta til fram­kvæmda.“

Fleiri ráð­herrar gerðu athuga­semdir við veg­ferð Jóns

Útlend­inga­mál heyra ekki ein­ungis undir dóms­mála­ráðu­neyt­ið. Hluti mála­flokks­ins er hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu, sem er stýrt af Guð­mundi Inga, vara­for­manni Vinstri grænna (VG).

Hann sagði í tíu­fréttum RÚV í kvöld að það væri ekki rétt hjá Jóni að algjör sam­staða væri um málið í rík­is­stjórn­inni. „Ég gerði mjög alvar­legar athuga­semdir við þá veg­ferð sem ráð­herr­ann er á í rík­is­stjórn í morgun og benti þar á að það er liðin tals­verður tími hjá sumum frá því að brott­vís­un­ar­á­kvörðun var tek­in. Það þarf að líta til þessa hóps, hvort að það séu sér­stakar aðstæð­ur, hvort að þarna séu börn sem séu búin að vera ákveðið lengi hér á landi, mögu­lega fatlað fólk og veikt.“ 

Hann sagði enn fremur að horfa þyrfti til þess tíma sem hóp­ur­inn hefði dvalið hér­lendis og hverjar aðstæður væru í mót­töku­land­inu, en þar hefur sér­stak­lega verið gagn­rýnt að til standi að senda stóran hluta hóps­ins til Grikk­lands, en mann­úð­ar­sam­tök hafa ítrekað sagt að aðstæður flótta­fólks þar séu með öllu óboð­leg­ar. 

Guð­mundur Ingi sagði að fleiri ráð­herrar hafi gert athuga­semdir við veg­ferð Jóns á rík­is­stjórn­ar­fund­inum í morgun en vildi ekki segja hverjir það voru. Þeir þyrftu sjálfir að greina frá því. 

„Þetta er bara rangt“

Aðspurður um orð dóms­mála­ráð­herra í Kast­ljósi kvölds­ins og þýð­ingu þeirrar stöðu sem komin er upp á stjórn­ar­heim­il­inu sagði Guð­mundur Ingi: „Í mínum huga er þetta bara rangt. Það er bara þannig. Þetta er rang­t“.

Hann sagð­ist vona að það tæk­ist að leysa úr mál­inu. „Ég fylgi mann­úð­legri útlend­inga­stefnu VG, það er í okkar stefnu. Að mínu viti þurfum við að taka þetta mál til sér­stakrar skoð­unar og greina hóp­inn bet­ur.“ 

Sú grein­ing eigi að leiða til þess að skýr­ara liggi fyrir hvort ein­hverjir úr hópnum eigi að geta fengið vernd á Íslandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent