Vegagerðin líti ásakanir um óheiðarleg vinnubrögð starfsmanna alvarlegum augum

Niðurstaða kærunefndar útboðsmála vegna kæru sem barst vegna hönnunarsamkeppni Fossvogsbrúar liggur fyrir. Kærunni var vísað frá og skaðabótaskyldu hafnað. Forstjóri Vegagerðarinnar fagnar niðurstöðunni.

Fyrirhuguð Fossvogsbrú, eins og hún leit út á teikningum frá Eflu, sem varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppninni í fyrra.
Fyrirhuguð Fossvogsbrú, eins og hún leit út á teikningum frá Eflu, sem varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppninni í fyrra.
Auglýsing

Kæru­nefnd útboðs­mála hefur vísað frá kæru arki­tekta­stof­unnar Úti og Inni vegna hönn­un­ar­sam­keppni um Foss­vogs­brú, sem lögð var fram undir lok síð­asta árs, og hafnað kröfu arki­tekta­stof­unnar um skaða­bóta­skyldu. Úrskurður kæru­nefnd­ar­innar var birtur á mánu­dag.

Í til­kynn­ingu á vef Vega­gerð­ar­innar er haft eftir Berg­þóru Þor­kels­dóttur for­stjóra stofn­un­ar­innar að hún sé ánægð með nið­ur­stöð­una og að kæran hafi verið mjög ómál­efna­leg. „Vega­gerðin lítur það mjög alvar­legum augum þegar starfs­menn hennar eru sak­aðir um óheið­ar­leg vinnu­brögð líkt og gert var í umræddri kæru. Það var alla tíð aug­ljóst að ekki væri hægt að kom­ast að annarri nið­ur­stöðu en nefndin komst að,“ er haft eftir Berg­þóru.

Kæran var lögð fram gegn Vega­gerð­inni, Reykja­vík­ur­borg, Kópa­vogs­bæ, Rík­is­kaupum og verk­fræði­stof­unni Eflu og hafði kær­andi auk ann­ars kraf­ist ógild­ingar á hönn­un­ar­sam­keppn­inni, vegna fyrri vinnu Eflu við und­ir­bún­ing Foss­vogs­brúar og náin tengsl lyk­il­fólk hjá Vega­gerð­inni við verk­fræði­stof­una.

Auglýsing

Kjarn­inn fjall­aði um efni kærunnar í apr­íl­mán­uði, en þetta var önnur kæran sem barst frá þessum sömu aðilum vegna hönn­un­ar­sam­keppni um Foss­vogs­brú. Sú fyrri end­aði með því að fram­kvæmd fyrri hönn­un­ar­sam­keppni brúar yfir Foss­vog var ógilt og ferlið komst á byrj­un­ar­reit.

Í hinni nýju nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar segir að kæru­frestur vegna hluta þeirra athuga­semda kær­anda sem settar voru fram hafi verið lið­inn er kæran barst til nefnd­ar­innar 17. des­em­ber í fyrra. Sú nið­ur­staða kæru­nefnd­ar­innar á við um athuga­semdir frá Úti og Inni vegna mats á til­lögu fyr­ir­tæk­is­ins í hönn­un­ar­sam­keppn­inni, sem og meintum hug­verka- og hug­mynda­stuldi.

Aðrar athuga­semdir kær­anda, um ætlað van­hæfi dóm­nefnd­ar­manna og um brot á jafn­ræði í hönn­un­ar­sam­keppni, voru taldar hafa borist innan kæru­frests. Kæru­nefndin taldi hins vegar að ekki hefði verið sýnt fram á það með neinum hald­bærum hætti að brotið hefði verið gegn lögum um opin­ber inn­kaup eins og kær­andi vildi meina, og hafn­aði því kröfu arki­tekta­stof­unnar um við­ur­kenn­ingu skaða­bóta­skyldu Vega­gerð­ar­innar og ann­arra varn­ar­að­ila í mál­inu.

Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar segir meðal ann­ars að meta þurfi í hverju og einu til­viki hvort fyr­ir­tæki sem hafi komið að und­ir­bún­ingi verk­efnis sem þessa, sem óum­deilt er að Efla gerði, hafi með því í raun búið yfir ólög­mætu for­skoti. „Eins og hér háttar til þykir fátt renna stoðum undir mála­til­búnað kær­anda að svo hafi ver­ið,“ segir kæru­nefndin við því.

Kæru­nefndin fellst þó á það með arki­tekta­stof­unni að breyt­ingar á skil­málum hönn­un­ar­sam­keppn­innar svipi að vissu leyti til þeirra hug­mynda sem stofan lagði fram í fyrri hönn­un­ar­sam­keppni um Foss­vogs­brúnna. „Á hinn bóg­inn fæst ekki séð að sú breyt­ing geti talist hafa dregið taum Eflu sér­stak­lega,“ segir í nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­inn­ar.

Kæru­nefnd útboðs­mála þótti rétt að máls­kostn­aður í mál­inu félli nið­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent