„Við vitum hvar pyttirnir eru“

Formaður Vinstri grænna staðfestir í samtali við Kjarnann að líklegt sé að ný ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins verði mynduð í næstu viku.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG telur mjög lík­legt að ný rík­is­stjórn verði mynduð í næstu viku. Fram kom í Frétta­blað­inu í morgun að Bjarni Bene­dikts­­son for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins hefði trú á unnt yrði að mynda nýja rík­­is­­stjórn flokks hans með Vinstri grænum og Fram­­sókn­­ar­­flokki í næstu viku. Nýta þyrfti kom­andi helgi og dag­anna þar á eftir vel og trúði hann því að vinnan færi að klár­­ast.

Katrín stað­festir þessi orð Bjarna í sam­tali við Kjarn­ann en hún segir að óvissa með taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hafi sett svip sinn á við­ræð­urn­ar.

Auglýsing
Hún nefnir enn fremur að þetta séu þrír ólíkir flokkar og auð­vitað ekki með sömu stefnu­skrá. „Það er krefj­andi verk­efni að búa til stjórn­ar­sátt­mála þó að við séum búin að vinna lengi sam­an. Svo þekkj­umst við nátt­úru­lega miklu betur en fyrir fjórum árum. Við vitum hvar pytt­irnir eru.“

Katrín bætir því við að þau hafi gefið sér góðan tíma vegna þess að rík­is­stjórnin er með meiri­hluta og vegna rann­sóknar á taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Varð­andi rann­sókn­ina þá telur Katrín að und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd hafi lagt mikið upp úr því að vanda sig í sinni vinnu.

Hún áréttar að nauð­syn­legt sé að nið­ur­staða nefnd­ar­innar verði að liggja fyrir áður en þing komi sam­an. „Það er alveg ljóst.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent