Stjórn Eflingar hefur tilkynnt um ráðningu sex stjórnenda og lykilstarfsmanna Eflingar sem taka til starfa á næstu vikum. Áður hafði verið greint frá ráðningu framkvæmdastjóra Eflingar, Perlu Aspar Ásgeirsdóttur, en aðrir stjórnendur sem tilkynnt var um ráðningar á í kvöld eru allt karlar.
Í hópi stjórnenda sem stjórn hefur nú samþykkt að ráða til starfa henni við hlið eru þeir Magnús Rínar Magnússon sviðsstjóri þjónustu, Ingólfur B. Jónsson sviðsstjóri vinnuréttinda og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri. Einnig hefur verið gengið frá ráðningu Sveins Ingvasonar í stöðu forstöðumanns orlofshúsa, en Sveinn hefur um árabil verið yfirmaður orlofshúsamála Eflingar. Stefán Ólafsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum og Ragnar Ólason tekur við starfi sérfræðings í kjarasamningsgerð, að því er segir í fréttatilkynningu frá Eflingu.
„Ráðningar hafa gengið framar vonum. Rekstur skrifstofunnar er og verður í góðum höndum. Næsta skref er að ganga frá ráðningum almennra starfsmanna, og vonir standa til að því verði lokið innan skamms,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar í tilkynningunni.
Þar kemur ennfremur fram að allir einstaklingar sem ráðnir voru hafi farið í gegnum viðtöl og hæfnismat hjá ráðningarstofu. Með þessum ráðningum hafi stjórnunarstöður allra helstu sviða starfseminnar á skrifstofu Eflingar verið mannaðar.
Stjórn Eflingar tók ákvörðun um að segja öllu starfsfólki og stjórnendum skrifstofu upp í byrjun apríl og auglýsti í kjölfarið eftir fólki til starfa.
„Lokafrágangur stendur nú yfir á ráðningum almennra starfsmanna en mikið af umsóknum barst í störf sem auglýst voru 16. apríl síðastliðinn,“ segir í tilkynningu Eflingar.