Þrátt fyrir jákvæðar fréttir af hækkun lánshæfiseinkunnar Ríkissjóðs Íslands hjá lánshæfismatsfyrirtækjunum Standard & Poor’s, Moody’s og Fitch Ratings þá eru hættumerki til staðar, að mati Viðskiptaráðs Íslands. „Hækkunin byggir á þeirri lykilforsendu að þeir fjármunir sem falli til við afnám hafta verði nýttir til að bæta skuldastöðu ríkissjóðs en ekki til þensluaukandi útgjalda. Þá gætu áhrif kjarasamninga á verðbólgu grafið undan lánshæfismatinu á komandi árum,“ segir í pistli á vefsíðu ráðsins í dag þar sem fjallað er um nýlegar hækkanir á lánshæfismatinu. Á föstudaginn síðasta tilkynnti Fitch Ratings um hækkun lánshæfismats Ríkissjóðs. Hin matsfyrirtækin tvö höfðu áður hækkað einkunnirnar.
Viðskiptaráð bendir á að þetta er í fyrsta sinn frá hruni sem lánshæfi ríkissjóðs batnar samkvæmt öllum fyrirtækjunum þremur. „Meginorsök þessara hækkana er ný áætlun stjórnvalda um afnám hafta. Samkvæmt matsfyrirtækjunum er áætlunin bæði ítarleg og trúverðug. Þá mun innleiðing hennar bæta skuldastöðu ríkissjóðs og styðja við efnahagslegar framfarir á næstu árum. Gangi afnámsáætlunin eftir ásamt áætlun stjórnvalda um niðurgreiðslu skulda telja fyrirtækin fyrirséð að lánshæfiseinkunn ríkissjóðs hækki enn frekar í náinni framtíð,“ segir í pistilinum.
„Samkvæmt Seðlabanka Íslands gætir þegar þensluáhrifa í íslensku hagkerfi og mun svo áfram vera á næstu árum. Á slíkum tímum er lykilverkefni stjórnvalda að draga úr opinberum útgjöldum og greiða niður skuldir. Þannig skapar hið opinbera heilbrigt mótvægi gagnvart þeirri útgjaldaaukningu sem á sér stað hjá einstaklingum og fyrirtækjum.“
Að mati Viðskiptaráðs eru vísbendingar um að þessu verkefni hafi ekki verið sinnt að undanförnu. Samkvæmt ríkisreikningi fyrir árið 2014 þá jukust útgjöld ríkissjóðs um 13 milljarða króna milli ára. Það mun leiða til aukinnar þenslu og verri skuldastöðu en ella, segir ráðið, og er líklegt til að lækka lánshæfi ríkissjóðs á ný.
„Lánshæfi ríkissjóðs hefur leiðandi áhrif á vaxtakjör innlendra aðila. Þannig hefur hærri einkunn ríkissjóðs þegar leitt til betra lánshæfis íslensku bankanna og Landsvirkjunar.4 Bætt lánshæfi bankanna skilar sér í lægri vaxtakostnaði fyrirtækja og heimila. Þá er bætt lánshæfi Landsvirkjunar til þess fallið að auka verðmæti félagsins sem skilar almenningi ávinningi sem eiganda fyrirtækisins í gegnum íslenska ríkið. Hærra lánshæfismat hefur því jákvæð áhrif á lífskjör hérlendis.
Með framlagningu trúverðugrar og vel ígrundaðrar afnámsáætlunar hafa stjórnvöld stigið veigamikið jákvætt skref í átt til bættra lífskjara hérlendis á komandi árum. Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til þess að halda áfram á þessari braut og herða tökin í rekstri hins opinbera með því að draga úr útgjöldum og greiða niður skuldir á komandi misserum,“ segir ennfremur í greininni.