Viðskipti með Símann hafin - Virði hluta hópanna sem keyptu fyrst hefur aukist mikið

orri-hauks.jpg
Auglýsing

Hluta­bréf í Sím­anum voru tekin til við­skipta á Aðal­mark­aði Kaup­hallar Íslands í dag og voru við­skipti með þau umtals­verður hluti af heild­ar­við­skiptum á hluta­bréfa­mark­aði í dag. Alls nam velta með bréfin 622 millj­ónum króna.

Loka­gengi bréf­anna var 3,49 krónur á hlut sem er aðeins hærra en með­al­gengi þeirra var í hluta­fjár­út­boði Sím­ans í síð­ustu viku, sem var 3,33 krónur á hlut. Virði hluta­bréfa í Sím­anum er því fimm pró­sentum hærra í lok fyrsta við­skipta­dags en það var í úboð­inu.

Sala hluta­bréfa í Sím­anum í aðdra­ganga útboðs hafa verið mikið til umfjöll­unar að und­an­förnu í ljósi þess að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins og með­fjár­festar þeirra fengu að kaupa fimm pró­sent hlut í Sím­anum á geng­inu 2,5 krónur á hlut í ágúst síð­ast­liðn­um. Sam­tals greiddi hóp­ur­inn 1.330 millj­ónir króna fyrir hlut­inn.

Auglýsing

Auk þess fengu valdir við­skipta­vinir Arion banka að kaupa fimm pró­sent hlut á 2,8 krónur á hlut í sept­em­ber, skömmu áður en hluta­fjár­út­boð Sím­ans fór fram. Sá hópur hefur greitt um 1.490 millj­ónir króna fyrir sinn hlut. Þessi ráð­stöfun hefur verið harð­lega gagn­rýnd, meðal ann­ars á Alþingi og af stjórn­endum líf­eyr­is­sjóða sem eiga stóran hlut í Sím­an­um.

Virði hlut­ar ­fyrri hóps­ins hefur því hækkað um 40 pró­sent miðað við gengi bréfa í Sím­anum í lok fyrsta við­skipta­dags. Hann má ekki selja bréf sín fyrr en í byrjun árs 2017.

Virði hlutar síð­ari hóps­ins hefur hækkað um 25 pró­sent frá því að hann keypti hlut­inn. Sá hópur má selja sinn hlut í upp­hafi árs 2016.

Stjórn kann­ast ekki við ólgu



Stjórn Sím­ans sendi frá sér til­kynn­ingu í lok fyrsta við­skipta­dags þar sem hún fagnar þeim áfanga sem félagið náði í dag með skrán­ingu í kaup­höll.

Þar segir einnig að "Stjórnin kann­ast ekki við að ólga sé innan hennar vegna fram­kvæmdar útboðs­ins, eins og full­yrt hefur verið í frétt­um. Stjórnin telur að við þessi tíma­mót verði fag­mennska sem fyrr aðals­merki félags­ins. Sím­inn er öfl­ug­asta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins og það end­ur­spegl­ast í þeim áhuga og trausti sem fjár­festar sýna félag­in­u."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None