Vélar Icelandair hjá Cabo Verde ekki enn komnar í útleigu

Tvær flugvélar sem Loftleiðir, dótturfélag Icelandair, leigði út til flugfélagsins Cabo Verde Airlines eru ekki enn komnar í útleigu annars staðar. Starfsemi Cabo Verde Airlines hefur legið niðri síðan í mars í fyrra.

cabo_verde_airlines_2_mynd_facebook.jpeg
Auglýsing

Icelandair Group hefur ekki enn náð að finna leigj­endur fyrir tvær flug­vélar í þeirra eigu sem hafa legið kyrrar eftir að flug­fé­lagið Cabo Verde Air­lines frá Græn­höfða­eyjum lagði niður starf­semi sína í mars í fyrra. Þetta stað­festir Ásdís Ýr Pét­urs­dótt­ir, sam­skipta­stjóri Icelanda­ir, í sam­tali við Kjarn­ann.

Millj­arða­tap og afskrifað á fyrsta ári

Líkt og Kjarn­inn hefur fjallað um áður keypti dótt­ur­fé­lag Icelanda­ir, Loft­leið­ir, ásamt Björgólfi Jóhanns­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Icelanda­ir, og fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Kjálka­nesi ehf. ráð­andi hlut í Cabo Verde Air­lines í febr­úar árið 2019. Þessi fjár­fest­ing skil­aði þeim tapi upp að tæpum millj­arði króna það ár og var virði félags­ins komið niður í 0 kr. í lok árs 2019, sam­kvæmt árs­reikn­ingi eign­ar­halds­fé­lags­ins Loft­leiðir Cabo Verde.

Þrátt fyrir að félagið hafi verið að fullu afskrifað úr bókum eign­ar­halds­fé­lags­ins stóð í sama árs­reikn­ingi að gert væri ráð fyrir við­snún­ingi í rekstri Cabo Verde Air­lines á árinu 2021. Slíkur við­snún­ingur kom þó aldrei, þar sem flug­fé­lagið lagði niður starf­semi sína í mars í fyrra vegna heims­far­ald­urs­ins.

Auglýsing

Ófærir um að tryggja rekstur félags­ins

Erlendur Svav­ars­son, sem var ráð­inn for­stjóri Cabo Verde Air­lines mán­uði áður en far­ald­ur­inn hófst, til­kynnti svo í byrjun júní­mán­aðar að félagið hygð­ist byrja aftur að fljúga á milli Græn­höfða­eyja og Portú­gals innan fárra vikna. Ekk­ert varð þó úr þessum áætl­unum og lágu flug­vél­arnar sem félagið not­aði því enn óhreyfð­ar.

Nokkrum dögum eftir að ljóst var að Cabo Verde Air­lines væri ekki að fara að hefja starf­semi sína aftur til­kynntu stjórn­völd á Græn­höfða­eyjum að flug­fé­lagið yrði þjóð­nýtt. Sam­kvæmt stjórn­völd­unum höfðu nýju íslensku eig­end­urnir ekki sýnt að þeir gætu tryggt áfram­hald­andi rekstur flug­fé­lags­ins, sem hefur 300 starfs­menn, með sjálf­bærum hætti. Starf­semi Cabo Verde Air­lines liggur enn niðri, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu félags­ins.

Tvær leigu­vélar í eigu Icelandair

Í síð­asta árs­hluta­reikn­ingi Icelandair stendur að félagið sé ekki útsett fyrir rekstri Cabo Verde Air­lines, þar sem virði þess hafi verið fært niður að fullu. Hins vegar bætir Icelandair við að leitað sé að nýjum leigj­endum fyrir tvær vélar sem Loft­leiðir leigði út til Cabo Verde Air­lines.

Í svari frá Ásdísi Ýri Pét­urs­dótt­ur, sam­skipta­stjóra Icelanda­ir, eru þessar vélar ekki enn komnar í útleigu, en hún bætir þó við að nægt fram­boð hafi verið af vélum innan Icelandair til að sinna þeim verk­efnum sem Loft­leiðir hafi verið í á árinu. Ásdís segir einnig að félagið hafi fengið tals­verðan fjölda fyr­ir­spurna um ný verk­efni, en sökum óvissu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafi þróun þeirra dreg­ist á lang­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent